Sögur segja að þórir schiöth sé búinn að kaupa Jaxlinn aftur og er að græja hann, við erum að tala um alvöru come back.
Ég hef heyrt að það eigi að vera 4hjóla stýrið og einhver svaka vél, 14:71 blásara og alkahól innspítingu. Verður fróðleg og spennandi að sjá
Fann video sem Jakob C tök saman
Sögur segja
-
- Stjórnandi
- Innlegg: 1392
- Skráður: 30.jan 2010, 22:43
- Fullt nafn: Árni Björnsson
- Bíltegund: Land Rover
- Staðsetning: Akureyri
- Hafa samband:
Re: Sögur segja
Djefell ertu vel að þér í þessum málum. Þú ert off-road-hasar-fréttamaður jeppaspjallsins!
Land Rover Defender 130 38"
Re: Sögur segja
jeeeeeesssssssss....:)
Chevrolet Silverado Suburban 6.2 dísel 1982 á leið í uppgerð 35"og 36"
Gallopper intercoler durbo dísel 2,5 1997 32"og 33"
Gallopper intercoler durbo dísel 2,5 1997 32"og 33"
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 1164
- Skráður: 05.maí 2011, 14:49
- Fullt nafn: Sveinn Haraldsson
- Bíltegund: Toyota hilux
- Staðsetning: Dalvík
Re: Sögur segja
Hahah takk fyrir það. Er svo með aðra sögu sem ég kem að síða. En veit að það verða margir ánægðir með þá sögu. Gamall meistari sem er að huga að come backi
Sveinn Haraldsson
Toyota hilux 38"
Toyota hilux 38"
-
- Stjórnandi
- Innlegg: 1067
- Skráður: 30.jan 2010, 23:08
- Fullt nafn: Gísli Sverrisson
- Bíltegund: Suzuki Fox
- Staðsetning: Mosó
- Hafa samband:
Re: Sögur segja
Jaxlinn var alltaf í uppáhaldi. Spennandi.
-
- Innlegg: 1157
- Skráður: 01.aug 2010, 12:02
- Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
- Bíltegund: Nissan Patrol '98
Re: Sögur segja
Þetta þótti mér alltaf magnaður bíll.
Það sem ég er þó mest hissa á, miðað við hvað þetta eru gömul myndbönd, er hvað fjöðrunin virðist vel sett upp. Þegar hann keyrði á vatninu var ekki til í því að hann byrjaði að skoppa eins og svo margir gera, honum vantaði bara fleiri hestöfl.
En veit einhver úr hverju þessar hásingar koma?

"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 1164
- Skráður: 05.maí 2011, 14:49
- Fullt nafn: Sveinn Haraldsson
- Bíltegund: Toyota hilux
- Staðsetning: Dalvík
Re: Sögur segja
Já þetta var nokkuð mögnuð smíði hjá Þóri. Fjöðrunin og hásingar voru hans hönnun, veit ekki hvaða hásingar þetta eru.
Honum vantaði ekki aflið á þessum tíma, hann var alltaf með strærstu vélarna á hverjum tíma, byrjaði með 427 og var svo með 509 minnir að hún hafi verið 900- 1000 hp.
Það sem var vandamálið er hvað bíllinn var þungur um 2tonn. En þessi fjöðrun virkaði alveg snildar vel. Svo hjálpaði 4hjóla stýrið honum oft. Hann braut svo öxla eins og tannstöngla.
Hann var sá fyrsti til að keyra á 44" ausum að ég held.
En það verður alveg magnað að sjá hann koma aftur í slaginn. Var líka helvíti skemmtilegur keppandi kallinn

Síðast breytt af Svenni30 þann 10.jún 2015, 21:04, breytt 1 sinni samtals.
Sveinn Haraldsson
Toyota hilux 38"
Toyota hilux 38"
-
- Innlegg: 703
- Skráður: 14.aug 2010, 21:35
- Fullt nafn: ólafur finnur jóhannsson
- Bíltegund: Toyota Yaris GRMN
- Staðsetning: Akureyri
Re: Sögur segja
jaxlin var á dana 55 eða hvað sem þær heita ford klof hásingum með 9" ford drif að aftan og 60öxlum smíðað á ljónstöðum eins og allur bíllinn einnhverja franska gorma og koni dempara, og var já fyrst með 427chevy og svo 509chevy.
Toyota Yaris GR 4 2020
Hilux Sr5 22re 1995
Hilux Sr5 22re 1995
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 1164
- Skráður: 05.maí 2011, 14:49
- Fullt nafn: Sveinn Haraldsson
- Bíltegund: Toyota hilux
- Staðsetning: Dalvík
Re: Sögur segja
Hélt alltaf að Þórir hafi smíða allt sjálfur í skúrnum hjá sér á egilsstöðum með hjalp frá nokkrum vinum. En endaði hann ekki með 468 Chevy ? sem fór svo á einhverjum tímapukti til Garðars í drekan
Síðast breytt af Svenni30 þann 11.jún 2015, 16:06, breytt 1 sinni samtals.
Sveinn Haraldsson
Toyota hilux 38"
Toyota hilux 38"
-
- Innlegg: 703
- Skráður: 14.aug 2010, 21:35
- Fullt nafn: ólafur finnur jóhannsson
- Bíltegund: Toyota Yaris GRMN
- Staðsetning: Akureyri
Re: Sögur segja
jú sú vél var mjög stut í Jaxlinum Garðar kaupir jaxlinn af Þóri til að nota kram . en já jeppasmiðjan smíðaði bílinn og blikrás á Ak bodýið og svo vann Helgi schiöth og aðrir að ýmsum betur bætingum á honum
Toyota Yaris GR 4 2020
Hilux Sr5 22re 1995
Hilux Sr5 22re 1995
Re: Sögur segja
Iðntæknistofnun græjaði þessa gorma í bílinn.
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 2 gestir