Navara d22 eldsneytis bras!!!

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.
User avatar

Höfundur þráðar
joisnaer
Innlegg: 486
Skráður: 03.feb 2010, 16:03
Fullt nafn: Jóhann Snær Arnaldsson

Navara d22 eldsneytis bras!!!

Postfrá joisnaer » 25.júl 2025, 19:00

Ég er með 2004 árg af Nissan Double cab sem hegðar sér einstaklega skemmtilega núna eða hitt og heldur. Það var sett útá smá hráolíuleka í skoðun fyrir stuttu sem kom í ljós álit var útaf ryðguðum olíulögnum. Ég skipti um lagnir, skipti út "sender og pickup unitið" í tanknum, hráolíusíu og loft tæmdi kerfið eftir kúnstarinnar reglum. En núna missir hann alltaf niður olíuna ef drepið er á honum í meira en hálftíma. Prófaði að setja rafmagnsdælu til að halda olíunni uppi en það breytti engu. Hann fer oftast í gang fyrir rest, þegar maður er búinn að pumpa upp olíuna í LANGAN tíma og gengur alveg eðlilega eftir það.

Hvað veldur eiginlega?? Ég er alveg að verða lost hvað þetta varðar!


Mbk Jóhann Snær


Land Rover Defender tdi300 næstum 44" breyttur

User avatar

Járni
Stjórnandi
Innlegg: 1403
Skráður: 30.jan 2010, 22:43
Fullt nafn: Árni Björnsson
Bíltegund: Land Rover
Staðsetning: Akureyri
Hafa samband:

Re: Navara d22 eldsneytis bras!!!

Postfrá Járni » 26.júl 2025, 09:04

Sæll, hráolíusían sem þú settir í hann, er hún orginal? Það er einfalt fyrsta skref. Og þá í leiðinni að gæta þess að öll gúmmí og samskeyti við síuna séu hrein og fín.
Land Rover Defender 130 38"

User avatar

Höfundur þráðar
joisnaer
Innlegg: 486
Skráður: 03.feb 2010, 16:03
Fullt nafn: Jóhann Snær Arnaldsson

Re: Navara d22 eldsneytis bras!!!

Postfrá joisnaer » 11.aug 2025, 10:12

Þetta virðist vera komið í lag. Þetta voru af öllum líkindum pakkningarnar fyrir bakflæðislögnina ofan á spíssunum. Skipti um þær og skipti líka um allar slöngur og hosuklemmur frá síu að olíuverki og hann er búinn að rjúka í gang alltaf núna án alls vesens.
Land Rover Defender tdi300 næstum 44" breyttur


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur