langar að deila með ykkur myndir frá mér úr þorrablótsferðinni hjá austurlandsdeildar f4x4 sem var um helgina.
ég og bjarnþór vinur minn lögðum af stað frá olís í fellabæ á fimmtudagskvöldið 28.febrúar.
Fórum við á 2 bílum, bjarnþór á sinni 44"suzuki "einhvertíman" Fox og ég á mínum 44" land rover discovery
Mikið stress var búið að vera hjá mér þar sem bíllinn var hjá bjarnþóri í heddskiptum og var settur í gang rúmlega 4 tímum fyrir brottför.
En það gékk allt vel eftir og ókum við bjarnþór beina leið til mývatns. bjarnþór var með þýska vin okkar hann mikka í framsætinu og þótti honum það mjög gott.
Frá mývatni fórum við í heilaugsdal og hittum aðra ferðalanga þar. Þar í broddi fylkingar var þórir gíslasson á hrollinum, daði á 44" nissan patrol 4.2, tóti frá straumi á 44"hilux og Nonni á 38" hilux.
þaðan um hádegið lögðum við af stað í dyngfelladal og gistum þar eina nótt. slóum upp agalega flottri veislu með miklu kjöti og góðu meðlæti.
Þaðan fórum við að kistufelli, en lentum í þó nokkrum krapa og leiðindum.
frá kistufelli fórum við uppá dyngjujökul og keyrðum þaðan beina leið í kverfjöll þar sem þorrablótið var haldið í sigurðarskála.
Vonandi hafa einhverjir gaman af þessu, og vonandi virka myndirnar.
Kv, Jóhann Snær
http://www.facebook.com/media/set/?set= ... ec436618cc
þorrablótsferð austurlandsdeildar f4x4
Til baka á “Ferðir og færð á fjöllum”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur