GMC Sierra. tilbúinn

User avatar

Höfundur þráðar
íbbi
Innlegg: 1469
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: GMC Sierra Loka metrarnir..

Postfrá íbbi » 13.maí 2024, 01:14

garmurinn fékk nýjann gang af stoppurum, í annað skiptið á furðu fáum kílómetrum, nýjir handstopparar líka, hjólalegur pakkdósir og rykhlífar reyndar líka.

svo var tekið hring, jómfrúar ferð jafnvel svona eftir alla vinnuna. hann hefur amk ekki versnað í akstri. og þykir greinilega sopinn jafn góður og honum þótti áður
Viðhengi
20240512_195906.jpg
20240512_195906.jpg (2.76 MiB) Viewed 5850 times
20240512_225210.jpg
20240512_225210.jpg (2.73 MiB) Viewed 5850 times
20240510_234416.jpg
20240510_234416.jpg (2.49 MiB) Viewed 5850 times
20240419_221116.jpg
20240419_221116.jpg (2.34 MiB) Viewed 5850 times


1996 Dodge Ram. 38" eilífðarverkefni
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra

User avatar

Höfundur þráðar
íbbi
Innlegg: 1469
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: GMC Sierra Loka metrarnir..

Postfrá íbbi » 19.maí 2024, 23:20

nú er bara rúntað.. og bara töluverð hamingja í gangi, bíllinn lúkkar ansi vel bara þó ég segi sjálfur frá
Viðhengi
20240515_163435.jpg
20240515_163435.jpg (3.34 MiB) Viewed 5723 times
20240518_134742.jpg
20240518_134742.jpg (2.88 MiB) Viewed 5723 times
20240518_223002.jpg
20240518_223002.jpg (2.73 MiB) Viewed 5723 times
20240518_223051.jpg
20240518_223051.jpg (2.26 MiB) Viewed 5723 times
20240519_225507.jpg
20240519_225507.jpg (2.63 MiB) Viewed 5723 times
20240518_230321.jpg
20240518_230321.jpg (3.8 MiB) Viewed 5723 times
1996 Dodge Ram. 38" eilífðarverkefni
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra

User avatar

hobo
Póststjóri
Innlegg: 2493
Skráður: 31.jan 2010, 17:44
Fullt nafn: Hörður Bjarnason
Bíltegund: 1988 Ford Econoline

Re: GMC Sierra. tilbúinn

Postfrá hobo » 20.maí 2024, 08:59

Uss helv... flottur!


Kalli
Innlegg: 413
Skráður: 27.júl 2010, 18:28
Fullt nafn: Karl Guð
Bíltegund: Cherokee 2007

Re: GMC Sierra. tilbúinn

Postfrá Kalli » 20.maí 2024, 10:45

Virkilega flottur hjá þér Like á hann.

User avatar

gislisveri
Stjórnandi
Innlegg: 1069
Skráður: 30.jan 2010, 23:08
Fullt nafn: Gísli Sverrisson
Bíltegund: Ford Transit
Staðsetning: Mosó
Hafa samband:

Re: GMC Sierra. tilbúinn

Postfrá gislisveri » 05.jún 2024, 09:15

Mjög fallegur, vel gert!

User avatar

Höfundur þráðar
íbbi
Innlegg: 1469
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: GMC Sierra. tilbúinn

Postfrá íbbi » 26.jún 2024, 23:46

kærar þakkir. ég er alveg ljómandi ánægður með þetta bara. það er kannski helst að hann er orðinn svo fínn að maður tímir varla að nota hann í eitthvað bras!

það er nú varla að maður vilji segja frá því, en dekkin á bílnum voru nánast jafn gömul bílnum, þannig að því var kippt í liðin, það fór undir hann nýr gangur af toyo at3, 35" eins og var undir honum fyrir. þó ég hafi nú breytt honum með 37" í huga og allt það
Viðhengi
20240626_175503.jpg
20240626_175503.jpg (3.05 MiB) Viewed 5025 times
20240626_175708.jpg
20240626_175708.jpg (2.97 MiB) Viewed 5025 times
1996 Dodge Ram. 38" eilífðarverkefni
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra

User avatar

Höfundur þráðar
íbbi
Innlegg: 1469
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: GMC Sierra. tilbúinn

Postfrá íbbi » 05.okt 2025, 00:32

jæja..

þessi er notaður alla daga.. stendur sig vel

þetta 4wd auto kerfi hinsvegar hefur síst séð að sér hvað hegðun varðar.

hegðunin hefur verið allskonar.. hann er alltaf gríðarlega mikið fyrir að vera í lága drifinu, alveg án þess að hafa verið beðin um það. oft þegar það er ræst þá fer kerfið á einhverskonar shuffle og endar oftar en ekki á 4L, hann hinsvegar harðneitar yfirleitt að fara úr 4L. service 4wd hefur logað eins lengi og ég hef átt hann.

ég var búinn að skipta út ýmsu, og öllu jafna hafði það lagað vandamálið, í svona 2 daga og svo allt eins aftur.. síðasta vetur hinsvegar þá fór mig að gruna að hann væri að svíkja mig um að vera í drifinu þótt hann segðist vera það. hann virkaði 4wd í akstri en ef maður ætlaði að reyna eitthvað þá var hann skyndilega afturdrifinn. það er kúpling á framskaptinu í þessum kössum sem að mér skylst kúplar framdrifinu inn og út.. ég var að spá hvort það gæti verið að hún væri farin að svíkja. einnig hefur mér fundist ég heyra e-h óhljóð úr kassanum í akstri

svo dó þetta alveg, engin ljós í tökkunum, ekkert gerðist, bíllinn í afturdrifinu. ég skipti um skiptimótorinn á millikassanum, þá kom þetta inn aftur og hélt áfram að vera jafn ruglað og þetta var fyrir.
þá skipti keypti ég nýjann 4wd module, sem er tölvan sem stjórnar þessu, þá hætti hann að taka shuffle í hvert skipti sem hann va ræstur, allir kóðar duttu út, takkaborðið virkaði, en hann fór ekki í drifin, hvorki háa né lága.
þá skipti ég um actuatorinn á framdrifinu, þá kom framdrifið inn, en hann fer ekki í 4H, hann fer í 4L en ef maður reynir 4H þá heyrir maður mótorinn erfiða og hætta við, og svo kemur villukóði í kjölfarið.

þá keypti ég nýjann millikassa, og þá meina ég nýjann.. bókstaflega úr kassanum, og þurfti reyndar að blða fyrir kassanum líka þar sem honum á að vera skilað, en þeir höfðu skilning á því sjónarmiði að það væri langt að senda hann frá íslandi til miðríkja bandaríkjana.

kassinn er ekki kominn í, en ég geri það við tækifæri, skipti um alla krossa í leiðini. ásamt góðu service, kominn tími á smur, viftureimar og sterkkjara. öndun á bensíntaknum og smádóti hér og þar.

það er nú vonandi að þetta dæmi fari að virka núna, það er ekkert eftir til að skipta út, ef þetta heldur áfram hlýtur að vera skemmd í lúminu einhverstaðar
Viðhengi
20250719_191731(1).jpg
20250719_191731(1).jpg (2.35 MiB) Viewed 276 times
20251004_131612.jpg
20251004_131612.jpg (2.91 MiB) Viewed 276 times
20251004_131527.jpg
20251004_131527.jpg (2.54 MiB) Viewed 276 times
20251004_135300.jpg
20251004_135300.jpg (3.56 MiB) Viewed 276 times
1996 Dodge Ram. 38" eilífðarverkefni
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra


Til baka á “Jeppinn minn”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur