Toyota Landcruiser 120


Höfundur þráðar
púkinn
Innlegg: 13
Skráður: 01.feb 2010, 19:08
Fullt nafn: Guðmundur sigurjón Guðlaugsson

Toyota Landcruiser 120

Postfrá púkinn » 18.sep 2010, 14:54

Erum með 2005 árg af 120 cruiser í fjölskyldunni ekinn 104þ hann fór að reykja kaldur og það heyrðist ventlaglamur.
ég fór og tapaði olíunni af vélinni sá þá að grófsigtið var fullt af drullu.
bílinn fór til toyota skift var um grórsigti, spíssa
þetta var kostnaður upp á tæp 400þ
og ekki í ábyrgð
finnst svolitið sérstakt að það þurfi að eyða fleiri hundruð þúsund í mótor áður en það er skift um tímareim
það væri fróðlegt að heyra frá fleirum sem hafa lent í þessu veit fyrir víst að þetta er ekki bara ein og ein bíl
http://www.tlocuk.co.uk/forums/viewtopi ... c&start=15




Kalli
Innlegg: 411
Skráður: 27.júl 2010, 18:28
Fullt nafn: Karl Guð
Bíltegund: Cherokee 2007

Re: Toyota Landcruiser 120

Postfrá Kalli » 18.sep 2010, 17:45

Fimm ára ábyrgð
Árið 2010
markar þáttaskil í sögu Toyota á Íslandi, en frá og með 1. janúar fylgir fimm ára ábyrgð öllum nýjum Toyota og Lexus bifreiðum – viðskiptavinum að kostnaðarlausu. Toyota hefur verið þeirrar gæfu aðnjótandi, allt frá stofnun fyrirtækisins, að búa að langtímasambandi við viðskiptavini sína og er innleiðing fimm ára ábyrgðarinnar enn einn þátturinn í að styrkja frekar þau bönd sem til staðar eru og á sama tíma gera kaup á nýjum Toyota og Lexus bifreiðum enn skynsamari kost en ella.

User avatar

HaffiTopp
Innlegg: 929
Skráður: 02.feb 2010, 17:04
Fullt nafn: Hafþór Atli Hallmundsson

Re: Toyota Landcruiser 120

Postfrá HaffiTopp » 18.sep 2010, 17:53

..
Síðast breytt af HaffiTopp þann 20.jún 2014, 18:13, breytt 1 sinni samtals.

User avatar

Óskar - Einfari
Innlegg: 690
Skráður: 01.feb 2010, 08:29
Fullt nafn: Óskar Andri Víðisson
Bíltegund: Toyota
Staðsetning: Vatnsenda, Kópavogur
Hafa samband:

Re: Toyota Landcruiser 120

Postfrá Óskar - Einfari » 19.sep 2010, 16:12

Thetta er ekki bara einn og einn bíll. Thetta er thekkt vandamál allstadar í amk 3.0 D4-D vélinni. Thad var skipt um thetta í mínum Hilux í kringum 50.000 km og madur heirir thetta ljóta glamur stundum í bílum sem eru nýkomnir í gang bara úti á gotu.... undarlegt ad thetta sé ekki vidurkennt sem galli, held thad viti thad flestir ad thetta sé thekkt vandamál.... nema kanski Toyota.

Thad greinilega raedst af heppni vidskiptavinarins hvort bilunin komi framm á ábyrgdartíma eda ekki.

Ég rádlegg ollum sem eiga svona bíla (Hilux, LC120) ad ef their byrja ad heira glamur frá vélinni thegar vélin er kold ad fara og hvarta undan thví, annars bera their kostnadinn á endanum sjalfir....

Afsakid ad thad vantar islensku stafina... er í Buenos Aires.... ad éta nautasteikur og elta konuna med visakortid.... :)

Kv.
Óskar Andri
Toyota Hilux 2007 3.0 D-4D sjálfskiptur 38" breyttur

https://www.instagram.com/oskar.andri/

User avatar

Járni
Stjórnandi
Innlegg: 1392
Skráður: 30.jan 2010, 22:43
Fullt nafn: Árni Björnsson
Bíltegund: Land Rover
Staðsetning: Akureyri
Hafa samband:

Re: Toyota Landcruiser 120

Postfrá Járni » 19.sep 2010, 19:08

Ég heyrði nú af þessu vandamáli og hvernig það er tæklað.
Ef eigandi bílsins verður var við hljóð, kraftleysi, sót eða hverskonar vandamál sem kunna að gera vart við sig áður en allt hrynur (útaf þessu síu máli) og fer með bílinn í athugun og í framhaldi af því í viðgerð þarf hann að borga upptekt.

Hinsvegar, ef ekkert að viðhafst og bíllinn keyrður þar til hann bræðir úr sér fæst ný vél frá Toyota.

Þekki þetta þó ekki frá eigin raun.
Land Rover Defender 130 38"


gullli
Innlegg: 23
Skráður: 25.jún 2010, 14:10
Fullt nafn: Guðlaugur F. Jónsson

Re: Toyota Landcruiser 120

Postfrá gullli » 19.sep 2010, 21:58

Þessir tveir eru allavega ósáttir við afgreiðslu af hálfu Toyota á svipuðum málum ..

http://www.visir.is/skella-skollaeyrum-vid-meintum-galla/article/2010329579127

http://www.visir.is/greiddi-400-thusund-fyrir-vidgerd-a-spissum/article/2010607988000

Þekki þetta annars ekki betur en það sem að ofan stendur.

Gulli

User avatar

Brjótur
Innlegg: 565
Skráður: 31.jan 2010, 23:57
Fullt nafn: helgi j. helgason

Re: Toyota Landcruiser 120

Postfrá Brjótur » 19.sep 2010, 22:50

Toyota tákn um GÆÐI???? þeir leggjast ansi lágt á þessum bænum til að fela galla og þagga niður í fastakúnnunum, þekki það var að vinna hjá þeim

User avatar

Gulli J
Innlegg: 168
Skráður: 22.mar 2010, 20:25
Fullt nafn: Guðlaugur Jónasson

Re: Toyota Landcruiser 120

Postfrá Gulli J » 20.sep 2010, 02:14

Þekki einn, bíllinn var ný dottinn úr ábyrgð þegar vélinn hrundi, hann fékk samt nýja vél sér að kostnaðarlausu.
Fjallað er um svona dæmi á leo.com ekki falleg einkunn sem hann gefur þessum grjónadósum.

Næstu úrræði Ríkisstjórnarinnar munu fjalla um hvað sé hægt að gera fyrir sárar krúser fjölskyldur sem biða þriggja millu reiknings.
Guðlaugur Jónasson
Jeep Grand Cherokee 2005 5,7L Hemi 33" Jeep 1
Jeep Grand Cherokee 1998 5,7L Hemi 46" Jeep 2

Enda sagði presturinn, ef það eru bílar í Himnaríki þá eru það Jeep Grand Cherokee.

User avatar

snöfli
Innlegg: 287
Skráður: 03.sep 2010, 19:21
Fullt nafn: Lárus Elíasson
Bíltegund: Patrol Y61

Re: Toyota Landcruiser 120

Postfrá snöfli » 20.sep 2010, 10:07

Þetta hefur verið þekkt hjá Toyota lengi. Þeir hafa skipt um þetta þegjandi og hljóðalaust á þeim bílum sem eru innan ábyrgðar en látið það falla á kúnnan ella. Fékk það heilræði að ef ég heyrði svoana glamur áður en ábyrgðin rynni út að kvart sem fyrst.

Svo vita allir sem vilja vita að þetta er ekki bilun heldur eðlilegt viðhald (af því þetta er Toyota)

l.


steinarxe
Innlegg: 195
Skráður: 09.mar 2010, 21:16
Fullt nafn: Steinar Amble Gíslason

Re: Toyota Landcruiser 120

Postfrá steinarxe » 20.sep 2010, 16:18

Já nú er nú alldeilis kominn tími á skjóta þetta skítafyrirtæki niður sem hefur aldrei gert annað en að selja handónýtar grjónadollur:)Það er ekkert smá sem fólk getur orðið vitlaust þegar Toyota gerir mistök,hér eru jafnvel patrol eigendur farnir að drulla yfir toyotu mótora. Skil nú yfirleitt ekki hvernig bílarnir komust uppá skip fyrst þetta er orðið svo ónýtt. Gæti nú líka haldið hér langa ræðu um milljónirnar sem hafa flogið útúr minni fjölskyldu viðað halda amerískum hræjum af ýmsum sortum gangandi en það stoðar víst lítið þar sem toyota er skotmarkið í dag;)Njótið vel:)

User avatar

HaffiTopp
Innlegg: 929
Skráður: 02.feb 2010, 17:04
Fullt nafn: Hafþór Atli Hallmundsson

Re: Toyota Landcruiser 120

Postfrá HaffiTopp » 20.sep 2010, 16:34

..
Síðast breytt af HaffiTopp þann 20.jún 2014, 18:14, breytt 2 sinnum samtals.


steinarxe
Innlegg: 195
Skráður: 09.mar 2010, 21:16
Fullt nafn: Steinar Amble Gíslason

Re: Toyota Landcruiser 120

Postfrá steinarxe » 20.sep 2010, 17:16

Já,það er nú það sem mér finnst asnalegt að sumir framleiðendur selja orginal lélega bíla og það er gott og blessað en ef ákveðinn framleiðandi sem hefur frammað því gert ágætis bíla og eitthvað gerist þá verður fólk snælduvitlaust. Get ekki séð að þessi þöggun hjá þeim hafi verið mjög áhrifarík að minnsta kosti,þetta er útum alla fjölmiðla,minnir mig á gamla corollu auglísingu:)En bætti IH tjónið hjá patrol eigendum?kannski á ábyrgðar tímanum en þeir fundu aldrei lausn á vandanum,kúnninn sat uppi með að finna hana. Annars hef ég ekkert á móti patrol,væri minn næsti kostur á eftir toyotu.


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 33 gestir