Daginn.
Hefur einhver hér reynslu af því að panta sjálfur varahluti í Toyota díselmótora? Mig kemur til með að vanta stimpla, hringi, legur og sjálfsagt eitthvað fleira dót. Ég er bara rétt að byrja að rannsaka mótorinn minn að innan.
Geta einhverjir bent mér á traustar vefverslanir sem að selja þokkalegt gæðadót á eðlilegu verði, ég geri mér grein fyrir því að ég fæ ekki það ódýrasta og það besta á sama staðnum þannig ódýrustu kittin á ebay koma líklega ekki til greina.
Borgar sig yfirleitt að standa í að panta þetta sjálfur? Eru verslanirnar hér kannski alveg samkeppnishæfar í verði og gæðum?
Reynsluboltar á þessu sviði mega endilega ausa úr viskubrunnum sínum í þessum þræði.
Kv. Haffi
Varahlutir í díselvélar.
-
- Innlegg: 1157
- Skráður: 01.aug 2010, 12:02
- Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
- Bíltegund: Nissan Patrol '98
Re: Varahlutir í díselvélar.
Ég myndi bara rannsaka tegundirnar í þessum Ebay settum, það eru oft alveg ágætis merki þó dótið sé ódýrt.
Svo borgar sig líka að googla þetta, ef þú finnur eitthvað á Ebay sem þér líst á þá er oft sem maður finnur það ódýrara ef maður googlar hlutinn.
Ég keypti stýrisdempara um daginn sem ég hafði séð á Ebay, ég googlaði þá og fann þá á útsölu í vefverslun og fékk á hálfvirði miðað við Ebay

"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"
Re: Varahlutir í díselvélar.
Takk fyrir þetta.
Hvaða merki eru ágætismerki og hvaða merki á maður að varast?
Hvaða merki eru ágætismerki og hvaða merki á maður að varast?
Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur