Ram 3500 - Lúlli - dana 60 köggull

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.
User avatar

íbbi
Innlegg: 1452
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: Ram 3500 - Lúlli - meira bras

Postfrá íbbi » 29.feb 2020, 21:41

Ef aam 9.25 er eitthvað lík forvera hennar, þá er hún ansi solid


1996 Dodge Ram. 38" á breitingaskeiðinu
2004 Ford F150 .
1991. Toyota 4Runner 44" einnig á breytingaskeiðinu.


petrolhead
Innlegg: 343
Skráður: 19.nóv 2015, 21:00
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Bíltegund: Dodge Ram

Re: Ram 3500 - Lúlli - meira bras

Postfrá petrolhead » 29.feb 2020, 21:45

Þessi kambur lítur út eins og hann sé ný kominn heim af sveitaballi í kringum 1980
Helv svekkjelsi var þetta.
Dodge Ram 1500/2500-40"

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - meira bras

Postfrá dadikr » 29.feb 2020, 22:14

petrolhead wrote:Þessi kambur lítur út eins og hann sé ný kominn heim af sveitaballi í kringum 1980
Helv svekkjelsi var þetta.


images.jpeg
images.jpeg (7.16 KiB) Viewed 14964 times

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - meira bras

Postfrá dadikr » 29.feb 2020, 22:17

Já þetta er drullufúlt. Af hverju vera með vél með 800 Nm togi og framhásingu úr eldspítum?


Axel Jóhann
Innlegg: 290
Skráður: 11.jan 2012, 19:49
Fullt nafn: Axel Jóhann Helgason
Bíltegund: 38" Musso
Staðsetning: 800

Re: Ram 3500 - Lúlli - meira bras

Postfrá Axel Jóhann » 29.feb 2020, 22:25

Ekki það að ég þekki það nægilega vel en ætti "takan" á tönnina ekki að vera meira inná miðju, lítur út fyrir að pinion hefði mátt vera stilltur aðeins betur inná kambinn. En helvíti fúlt samt sem áður.

Miðað við hvernig tennurnar eru brotnar þá virðist álagið vera of mikið á ytri partinn á tönnunum.

Samanber þessa mynd.

2.gif
2.gif (36.98 KiB) Viewed 14959 times
1997 Musso 2.9TDI 42"
2001 Nissan Patrol 35"

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - meira bras

Postfrá dadikr » 29.feb 2020, 22:46

Axel Jóhann wrote:Ekki það að ég þekki það nægilega vel en ætti "takan" á tönnina ekki að vera meira inná miðju, lítur út fyrir að pinion hefði mátt vera stilltur aðeins betur inná kambinn. En helvíti fúlt samt sem áður.

Miðað við hvernig tennurnar eru brotnar þá virðist álagið vera of mikið á ytri partinn á tönnunum.

Samanber þessa mynd.

Takk fyrir ábendinguna. Gæti alveg verið rétt hjá þér. Vöndum vel næstu ísetningu.

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - ljós í myrkrinu

Postfrá dadikr » 29.feb 2020, 22:48

Það er allavega smá ljós í myrkrinu

20200229_224200.jpg
20200229_224200.jpg (3.21 MiB) Viewed 14951 time


Axel Jóhann
Innlegg: 290
Skráður: 11.jan 2012, 19:49
Fullt nafn: Axel Jóhann Helgason
Bíltegund: 38" Musso
Staðsetning: 800

Re: Ram 3500 - Lúlli - meira bras

Postfrá Axel Jóhann » 29.feb 2020, 23:35

Er þetta litla LED bar að lýsa þokkalega svona?
1997 Musso 2.9TDI 42"
2001 Nissan Patrol 35"

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - meira bras

Postfrá dadikr » 29.feb 2020, 23:39

Axel Jóhann wrote:Er þetta litla LED bar að lýsa þokkalega svona?

Já, ég er bara nokkuð sáttur. Þessu dóti hefur farið fram.


Axel Jóhann
Innlegg: 290
Skráður: 11.jan 2012, 19:49
Fullt nafn: Axel Jóhann Helgason
Bíltegund: 38" Musso
Staðsetning: 800

Re: Ram 3500 - Lúlli - meira bras

Postfrá Axel Jóhann » 29.feb 2020, 23:51

Já ég er sammála því, ég verslaði einmitt tvo 5" gula af aliexpress og þeir eru algjör snilld sem þokuljós og mun betri en orginal kastarar. Og það besta er verðið, held þeir hafi báðir verið undir 5.000 komnir í mínar hendur.
1997 Musso 2.9TDI 42"
2001 Nissan Patrol 35"

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - meira bras

Postfrá dadikr » 02.mar 2020, 18:12

Lúlli og Lilli verða til sýnis hjá 4x4 í kvöld kl 20 í Síðumúla 31

User avatar

jongud
Innlegg: 2623
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Ram 3500 - Lúlli

Postfrá jongud » 03.mar 2020, 11:29

Þú minntist á það í erindinu hjá Ferðaklúbbnum 4X4 að þú hefðir soðið framstuðaran með plastsuðu.
Hvenig græju notaðir þú?

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli

Postfrá dadikr » 03.mar 2020, 16:46

jongud wrote:Þú minntist á það í erindinu hjá Ferðaklúbbnum 4X4 að þú hefðir soðið framstuðaran með plastsuðu.
Hvenig græju notaðir þú?


Ég keypti þennan:
image_23017.jpg
image_23017.jpg (118.79 KiB) Viewed 14693 times


Og spennubreyti í Íhlutum

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli

Postfrá dadikr » 03.mar 2020, 16:47


User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - sérstakar þakkir til HS lausna

Postfrá dadikr » 03.mar 2020, 18:09

Ég gleymdi einu mikilvægu atriði í erindinu hjá ferðaklúbbnum 4x4 í gær. Það var að þakka Herði Sæmundssyni og hans frábæra fyrirtæki HS lausnum fyrir aðstöðu, hjálp og góð ráð í ferlinu. Hörður er snillingur!

Vefur HS lausna er:
https://www.facebook.com/851373664970028/

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - ólsen

Postfrá dadikr » 05.mar 2020, 22:04

Spilið komið á

20200305_220235.jpg
20200305_220235.jpg (2.87 MiB) Viewed 14526 times


Rafsuðukaplatengi

tengi.jpg
tengi.jpg (2.76 MiB) Viewed 13929 times


20200305_215742.jpg
20200305_215742.jpg (3.04 MiB) Viewed 14526 times
Síðast breytt af dadikr þann 16.mar 2020, 12:45, breytt 2 sinnum samtals.

User avatar

jongud
Innlegg: 2623
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Ram 3500 - Lúlli - ólsen

Postfrá jongud » 06.mar 2020, 07:48

dadikr wrote:Spilið komið á

Rafsuðukaplatengi


Hafa þessi tengi eitthvað sérstakt fram yfir "venjuleg" spilkaplatengi?
Image

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - ólsen

Postfrá dadikr » 06.mar 2020, 08:10

jongud wrote:
dadikr wrote:Spilið komið á

Rafsuðukaplatengi


Hafa þessi tengi eitthvað sérstakt fram yfir "venjuleg" spiltengi]


Ég var aðallega hrifinn af því hve vel þau eru vatnsvarin og að hægt sé að festa þau kirfilega.

Svo er það náttúrulega gamla góða sérviskan. Alltaf vera öðruvísi ef það er hægt :-)


juddi
Innlegg: 1240
Skráður: 08.mar 2010, 10:45
Fullt nafn: Dagbjartur L Herbertsson

Re: Ram 3500 - Lúlli - ólsen

Postfrá juddi » 06.mar 2020, 11:52

Snildar lausn að nota rafsuðu tengin
Daggi S:6632123 snurfus@snurfus.is

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - ólsen

Postfrá dadikr » 06.mar 2020, 12:49

juddi wrote:Snildar lausn að nota rafsuðu tengin


Hún kom frá Herði frænda mínum, eins og svo margar góðar.

User avatar

jongud
Innlegg: 2623
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Ram 3500 - Lúlli - ólsen

Postfrá jongud » 07.mar 2020, 09:47

juddi wrote:Snildar lausn að nota rafsuðu tengin


Ég held líka að þau flytji mun meiri straum heldur en hin tengin.

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - ólsen

Postfrá dadikr » 07.mar 2020, 10:17

jongud wrote:Ég held líka að þau flytji mun meiri straum heldur en hin tengin.


Ja. Ég ætla að smíða mér startkapla sem tengjast í þau.

Svo á Hörður framlengingar þannig að spilið geti líka verið aftan á bílnum ef þarf. Það er jú á prófíltengi.

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - prufutúr í snjó

Postfrá dadikr » 15.mar 2020, 21:51

Jæja. Þá er búið að prufa almennilega. Var i Nyjadal um helgina. Hvað get ég sagt. Hann bara virkar.

20200314_175052.jpg
20200314_175052.jpg (2.03 MiB) Viewed 14002 times


(Lilli var ekki eins hress. Ís í olíunni)

Nýidalur.jpg
Nýidalur.jpg (2.84 MiB) Viewed 13935 times

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - prufutúr í snjó

Postfrá dadikr » 21.mar 2020, 10:08

Meiri snjó, meiri snjó, meiri snjó

20200321_095400.jpg
20200321_095400.jpg (2.63 MiB) Viewed 13698 times

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - prufutúr í snjó

Postfrá dadikr » 02.jún 2020, 10:35

Jæja. Þá er búið að prófa bílinn slatta. Virkar bara skrambi vel. Eina sem ég sakna er milligír. Hann kemur í sumar.

Hér eru nokkrar myndir frá ferðum vorsins.

20200502_114455.jpg
20200502_114455.jpg (2.36 MiB) Viewed 12142 times


20200426_132753.jpg
20200426_132753.jpg (3.39 MiB) Viewed 12142 times


20200502_104647.jpg
20200502_104647.jpg (2.64 MiB) Viewed 12142 times


https://youtu.be/_3xl_0oP7Y4

https://youtu.be/eWnAo4N1Lv4

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - framdrifið brotið - aftur

Postfrá dadikr » 05.sep 2020, 16:31

Jæja. Allt í skrúfunni. Framdrifið brotið aftur :-(

https://youtu.be/8w5QEHuU91k

Hér er mynd af tjóninu

20200905_100708.jpg
20200905_100708.jpg (2.55 MiB) Viewed 10596 times


Nú nenni ég þessu AAM 9.25 drasli ekki lengur. Fer í dana 60.


petrolhead
Innlegg: 343
Skráður: 19.nóv 2015, 21:00
Fullt nafn: Garðar Tryggvason
Bíltegund: Dodge Ram

Re: Ram 3500 - Lúlli - framdrifið brotið - aftur

Postfrá petrolhead » 05.sep 2020, 17:00

Það er ömurlegt að lenda í þessu á nokkurra mánaða fresti, sennilega eina glóran að fara í D60 því það er ekki eins og það séu einhver voðaleg læti þegar drifið fer. Minn Ram er að vísu slatta léttari en ég var einmitt að böðlast í svona aðstæðum með kerru með sexhjóli á í tvo daga fyrir stuttu og kom heim með allt heilt.....svo já D60 fær mitt atkvæði.
Mbk
Gæi
Dodge Ram 1500/2500-40"

User avatar

Sævar Örn
Innlegg: 1917
Skráður: 31.jan 2010, 19:27
Fullt nafn: Sævar Örn
Bíltegund: Hilux
Staðsetning: Reykjavik
Hafa samband:

Re: Ram 3500 - Lúlli - framdrifið brotið - aftur

Postfrá Sævar Örn » 05.sep 2020, 20:39

En það eru líka einmitt þessar aðstæður sem valda brotum, bakk í brölti og etv. með læsingum.


Ég sá fyrir nokkrum árum styrkleikaprófun á drifum og öxlum á youtube, það vakti athygli, en kemur kannski ekki á óvart að drif sem voru með 13 tanna pinjón en 35 tanna kamb 2,70:1 voru að 70% styrkleika í bakki, svo voru drif með 8 tennur móti 41 hlutfallið 5,13:1 að 20% styrkleika í bakki miðað við áframkeyrslu. (ég set tölur inn eftir minni)


Mig minnir að annaðhvort Yukon eða Richmond gear hafi verið með þessa prófun en finn myndbandið ómögulega aftur!
Samband Íslenskra Suzukijeppaeigenda
http://sukka.is

Skúra- og ferðablogg ásamt öðrum fróðleik
http://sabi.is

User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: Ram 3500 - Lúlli - framdrifið brotið - aftur

Postfrá Kiddi » 06.sep 2020, 11:44

Það væri spennandi að sjá D60 og AAM hlutföllin hlið-við-hlið til samanburðar. Manni finnst eins og það eigi ekki að muna svona svakalega miklu á hálfrar tommu þvermáli!

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - framdrifið brotið - aftur

Postfrá dadikr » 06.sep 2020, 16:19

Takk fyrir svörin. Ég skal pósta myndum af hlutföllunum þegar ég fæ þau.

Ég hef heyrt að þessi reverse drif séu veik afturábak. Kannski það, lágt hlutfall, mekanísk læsing, mikil þyngd á framás, mikið grip og mikið tog séu eitraður kokteill.

Annars fann ég þetta ánetinu um styrk:

MOT is max output torque, COT is continuout output torque:

AAM 9. 25 Front - 4663 ft-lb MOT (no COT given)
Dana 60 Front - 5550 ft-lb MOT (1500 COT)

Daði


grimur
Innlegg: 890
Skráður: 14.mar 2010, 01:02
Fullt nafn: Grímur Jónsson

Re: Ram 3500 - Lúlli - framdrifið brotið - aftur

Postfrá grimur » 10.sep 2020, 02:01

Ég hef lengi hallast að því að stærð og tannafjöldi sé bara partur af styrk. Stífleiki keisingar og alls umbúnaðar skiptir feikna miklu máli, Toyota hefur t.d. kreist furðulega mikinn styrk út úr 8" drifunum með þessu. Gömlu 4cyl hásingarnar þoldu nánast ekki neitt, 6cyl alveg slatta mikið meira, og svo það sem er kallað 8.4" en er nánast jafn lítið með brakket afturfyrir legurnar sem lætur þetta tolla enn betur. Sama gildir pottþétt með önnur drif, smávægilegur þvermáls munur breytir kannski minna en styrkmunur í umgjörðinni....

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - framdrifið brotið - aftur

Postfrá dadikr » 10.sep 2020, 08:18

grimur wrote:Ég hef lengi hallast að því að stærð og tannafjöldi sé bara partur af styrk. Stífleiki keisingar og alls umbúnaðar skiptir feikna miklu máli, Toyota hefur t.d. kreist furðulega mikinn styrk út úr 8" drifunum með þessu. Gömlu 4cyl hásingarnar þoldu nánast ekki neitt, 6cyl alveg slatta mikið meira, og svo það sem er kallað 8.4" en er nánast jafn lítið með brakket afturfyrir legurnar sem lætur þetta tolla enn betur. Sama gildir pottþétt með önnur drif, smávægilegur þvermáls munur breytir kannski minna en styrkmunur í umgjörðinni....


Þetta er mjög góður punktur. Mig grunar að þetta sé hluti vandamálsins hjá mér.

User avatar

jongud
Innlegg: 2623
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Ram 3500 - Lúlli - framdrifið brotið - aftur

Postfrá jongud » 10.sep 2020, 09:37

grimur wrote:Ég hef lengi hallast að því að stærð og tannafjöldi sé bara partur af styrk. Stífleiki keisingar og alls umbúnaðar skiptir feikna miklu máli, Toyota hefur t.d. kreist furðulega mikinn styrk út úr 8" drifunum með þessu. Gömlu 4cyl hásingarnar þoldu nánast ekki neitt, 6cyl alveg slatta mikið meira, og svo það sem er kallað 8.4" en er nánast jafn lítið með brakket afturfyrir legurnar sem lætur þetta tolla enn betur. Sama gildir pottþétt með önnur drif, smávægilegur þvermáls munur breytir kannski minna en styrkmunur í umgjörðinni....


Mikið til í þessu, Ford 9-tomman er ansi gott dæmi um þetta. Litla legan sem heldur við nefið á pinjóninum er ekki stór, en hefur mikið að segja.
Svo eru líka til HD kögglar sem eru mun sterkari en nokkuð sem Ford hefur nokkurntíman framleitt.
9-tomma.jpg
9-tomma.jpg (160.69 KiB) Viewed 10295 times

User avatar

Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: Ram 3500 - Lúlli - framdrifið brotið - aftur

Postfrá Startarinn » 10.sep 2020, 20:49

grimur wrote:...... og svo það sem er kallað 8.4" en er nánast jafn lítið með brakket afturfyrir legurnar sem lætur þetta tolla enn betur. .


Er nokkuð því til fyrirstöðu að útbúa brakket milli legubakkana og búa til smá auka skáp á hásinguna til að koma því fyrir?
Eflaust minni vinna að gera það en að skipta um hlutföll. Ég hef bara einusinni still inn hlutföll og öðlaðist þar fullann skilning á því afhverju menn borga öðrum fyrir að stilla þetta fyrir sig. Djöfull var það leiðinlegt og tímafrekt
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"


grimur
Innlegg: 890
Skráður: 14.mar 2010, 01:02
Fullt nafn: Grímur Jónsson

Re: Ram 3500 - Lúlli - framdrifið brotið - aftur

Postfrá grimur » 10.sep 2020, 21:41

Held að það sé bara ekki neitt sem kemur í veg fyrir það. Það eru settar svipaðar styrkingar á höfuðlegur til að halda sveifarásnum til friðs í sæmilega tjúnnuðum mótorum.
Þetta vill allt gliðna og ganga til undir miklu álagi, ég er alveg sannfærður um að ef maður gæti mælt hvað þetta hreyfist mikið þá fengi maður sæmilegan hroll. Að spenna yfir svona U laga hönnun til að loka hringnum gerir helling.
Þessi 8.4" drif sem er held ég að finna helst í Tacoma(ég á eina með svona, rörið er meira kassalaga um kúluna, 10mm stöddar fyrir köggulinn og engin læsing original) eru að ég held með þessar baulur og spöngina í einu steyptu stykki, en það er örugglega ekkert heilagt. Hef ekkert opnað þetta, enda bara götutík eins og er.


juddi
Innlegg: 1240
Skráður: 08.mar 2010, 10:45
Fullt nafn: Dagbjartur L Herbertsson

Re: Ram 3500 - Lúlli - framdrifið brotið - aftur

Postfrá juddi » 10.sep 2020, 23:22

Hægt að fá driflok á sumar hasingar sem styrkja kúluna

https://www.strangeengineering.net/prod ... race.html/
Daggi S:6632123 snurfus@snurfus.is

User avatar

jongud
Innlegg: 2623
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Ram 3500 - Lúlli - framdrifið brotið - aftur

Postfrá jongud » 11.sep 2020, 08:32

Styrkingin á Toyota 8.4 drifinu er sambyggð legubökkunum báðum megin. Styrkurinn er aðallega út af því.
Hásingarlokin með boltunum gera ekkert nema styðja við legubakkana, og svo er hægt að setja styrktarslár til að hindra að hásingin bogni.
Ef ég vildi styrkja hásingu á svipaðan hátt og 8.4 köggulin þá myndi ég setja blindbolta sem héldu legubökkunum og skrúfa svo ferkanntaða grind sem legðist ofan á alla fjóra blindboltana. En það yrði að vera grind úr ansi sterku stáli, en samt yrði að beygja það til að grindin slyppi við kambinn.

Taco_arb.jpg
Toyota 8.4 drif
Taco_arb.jpg (77.56 KiB) Viewed 10165 times

LPW_axle_tube_housing_brace_kit.png
Styrktarslár
LPW_axle_tube_housing_brace_kit.png (237.65 KiB) Viewed 10165 times

User avatar

Höfundur þráðar
dadikr
Innlegg: 158
Skráður: 05.feb 2010, 08:50
Fullt nafn: Daði Már Kristófersson
Bíltegund: Chevrolet K30

Re: Ram 3500 - Lúlli - framdrifið brotið - aftur

Postfrá dadikr » 11.sep 2020, 10:50

Þetta er bráð skemmtileg umræða. Nú stór sé ég eftir að kaupa allt í Dana 60. Hefði kannski átt að prófa þetta fyrst.

Daði

User avatar

jongud
Innlegg: 2623
Skráður: 29.mar 2012, 08:39
Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
Bíltegund: Toyota Tacoma

Re: Ram 3500 - Lúlli - framdrifið brotið - aftur

Postfrá jongud » 11.sep 2020, 10:54

dadikr wrote:Þetta er bráð skemmtileg umræða. Nú stór sé ég eftir að kaupa allt í Dana 60. Hefði kannski átt að prófa þetta fyrst.

Daði


Það eru aldrei mistök að kaupa Dana 60!


grimur
Innlegg: 890
Skráður: 14.mar 2010, 01:02
Fullt nafn: Grímur Jónsson

Re: Ram 3500 - Lúlli - framdrifið brotið - aftur

Postfrá grimur » 11.sep 2020, 17:11

D60 er bara svona tilbúin lausn sem virkar. Hið besta mál.
Svona styrkingar og dót er alveg fín pæling og líka gott að hafa þetta allt í huga þegar nýtt dót kemur, uppá að sjá fyrir hvað verður til vandræða og hvað ekki.
Svo er oftast minna pláss að framan fyrir sverari lok, styrkingar og drasl, en vissulega eru þessar Dana hásingar hálfgerð liðamótaapparöt finnst manni stundum, stungið saman og punktað eitthvað, oft svert í rörunum jú, en óttalega vitlaus hönnun finnst mér svona burðarþolslega séð.


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 12 gestir