Er með Suzuki Vitara á 31" árgerð 1993 ekin 264.000 km sem ég ætla að losa mig við.
Fínt project ef einhver vill laga hann, bara nenni því ekki sjálfur.
Önnur framspyrna ónýt af riði, hjöruliðskross í framskapti á síðasta snúning, renna þarf bremsudiska að framan, nóg eftir í þeim en titrar aðeins í hemlun, pústkerfi lélegt, myndi skipta um það alla leið, kolin búin í miðstöðvarmótor, fer í gang ef bankað er í hann, þetta er það sem laga þarf ef fara á með bílinn í skoðun.
Ef hann verður notaður í varahluti þá er þarna fínn 1600 cc mótor og sjálfskipting "mótor brennir rétt innan við líter á 5000 km fresti" skipting virkar eðlilega, fer strax í gír og skiptir sér eðlilega, engin högg eða snuð. Drif , millikassi, demparar, bremsuklossar, bremsuskálar, bremsudælur og slöngur eru í fínu lagi, 31" á felgum og mælist mynsturdýpt 5 mm, brettakantar fyrir 31" og rafgeymir.
Bíllinn var rúllaður með Hammerite fyrir 2 árum vegna riðbletta, og hefur hún verndað boddýið vel.
Verð 50.000 einskisverðir íslenskir ríkisdalir.
Suzuki Vitara 1993
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 3
- Skráður: 05.feb 2013, 21:38
- Fullt nafn: Anton Smári Sigurjónsson
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 3
- Skráður: 05.feb 2013, 21:38
- Fullt nafn: Anton Smári Sigurjónsson
Re: Suzuki Vitara 1993
Lækkað verð, fer á 30.000 ef engin vill, þá fer hann í pressuna á morgun og hirði 15 kallin fyrir hann.
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 3
- Skráður: 05.feb 2013, 21:38
- Fullt nafn: Anton Smári Sigurjónsson
Re: Suzuki Vitara 1993
Seldur.
Til baka á “Vara og aukahlutir”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur