Torfæru sjónvarpsþættir
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 1
- Skráður: 10.apr 2015, 02:23
- Fullt nafn: Gunnar Hörður Garðarsson
Torfæru sjónvarpsþættir
Nú veit ég ekki hvort allir hérna eru búnir að heyra af þessu þannig ég ætla bara að reyna að setja inn sem mest af upplýsingum hérna. Hægt er að skoða meira um verkefnið á http://www.offroadiceland.net
Ég, Edda Sif Pálsdóttir og Rúnar Ingi Garðarsson erum að reyna að fjármagna sex sjónvarpsþætti um Íslandsmeistaramótið í Torfæru núna í sumar. Allir geta hjálpað okkur við fjármögnunina með því að kaupa eintak af þáttunum fyrirfram.
Við erum með nokkra pakka í boði.
Vefpakkinn kostar um 3900kr og þú færð stafrænt eintak af öllum sex þáttunum sem verða framleiddir í sumar.
DVD pakkinn kostar um 5800 og þú færð stafrænt eintak af öllum sex þáttunum sem verða framleiddir í sumar ásamt eintaki af öllum þáttunum á DVD í lok sumars.
Bluray pakkinn kostar 7700 og þú færð stafrænt eintak af öllum sex þáttunum sem verða framleiddir í sumar ásamt eintaki af öllum þáttunum á Blu-Ray HD í lok sumars.
Einnig er í boði stærri pakki sem hentar fyrirtækjum eða einstaklingum sem vilja styrkja verkefnið og fá nokkur eintök af DVD eða Bluray útgáfunni. Sá pakki kostar um 48.800kr og þá færðu nafn þitt, eða nafn fyrirtækis, í kreditlista þáttana.
Þú færð einnig stafrænt eintak af öllum sex þáttunum sem verða framleiddir í sumar ásamt fimm eintökum af öllum þáttunum á Blu-Ray HD eða DVD í lok sumars.
Markmiðið er að safna fyrir allri þáttagerðinni með þessari hópsöfnun og gera 50 ára afmæli Torfæru á Íslandi virkilega góð skil í gæðum sem aldrei hafa sést áður.
Ef þú þekkir einhvern sem gæti haft áhuga á því að láta þetta verkefni verða að veruleika bentu þá viðkomandi á því að styðja okkur. Ef þú hefur áhuga á því að hjálpa til geturðu farið á http://www.offroadiceland.net og smellt á "Fund this project" og þá erum við skrefi nær að láta þetta takast.
Ef við náum ekki markmiðinu í Maí fellur söfnunin niður, enginn borgar neitt og engir þættir verða framleiddir. Þannig það er engin áhætta sem kaupendur á þáttunum taka.
Má endilega dreifa þessum upplýsingum sem víðast :)
Kveðja,
Gunnar Hörður Garðarsson
Komum Torfæru í sjónvarp - www.offroadiceland.net
-
- Stjórnandi
- Innlegg: 1067
- Skráður: 30.jan 2010, 23:08
- Fullt nafn: Gísli Sverrisson
- Bíltegund: Suzuki Fox
- Staðsetning: Mosó
- Hafa samband:
Re: Torfæru sjónvarpsþættir
Upp með þetta, fáum torfæruna í sjónvarpið.
-
- Innlegg: 181
- Skráður: 26.apr 2011, 13:41
- Fullt nafn: Kristján Finnur Sæmundsson
- Bíltegund: Jeep CJ-7 og LC 80
Re: Torfæru sjónvarpsþættir
Frábært framtak hjá ykkur. Ég er búinn að tuða yfir því í mörg ár afhverju þetta sé ekki í sjónvarpi eins og áður var, enda erfitt að finna sjónvarpsvænna mótorsport.
Þeir sem þora að ráðast í svona verkefni eiga fá stuðning frá okkur hinum. Spurning hvort Jakob og fleiri sem hafa barist í þessu síðustu ár geti komið að verkefninu líka.
Ég ákvað að sýna stuðning í verki og pantaði DVD pakkann á 39 pund.
Ég skora á aðra sem hafa gaman af sportinu og vilja sjá það eflast að styðja við þetta flotta verkefni.
kv
Kristján Finnur
Þeir sem þora að ráðast í svona verkefni eiga fá stuðning frá okkur hinum. Spurning hvort Jakob og fleiri sem hafa barist í þessu síðustu ár geti komið að verkefninu líka.
Ég ákvað að sýna stuðning í verki og pantaði DVD pakkann á 39 pund.
Ég skora á aðra sem hafa gaman af sportinu og vilja sjá það eflast að styðja við þetta flotta verkefni.
kv
Kristján Finnur
-
- Innlegg: 181
- Skráður: 26.apr 2011, 13:41
- Fullt nafn: Kristján Finnur Sæmundsson
- Bíltegund: Jeep CJ-7 og LC 80
Re: Torfæru sjónvarpsþættir
koma svo.....
-
- Stjórnandi
- Innlegg: 1392
- Skráður: 30.jan 2010, 22:43
- Fullt nafn: Árni Björnsson
- Bíltegund: Land Rover
- Staðsetning: Akureyri
- Hafa samband:
Re: Torfæru sjónvarpsþættir
Flott framtak, ég var að ljúka við að panta DVD pakkann.
Endilega verið með, þó það væri bara til að einfalda næstu jólagjafainnkaup, gaman að styrkja íslenska framleiðslu og um leið áhugann á torfærunni.
Endilega verið með, þó það væri bara til að einfalda næstu jólagjafainnkaup, gaman að styrkja íslenska framleiðslu og um leið áhugann á torfærunni.
Land Rover Defender 130 38"
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur