andrib85 wrote:Bskati wrote:Maggi wrote:þarf þarf að lengja nefið á honum mikið til að rörið geti fjaðrað upp fyrir framan mótor? (ef mótornum er troðið inní hvalbak?)
Helvíti flottur bíll.
kv
Maggi
IFS alla leið, þá getur þetta fjaðrað uppí húdd :)
hann þarf að lengjast slatta og ég er ekki að fara í það núna í þessari törn, svo væri helvíti mikil vinna að fara smíða IFS upp frá grunni. ég mundi örugglega prófa IFS ef ég væri að breyta honum frá því að vera óbreyttur, en ég ætla að vinna með þetta. svo er hann frekar lágur miðað við lengd og breydd milli hjóla. á 44" var hann svipað hár ef ekki lægri en flestir 38" bílar sem hann stóð við hliðina á. svo er líka markmiðið að vera með bíl sem er góður í öllu en ekki bestur í einhverju einu. það er mjög erfitt að smíða bíl sem er bestur í öllum aðstæðum. enn það verður verðugt verkefni einhvern tíman að reyna gera það með öðrum bíl þá.
Ég er nú ekki sammála því að það sé mikið meiri vinna að smíða IFS, menn eru bara ekki vanir því. Kannski aðeins meiri vinna, en ekki mikið.
En það er satt, maður þarf að eiga N+1 bíl, þar sem N er núverandi fjöldi bíla