Postfrá Brjótur » 20.apr 2011, 20:13
Já þeir láta ekki að sér hæða hjá vegagerðinni, skella bara upp lokunum á mest allt hálendið án þess að vita neitt um ástand þess, þetta er orðin árviss atburður, en núna fara þeir hraustlega yfir strikið varðandi lokanir, finnst að þeir ættu að sjá sóma sinn í því að athuga aðstæður, því að það er fullt af SNJÓ allstaðar á hálendinu en ekki bloti og þetta veit ég fyrir víst, en það er eins og það séu ákveðin öfl sem ætli sér að gera okkur útivistarfólki og þá sérstaklega okkur sem kjósum að ferðast á jeppum erfitt fyrir, ég er nokkuð viss um að þessar lokanir verða mikið hunsaðar um þessa páskahelgi og lái ég mönnum það ekki.
Ferðasnjókveðja Helgi