Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
Of Langt gengið tók þátt í Stórferð Ferðaklúbbsins 4x4 síðustu helgi. Á fimmtudagskvöldinu var ekið upp í Hrauneyjar og þar sest niður og spáð í ferðarplan. Ákveðið var að vakna snemma og aka sem leið lá upp í Jökulheima og aka þaðan upp á Vatnajökul á Tungnárjökli. Á Föstudagsmorgun vöknuðum við upp við frábært veður. Var brunað frá Hrauneyjum inn að Jökulheimum á innan við klukkutíma í litlum snjó. En þegar nær jöklu dró bættist í. Þegar upp á Jökul kom tók við Glæra og svo vindbarnir skaflar sem breittist svo í hið fínasta færi. Þegar við svo áttum um það bil 10km eftir upp á Grímsfjall þyngdist færið töluvert og skyggnið vesnaðu. Ekki var þetta mikið til travala og eftir kaffistopp í Grímsfjallaskála var stefnan tekin í norður og stefnt á Dyngjujökul. Þar tók við frábært færi og gátu menn ekið á þjóðvega hraða þar um. Ekki fór það betur en svo að liðhús brotnaði frá hásingu á einum jeppanum og varð að skilja hann þar eftir til að útvega suðupinna til að laga bílinn á staðnum. Náðist þá í Kassa hópinn sem voru staddir í Sigurðarskála og ætluðu þeir að taka það að sér að ferja suðupinna upp í Drekagil við Öskju sem var náttstaður beggja hópa og hitta okkur þar og afhenda okkur rafsuðu pinnana. Var þá gengið frá bilaða jeppanum og ekið niður jökulinn að Kistufelli og þaðan á Gæsavatnaleið , ekið um flæðurnar og vorum við komnir í skála um 20:00 leitið á Föstudagskvöldinu. Var þá farið í langþráð grill. Á Laugardagsmorgninum hafði svo snjóað töluvert og var stefnan tekin niður á flæðurnar og tók sá akstur um það bil 20 mín Flæðurnar á fullu gasi enda færið eindæmum gott og veðrð með besta móti. Ókum við svo sömu leið upp á Jökul og að bilaða jeppanum og hafist var handa við að koma honum í hjólin. Rétt eftir hádegi var svo bíllinn ferðafær. Hafði þá veðrið á jöklinum spillst töluvert en þó ekkert sem áhyggjur þyrfti að hafa af. Gekk aksturinn inn á jökul vel. Þegar við vorum komnir inn að miðjum jökli þá barst okkur neiðarkall frá hópinum sem hafði bjargað okkur um rafsuðapinna daginn áður og nú vantaði þeim restina af þeim til að koma bíl frá þeim í hjólin. Fóru þá tveir bílar úr hópnum að aðstoða þá meðan restin af hópnum kom bílnum sem braut frammhásinguna niður af jökli. Þegar nálguðumst Skálafellsjökull lentum við í því að einn bíll braut felgubolta og annar tapaði kælivökva, tafði það okkur eitthvað en náðum þó að sameina hópin aftur. um klukkan 18:00 á Laugardaginn áttum við um það bil 10km niður af Skálafellsjökli og versnaði veðrið þar til mikilla muna og færið varð þungt fyrir bilaða bílinn. Frostið var þarna komið í -23 gráður og 38m/sec , sást ekki milli bíla. ferðahraðinn var þarna orðin um 1 km á klukkutíma. Farið var að frjósa í olíugjöfum , bílar hættir að hlaða og miðstöðvar hættar að ráða við kuldan. tekin var þá ákvörðun að skilja bilaða bíla eftir ( LC80 sem var með óvirkt frammdrif og LC90 sem hélt ekki lofti í dekkjum ) eftir það gekk þetta ágætlega og vorum við komnir niður af jökli um kl 4 um nóttina. Þar var 3. jeppin úr hópnum skilin eftir með bilað frammskaft og bremsuslöngu í sundur. fjórði bíllinn var svo skilinn eftir við þjóðveg 1 30km frá Höfn með brotna felgubolta. komum við uppá Hótel um klukkan 5 um morgunin eftir tæplega sólarhring á fjöllum þar sem veðrið fór úr því að vera frábært yfir í Óveður.
meira af myndum hér
http://www.facebook.com/media/set/?set= ... fc06ce1c28
og video hér
http://www.facebook.com/photo.php?v=10200710118665829
http://www.facebook.com/photo.php?v=102 ... permPage=1
http://www.facebook.com/photo.php?v=102 ... permPage=1
http://www.facebook.com/photo.php?v=102 ... permPage=1
Vöknuðum í bongó blíðu á Föstudagsmorgun
Ekið af stað
Svartikambur í bakgrunn á leið í Jökulheima
Á drekaleið inn að Jökulheimum
Ferðahraðin var á þessu bili ( 75kmh + )
Hópurinn 42" - 46" bílar
Komum við í Jökulheimum
Frekar snjólaust vestan jökuls
Tungnárbotnar
Jökullinn var eins og gler neðst
Ekki hægt að kvarta yfir veðrinu uppá Tungnárjökli
Komnir upp á Grímsfjall
brunað niður Dyngjujökul
Hans lenti svo í því að suða á liðhúsinu gaf sig á Dyngjujökli
Það slapp þó til og skemmdi ekki boddyið á bílnum
þarna sést liðhúsið laust frá rörinu
bíllinn skilin eftir uppá Dyngjujökli þartil morgunin eftir
Komum inn í Dreka um 20:00 leitið
Laugardagsmorguninn
keyrt af augum
ferðahraðinn var frá 50 upp í 100kmh þarna niður að flæðunum
Verið að tanka bensínbílana
Flæðurnar og Dyngjujökull í bakgrunn
Dyngjujökull (Vatnajökull) í bakgrunn
Komnir uppá Dyngjujökul aftur og byrjað að laga krúserinn
Krúserinn kominn í hjólinn og þá var ekið suður jökulinn
skyggnið orðið töluvert verra en fyrr um daginn
Smá felgubolta vesen á LC80 og gat á vatnskassaslöngu á 4runner tafði okkur smá.
klukkan orðin 22:00 og þetta var hitastigið uppá Skálafellsjökli
komnir á Höfn eftir nánast sólarhring í keyrslu
EDIT.
Hér er svo leiðin sem við ókum

Síðast breytt af -Hjalti- þann 21.mar 2013, 01:07, breytt 6 sinnum samtals.
Toyota 44"runner
Arctic cat M8000 162"
Arctic cat M8000 162"
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
Flottar myndir og Patrunnerinn greinilega verið að gera sig.
Davíð Örn
-
- Innlegg: 968
- Skráður: 20.aug 2010, 08:26
- Fullt nafn: Hlynur Freyr Sigurðsson
- Bíltegund: Toyota Hilux 3.0
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
Geggjaðar myndir hjá þér og flott ferð, ekki ónýtur floti þarna á ferð
Toyota Hilux D/C '00 38" Í notkun
Toyota Hilux V6 X/C '94 38" seldur
Toyota Hilux V6 X/C '92 33" seldur
Chevy S-10 Single Cab '90 4.3 seldur
Toyota Hilux V6 X/C '94 38" seldur
Toyota Hilux V6 X/C '92 33" seldur
Chevy S-10 Single Cab '90 4.3 seldur
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
skemmtileg ferðasaga og myndir
Nissan Patrol 350tbi Chevy
Chevy Camaro Lt1
Chevy Camaro Lt1
-
- Innlegg: 270
- Skráður: 01.feb 2010, 04:35
- Fullt nafn: Kristján Y. Brynjólfsson
- Bíltegund: Nissan Patrol
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
Skemmtilegar myndir og flott saga..
-
- Innlegg: 2628
- Skráður: 29.mar 2012, 08:39
- Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
- Bíltegund: Toyota Tacoma
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
Nú vantar "like" takkann!
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
Alveg slatta af lækum á Hjalta
-
- Innlegg: 41
- Skráður: 01.nóv 2012, 13:48
- Fullt nafn: Guðni F Pétursson
- Staðsetning: Kópavogur
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
glæsilegur þráður
gaman að sjá ferðasöguna hjá fleiri hópum
gaman að sjá ferðasöguna hjá fleiri hópum
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
Hér er svo leiðin sem við ókum
Toyota 44"runner
Arctic cat M8000 162"
Arctic cat M8000 162"
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
Takk fyrir flottar myndir og góða lýsingu
Lífið er of stutt fyrir vont kaffi
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
Doror wrote:Flottar myndir og Patrunnerinn greinilega verið að gera sig.
já hann kom alveg feikivel út , nú er bara að klára pakkan og skella patrol hásingum undir hann með Toyota liðhúsum og legum að framan.
Toyota 44"runner
Arctic cat M8000 162"
Arctic cat M8000 162"
-
- Innlegg: 438
- Skráður: 07.feb 2011, 17:49
- Fullt nafn: Agnar Sæmundsson
- Bíltegund: Toyota Hilux 38''
- Staðsetning: Reykjavík
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
Skemmtileg lesning og flottar myndir !
Takk
Takk
Toyota Hilux V6 - Seldur
Toyota Hilux 2.4TDi 33" - Seldur
Toyota Hilux 2.4TDi 38" - Í notkun
Toyota Hilux 2.4TDi 33" - Seldur
Toyota Hilux 2.4TDi 38" - Í notkun
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
hvað fórstu með af olí á þessari leið
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
s.f wrote:hvað fórstu með af olí á þessari leið
um það bil 160Lítra
Toyota 44"runner
Arctic cat M8000 162"
Arctic cat M8000 162"
-
- Innlegg: 194
- Skráður: 14.jún 2012, 21:59
- Fullt nafn: Þórður Már Björnsson
- Bíltegund: Jepp Cherokee 91 4,0
- Staðsetning: Rvk
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
-Hjalti- wrote:s.f wrote:hvað fórstu með af olí á þessari leið
um það bil 160Lítra
Ertu þá að tala um Rvk - Rvk eða bara Rvk - Höfn?
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
Doddi23 wrote:-Hjalti- wrote:s.f wrote:hvað fórstu með af olí á þessari leið
um það bil 160Lítra
Ertu þá að tala um Rvk - Rvk eða bara Rvk - Höfn?
Selfoss - Höfn
fór með c.a 45Lítra frá Höfn á Selfoss
Toyota 44"runner
Arctic cat M8000 162"
Arctic cat M8000 162"
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
Ég tók eitthvað að myndum í þessari ferð líka,
nenni ómögulega að setja þær allar inn en hérna er albúmið og endilega taggið þá sem þið þekkið þarna, nokkrar myndir þarna úr hrauneyjum og af öðrum hópum
http://www.facebook.com/media/set/?set=a.10200280982780257.1073741825.1624135699&type=1&l=7dfcc4b212

1992 MMC Pajero SWB
-
- Innlegg: 194
- Skráður: 14.jún 2012, 21:59
- Fullt nafn: Þórður Már Björnsson
- Bíltegund: Jepp Cherokee 91 4,0
- Staðsetning: Rvk
Re: Of Langt Gengið , Stórferð f4x4 á Vatnajökul 14-17 Mars 2013
Oskar K wrote:Ég tók eitthvað að myndum í þessari ferð líka
Mikið af flottum myndum þarna :)
Til baka á “Ferðir og færð á fjöllum”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur