olípönnuryð í landcruiser
sælir
ég er með 2002 árgerð af 90 krúser með 3.0 D4D vélinni og það virðist vera sem olípannan sé orðinn rygðuð og byrjuð að leka smávegis olíu, svampurinn sem er þarna á pönnunni er orðinn gegnsósa eins og sést á þessum myndum sem ég tók áðan. (afsaka gæðin á þessum myndum það er frekar erfitt að ná góðu sjónarhorni á þetta liggjandi undir bílnum)
Ég er aðeins búinn að vera pæla í þessu og hvað sé hægt að gera fyrir utan að fara í umboðið og láta þá kaupa inn nýja pönnu(sem er í dýrari kanntinum vægast sagt)
Nokkrar hugmyndir:
Láta sjóða í pönnuna. Mæli þið þá með einhverjum sem getur framkvæmt svoleiðs ef það er hægt yfir höfuð?
Kaupa pönnu af partasölu sem er vonandi óryðguð og heldur olíu :)
Annað mál er síðan framkvæmdin, það virðist nú ekki vera svakalega flókið að losa svona pönnu af vélinni, taka "low engine oil level warning" skynarann af pönnunni og síðan fjarlægja þessa ca. 20 bolta sem halda henni. En er mikið mál að taka pönnuna sjálfa undan? Það virðist vera full þröngt þarna og mikið sem gæti flækst fyrir.
Hvað segi þið meistarar um þetta mál? Öll góð ráð þegin.
olípönnuryð í krúser
-
- Póststjóri
- Innlegg: 2809
- Skráður: 06.feb 2010, 10:43
- Fullt nafn: Elmar Snorrason (Elli)
- Bíltegund: Patrol
- Staðsetning: Travitsenfirkopfendorf
Re: olípönnuryð í krúser
Það er vel hægt að sjóða í og bæta pönnu, en ef bótin er orðin verulega stór þá er eiginlega möst að bolta hana niður á plan. Ég hef breytt pönnum þegar ég er að setja vélar í bíla, bæði með því að gera það bara með pönnuna lausa en þá er verulega hætta á að hún vindi sig og plani ekki rétt við blokkina og leki af þeim sökum. Ég lenti í því einusinni og ég þurfti nokkrum sinnum að taka hana undan til að kítta meira, á endanum náði ég þó að láta hana þétta.
Þegar ég setti terrano mótorinn ofaní luxann þá þurfti ég að breyta pönnunni mjög mikið, þá hafði ég annan úrbræddan mótor hjá mér sem ég boltaði pönnuna fasta (með öllum boltum) á meðan ég var að vinna hana. Hún þétti 100% í fyrstu tilraun. Þó er hún bókstaflega nýsmíði, ég notaði pönnu úr chevy 350 til að fá rétt form og sauð hana neðaná terrano pönnuna :)
Original terrano til vinstri og custom made for hilux hægra megin

http://www.jeppafelgur.is/
Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Google [Bot] og 1 gestur