EGT og BOOST mælar

User avatar

Höfundur þráðar
Seraphim
Innlegg: 62
Skráður: 07.feb 2010, 17:26
Fullt nafn: Þorvaldur Helgi Sigurpálsson
Staðsetning: Akureyri

EGT og BOOST mælar

Postfrá Seraphim » 10.feb 2014, 20:45

Sælir/sælar

Þar sem kominn er Partol með 3ja lítra handsprengju í húddinu á heimilið þá er vert að fara að velta fyrir sér fyrirbyggjandi aðgerðum.

Mér hefur skilist á erlendum þráðum að það sé frekar slök stjórnun á túrbóþrýstingi og olíumagni með þeim afleiðingum að pústhiti getur orðið ef hár og þar af leiðandi grandast jafnvel stimplar.

Ég hef lesið að menn setji hiklaust í þetta EGT og BOOST mæla og þá spyr ég.

Eru digital mælar með viðvörunarljósum nothæfir, er svörun í þeim nægilega hröð? Er einhver reynsla á þannig hjá jeppamönnum?


Kveðja
Þorvaldur Helgi


jwolf
Innlegg: 32
Skráður: 26.aug 2013, 08:34
Fullt nafn: Jörgen Wolfram Gunnarsson
Bíltegund: FORD

Re: EGT og BOOST mælar

Postfrá jwolf » 10.feb 2014, 22:30

Digital er mun betra en annað.
Ég á svona til á lager, EGT og Boost í sama mæli með viðvörunum og öllu.

User avatar

Bskati
Innlegg: 279
Skráður: 01.júl 2011, 19:19
Fullt nafn: Baldur Gunnarsson
Bíltegund: Rauður Hilux
Staðsetning: Kópavogur

Re: EGT og BOOST mælar

Postfrá Bskati » 10.feb 2014, 22:35

ég er með digital mæli sem er tvöfaldur, bæði boost og EGT, mjög hröð svörun, forritanleg viðvörunarljós. Ég er mjög ánægður með hann. Þessir mælar fást hjá Sturlaugi Jónssyni & Co, talaðu við Jörgen.

kv
Baldur
1986 Lada Niva
2003 Toyota Hilux DC 38"


Til baka á “Almennt spjall”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur