Frábær ferðabíll, Mitsubishi Pajero, langur, 7 manna, 2,8 dísil, sjálfskiptur, ekinn milli 380 og 390 þús.
Cruise control, hiti í sætum, armpúðar, útvarp+CD, rafmagn í rúðum, dráttarkúla, mjög þægileg sæti, rúmgóður bíll með risa skott (sérstaklega ef öftustu sætin eru tekin út). Sér miðstöð afturí, stillanleg aftursæti, glasahaldarar o.fl. o.fl. Eyðir 10-12 í langkeyrslu (eftir aksturslagi). Mjög góð sæti og þægilegt að ferðast í honum.
ATH-Þetta er ekki nýr bíll, honum fylgja rispur og ryðblettir, en þó í hóflegu magni.
Bíllinn er staðsettur á Selfossi, en verður í Reykjavík þriðjudaginn 14. maí, ef einhver vill skoða.
Frekari upplýsingar á elin.ee.is@gmail.com
Verðhugmynd er 445 þús. en ég er opin fyrir tilboðum.
TS: Pajero, 2,8 dísil, ssk, 1998; 445 þús „OBO“
Re: TS: Pajero, 2,8 dísil, ssk, 1998; 445 þús „OBO“
Þessi gæðagripur verður Reykjavík á morgun, þriðjudaginn 14. maí, ef einhver vill skoða. Síminn er 694 7614.
Re: TS: Pajero, 2,8 dísil, ssk, 1998; 445 þús „OBO“
Þessi er enn til sölu. Fínasti bíll þó aðeins sé farið að sjást í „hrukkur“. Skoða öll tilboð sem eru gerð af heilum hug.
-
- Innlegg: 171
- Skráður: 31.jan 2010, 23:38
- Fullt nafn: Ásgeir Bjarnason
- Bíltegund: Subaru Outback
- Staðsetning: Reykjavík
Re: TS: Pajero, 2,8 dísil, ssk, 1998; 445 þús „OBO“
Sæl.
Hvað þýðir ,,OBO" ? Ég hef séð þetta í nokkrum auglýsingum en aldrei skilið þetta.
Kv.
Ásgeir
Hvað þýðir ,,OBO" ? Ég hef séð þetta í nokkrum auglýsingum en aldrei skilið þetta.
Kv.
Ásgeir
Re: TS: Pajero, 2,8 dísil, ssk, 1998; 445 þús „OBO“
ætli það sé ekki Or Best Offer.Æskan notar allskonar svona orð:)
Hlynur þór birgisson
'46 willys 460 bbf
Ford F250 35" 5.4L D'74
Mmc outlander turbo
Bmw 323 coupe
Ford ranger 4.0 35"
'46 willys 460 bbf
Ford F250 35" 5.4L D'74
Mmc outlander turbo
Bmw 323 coupe
Ford ranger 4.0 35"
Re: TS: Pajero, 2,8 dísil, ssk, 1998; 445 þús „OBO“
Jú, það passar, "or best offer" (eða besta boð). Þessi skammstöfun er mikið notuð á auglýsingasíðum erlendis og ég hef ekki séð svipaða íslenska skammstöfun sem hefur fest sig í sessi.
Mér þykir hins vegar mjög gott að vita að æskunni sé ekki lokið um 36 ára aldurinn :-)
Kv. Elín
Mér þykir hins vegar mjög gott að vita að æskunni sé ekki lokið um 36 ára aldurinn :-)
Kv. Elín
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur