Cherokee af orginal yfir á 44"

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 26.nóv 2013, 19:58

Hjörtur: svarið er bæði já og nei, þetta sleppur svona til þess að gera togstöngin vísar aðeins fram en það er voða lítið en það sem fer mest í mig er hversu mikið hún hallar. ég þarf að leysa það á einhvern hátt reikna með að það gerist með annari stýrismaskínu, annars er ég ekki viss.

Annars er þetta verkefni komið í salt þangað til 18-20 des vegna vinnu, þá mætir maður í land aftur fullur af hugmyndum og reynir að klára þetta þannig að hann verði kominn með skoðun helst ekki seinna en í febrúar.


Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)

User avatar

Subbi
Innlegg: 282
Skráður: 05.jan 2013, 00:23
Fullt nafn: Guðmundur Hj Falk
Bíltegund: GMC Suburban

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Subbi » 10.des 2013, 03:08

tel að besta lausnin til að fá stýrisganginn svo sem gott láréttan og passlega vel frá hásingu sé Reverse Stýrismaskína til að mynda er var þetta svipað hjá mér og leist mér illa á að fá mér lengri arm en prufaði og það bætti ekki neitt hjá mér nema að minnka hallan en stöngin var samt sem áður óþægilega nálægt drifkúlu og ákvað ég að fara í Reverse dælu sem ég fann úr gömlum Ford van og passaði hún beint í eina sem þurfti að breyta var að snitta út fyrir stærri boltum sem voru í gm en það voru 14 mm boltar þar en aðeins 12 mm boltar í Ford

myndi skoða þetta ef þér langar til að fá minni bratta á dótið ég er með togstöngina alveg lárétta framan við hásingu og bilið er mjög gott og bíllinn leggur léttar á en það var meiri þvingun á orginal maskínu vegna þess að það var svo vitlaust horn milli togstangar og svo arms á Stýrisdælu

en kannski er það ekki eins hjá þér að þetta liggi of nálægt drifkúlu en ég færði hásingu fram um 17 cm og orginal maskínan var því full aftarlega á grind
Kemst allavega þó hægt fari

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 28.des 2013, 22:04

jæja þá er eitthvað farið að gerast aftur í þessu verkefni, framendinn var settur á ís í bili því að hann stendur jú í framfæturnar.

ákveðið var að rífa draslið undan að aftan og græja meira pláss í leiðinni fyrir tankinn og fleira.

20131227_163430.jpg
hásingin farin, tankurinn líka
20131227_163430.jpg (108.25 KiB) Viewed 18939 times


20131228_171930.jpg
varadekks holan fjarlægð til að getað hækkað tankinn upp
20131228_171930.jpg (121.88 KiB) Viewed 18939 times


20131228_190245.jpg
platan fína sem sléttir úr gólfinu í skottinu
20131228_190245.jpg (112.94 KiB) Viewed 18939 times


20131228_212851.jpg
aðeins byrjaður að skera til að sjá stöðuna hvar hásingin verður til að vita hvernig tanka festingarnar verða
20131228_212851.jpg (117.67 KiB) Viewed 18939 times


Svo verða menn bara að reyna að vera duglegir næstu misseri til að maður sjái einhvern tíman fyrir endann á þessu.
En alltaf bætast nú við aukaverkefni sem voru ekki fyrir séð.
Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)


Tollinn
Innlegg: 347
Skráður: 29.mar 2013, 22:24
Fullt nafn: Þorvaldur Einarsson

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Tollinn » 28.des 2013, 22:39

Þessi verður svakalegur, hlakka til að sjá útkomuna.

kv Tolli

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá jeepson » 28.des 2013, 23:54

Flottur. Maður kíkir kanski annað kvöld í skúrin hjá ykkur og skoðar þetta :)
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 29.des 2013, 18:55

ávallt velkominn
Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá jeepson » 31.des 2013, 01:30

Ég fór og skoðaði projectið hjá honum Atla. Þetta lofar bara góðu og það verður gaman að sjá han ryðjast áfram í snjónum :)
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn

User avatar

joisnaer
Innlegg: 482
Skráður: 03.feb 2010, 16:03
Fullt nafn: Jóhann Snær Arnaldsson

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá joisnaer » 31.des 2013, 01:32

djöfull er þetta flott hjá þér, ég hlakka mikið til að sjá hvað þetta ofurtæki á eftir að fara og hlakka til að geta ferðast kanski með þér ;)
Land Rover Defender tdi300 næstum 44" breyttur


HemmiIsleifs
Innlegg: 8
Skráður: 25.des 2013, 00:26
Fullt nafn: Hermann Ísleifsson
Bíltegund: LC80

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá HemmiIsleifs » 02.jan 2014, 10:41

Glæsilegur hjá þér Atli! :) Verður gaman að sjá þessa græju í ACTION!!!

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 04.jan 2014, 19:37

þá er tankavesenið að verða búið og menn fóru langt með það að skera úr að aftan í dag.

verst að skottið verður ekki neitt nema innri bretti og bensín áfylling, ekkert pláss fyrir farangur.

20131230_171424.jpg
svona var tankahlífin
20131230_171424.jpg (127.37 KiB) Viewed 17625 times


20140104_162134.jpg
kominn í þessa stöðu núna búið að hækka tankinn um 23 cm
20140104_162134.jpg (131.91 KiB) Viewed 17625 times


20140104_162114.jpg
slöngurnar koma þá inní bíl, þarf að græja hlíf yfir þær og koma þeim í áfyllinguna.
20140104_162114.jpg (137.57 KiB) Viewed 17625 times


20140104_185819.jpg
búið að skera vel úr innri brettunum
20140104_185819.jpg (150.92 KiB) Viewed 17625 times


hafið verk þá hálfnað er
Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)


silli525
Innlegg: 109
Skráður: 27.okt 2011, 08:54
Fullt nafn: Sigvaldi Þ Emilsson

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá silli525 » 06.jan 2014, 06:29

Alveg djöfullegt að þurfa að vera með slöngurnar inní miðju skotti. Það var búið að færa tankinn upp í mínum Grand þegar ég kaupi hann og slöngurnar eru teknar í gegnum "grindina" og þaðan uppí áfyllingarstútinn


kolatogari
Innlegg: 157
Skráður: 23.okt 2010, 20:27
Fullt nafn: Hjalti Búi Kristbjörnsson
Bíltegund: Jeep Grand Cherokee
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá kolatogari » 06.jan 2014, 09:50

Já sæll. Mikið var lengi að fatta hvaða Atli þetta væri, enda sjalda heyrt þig kallaðann neitt annað er litla brósa. Hélt þú hétir það. Það var ekki fyrr en Guðbjörn nokkur Noregsfari benti mér á hver þetta væri.
En allavega flott breyting hjá þér. I hygg að þessi mótor verði nú ekki lengi í hjá þér.

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 07.jan 2014, 01:15

já ég er alveg sammála því að þetta sé djöfullegt að vera með slöngurnar inni í bíl, en ég lagði bara ekki í það að taka úr "grindinni" þegar ég var búinn að taka þetta mikið úr innri brettunum að aftan. (fyrir utan að mér leist ekki á það vegna þess hversu veiklulegt þetta er allt.)

Hjalti: það vantar stundum að það séu myndir af viðkomandi svo að maður kveiki fyrr á hver sé bakvið nafnið.

svo sem lítið búið að gerast nýlega. Bílinn er þó farinn að standa í gormana að aftan þótt að allar stýfur vanti.

bara einhver flatjárn sem halda dótinu svona c.a. á sínum stað.

20140106_151222.jpg
Svona situr greyjið
20140106_151222.jpg (114.01 KiB) Viewed 13045 times


20140106_151204.jpg
svona er hann nema að það er búið að skera svolítið mér úr fyrir ofan dekkið n.b. hann stendur ekki í gormana á þessari mynd
20140106_151204.jpg (110.54 KiB) Viewed 13045 times
Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)


kolatogari
Innlegg: 157
Skráður: 23.okt 2010, 20:27
Fullt nafn: Hjalti Búi Kristbjörnsson
Bíltegund: Jeep Grand Cherokee
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá kolatogari » 07.jan 2014, 18:58

Gormurinn virkar skakkur á þessari mynd Ætlaru að vera með svona stutta gormar?

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 09.jan 2014, 12:17

Ja þađ var hugmyndin ad byrja međ orginal dótiđ, Snorri Smali (kvennagull) var samt búinn ađ lata mig hafa nyja RR gorma frá BSA en þađ ma alltaf skifta aftur.

Gormurinn er svona skakkur þvì engin þverstýfa er ađ aftan.
Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)


kolatogari
Innlegg: 157
Skráður: 23.okt 2010, 20:27
Fullt nafn: Hjalti Búi Kristbjörnsson
Bíltegund: Jeep Grand Cherokee
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá kolatogari » 10.jan 2014, 20:43

Enda eru þessar þverstífur bara óþarfa aukabúnaður

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 21.feb 2014, 17:09

jæja þá er eitthvað farið að gerast í þessu verkefni aftur.

það er búið að versla Bremsudiska undan Suzuki jimny og bremsudælur úr Audi 100 með því er maður þá kominn með diskabremsur og handbremsu út í hjóli.
eins er búið að snikka það til að hásingunni en á eftir að sjóða millistykkið á hásinguna.

Svo er verið að breyta hönnuninni á þverstýfunni að aftan, dekkin taka óþarflega mikið í demparana þegar bíllinn fjaðrar.

eins klikkaði eitthvað í reikningunum því að þegar bíllinn misfjaðrar að aftan þá virðist þurfa að skera um 5-7 cm í viðbót úr.

en innri brettin eru orðin eins og þau eiga að vera

20120101_004302.jpg
Innri bretti
20120101_004302.jpg (94.19 KiB) Viewed 12422 times


Smíða kveðja Atli
Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)

User avatar

Subbi
Innlegg: 282
Skráður: 05.jan 2013, 00:23
Fullt nafn: Guðmundur Hj Falk
Bíltegund: GMC Suburban

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Subbi » 21.feb 2014, 20:26

Glæsilegt breikkar hressilega :)
Kemst allavega þó hægt fari

User avatar

Gummi Árna
Innlegg: 60
Skráður: 09.apr 2010, 07:55
Fullt nafn: Guðmundur Árnason

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Gummi Árna » 22.feb 2014, 18:06

Líst vel á þetta hjá þér, er sjálfur með einn á 41" Þú gerir þetta mjög svipað og ég með tankinn færðan aftur og upp en hásing að framan er með orginal stífum og gorma/dempara plattinn á hásingu er færðu aftur um 6cm og upp um 13cm minnir mig

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 22.feb 2014, 19:44

Subbi wrote:Glæsilegt breikkar hressilega :)


já hann gerir það þrátt fyrir að scout hásingarnar séu 10 cm mjórri en orginal hásingarnar.
Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 23.feb 2014, 20:44

núna er hlutirnir að verða góðir að aftan. búinn að útskrifa fjöðrunar kerfið og kominn á diska í stað skálabremsa. (bara eftir að leggja bremsurörin)

20140222_123811.jpg
Bremsu dælan úr audi 100
20140222_123811.jpg (106.89 KiB) Viewed 12177 times


20140222_190253.jpg
Svona er endanlega hönnun á fjöðruninni
20140222_190253.jpg (119.6 KiB) Viewed 12177 times

Reyndar búinn að snikka þverstýfu turninn á hásingunni aðeins til svo að hann sé ekki alveg svona út úr kú.

20140223_155612.jpg
framskaftið, búinn að bæta nokkrum cm við það.
20140223_155612.jpg (127.64 KiB) Viewed 12177 times

framskaftið lengt í skúrnum eins og öll önnur vinna.

20140223_155622.jpg
hafa menn ekki verið að breyta þessu ?
20140223_155622.jpg (116.91 KiB) Viewed 12177 times

svo er spurning hér í lokin, hafa menn ekki verið að breyta þessum millikössum til að losna við dragliðinn úr kassanum og setja hann á skaftið ???

veit einhver hvað það er mikil vinna og hvað þarf að gera ?? eða er hægt að kaupa tilbúin kitt til að standa í þessu. ég hef engin kitt fundið á netinu.

Kv. Atli

svo vill ég þakka snilla og tilla fyrir góðan 54" þráð hann hefur leist ýmis vandamál hjá mér.
Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)

User avatar

Stóri
Innlegg: 145
Skráður: 14.jan 2011, 23:54
Fullt nafn: Kristófer Helgi Sigurðsson
Bíltegund: JEEP
Staðsetning: Borgarnes
Hafa samband:

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Stóri » 23.feb 2014, 20:51

fer eftir því hvaða kassa þú ert með ? heitir slip yoke eliminator eða SYE og þú ættir að fara niðurstöður úr google, þetta eru tilbúin sett, allaveganna fyrir 231 og 242 kassana, hef ekki skoðað fyrir fleiri...

Kristófer
Kristófer Helgi Sigurðsson
Tæknimaður
JEEP MAÐUR !

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 23.feb 2014, 21:54

Snilld takk fyrir þetta.
Ég er með 242 svo þetta ætti að finnast.
Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)


Dodge
Innlegg: 288
Skráður: 05.okt 2010, 15:05
Fullt nafn: Stefán Örn Steinþórsson
Bíltegund: Jeep Wrangler
Staðsetning: Akureyri

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Dodge » 23.feb 2014, 22:22

Það er engin ástæða til að breita þessu nema í wrangler, þar sem skaftið er 30cm og snarhallar.

Svona dragliður er miklu betri búnaður en þetta plastfóðraða drasl sem er á sköftunum, bara svo lengi sem það er ekki mikið hliðarátak á þá

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 23.feb 2014, 22:38

Dodge wrote:Það er engin ástæða til að breita þessu nema í wrangler, þar sem skaftið er 30cm og snarhallar.

Svona dragliður er miklu betri búnaður en þetta plastfóðraða drasl sem er á sköftunum, bara svo lengi sem það er ekki mikið hliðarátak á þá



Já það er reyndar verið að hugsa til framtíðar núna, ég var að spá í að reyna að koma diskabremsu á drifskaftið svona í framtíðinni.

Þá gengur ekki alveg að vera með 30 cm hulsu út út millikassanum, eins ef maður fer í lowgear þá styttist skaftið töluvert og verður krappara.

ekki það, ég þekki það ekki hvort er betra eða verra þar sem þetta er fyrsti bíllinn minn með svona draglið og ég hef engu yfir að kvarta enn.
Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)

User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Kiddi » 23.feb 2014, 23:53

Ef það á að nota svona draglið í millikassa þá þarf bara að passa að hann sé ekki orðinn ryðgaður. Segjum að það sé tekinn óbreyttur bíll þar sem það hefur verið lítil hreyfing á þessu og liðurinn orðinn ryðgaður þar sem hann stendur út úr kassanum. Síðan er bílnum breytt og afstaðan breytist, fjöðrunin er meiri og meiri færsla á draglið og þá getur ryðgaða svæðið farið í pakkdósina og allt byrjað að leka. Ef það er ekki að gerast og færslan í dragliðnum er næg þá á þetta ekkert að vera vandræðabúnaður.

Nú ef þú vilt endilega losna við þetta þá tekurðu dragliðinn, skerð af honum og sýður flangs á hann sem passar við flangs sem þú ert þá með á drifskaftinu hvort sem það er þá einfaldur eða tvöfaldur liður. Það þarf að passa að renna brjóst á flangsinn sem passar við þann flangs sem kemur á móti svo boltarnir séu ekki að taka allt átakið. Svo er öxullinn í millikassanum styttur, borað í hann og snittað fyrir 10mm bolta sem heldur flangsinum uppá. Svona er þetta hjá mér á 231 kassa og virkar flott, held að tvöfaldi liðurinn sé ættaður úr GM eða Dodge pallbíl er bara ekki með það á hreinu. Sé að vísu að þú ert með mikið lengri stút aftaná millikassanum en ég það er spurning hvort rillurnar séu bara svona langar og það sé hægt að stytta stútinn eða fá jafnvel styttri stút af öðrum kassa.

Allavega, þá er þetta ekki tiltökumál svona miðað við annað sem þú hefur verið að brasa hérna!

User avatar

MixMaster2000
Innlegg: 101
Skráður: 05.des 2011, 20:41
Fullt nafn: Heiðar Þorri Halldórsson
Bíltegund: Ford Bronco 1974

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá MixMaster2000 » 24.feb 2014, 14:16

Sæll Atli. Það eru til nokkrar leiðir til að græja þetta eins og þú sérð ef þú skoðar google aðeins.
Svo er hægt að kaupa kitt sem eru með styttri stút og sverari öxli.
Það er svoleiðis aftaná 231 kassanum í bronconum og ég mæli allveg með því.

kv Heiðar
ps. ég bjalla á þig þegar ég kem í land
Ford Bronco 1974, 351W EFI
Polaris 800 RMK 155
Polaris Fusion, 900

User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Kiddi » 24.feb 2014, 15:24

Ég renndi við í skúrnum og tók mynd af þessu hjá mér af því að kassinn er uppá borði

En þetta er líka alveg tvennt ólíkt með 231 og 242 kassana. Það er ekkert til í 242 nema eitthvað svona og þá er alveg eins hægt að gera það bara sjálfur. Nú síðan er þessi 242 kassi sennilega 242HD af myndunum að dæma og þá nú þegar með 32 rillu öxul afturúr
Viðhengi
2014-02-24 12.22.35.jpg
2014-02-24 12.22.35.jpg (136.05 KiB) Viewed 12054 times
2014-02-24 12.22.45.jpg
2014-02-24 12.22.45.jpg (143.2 KiB) Viewed 12054 times
2014-02-24 12.23.12.jpg
2014-02-24 12.23.12.jpg (120.92 KiB) Viewed 12054 times


silli525
Innlegg: 109
Skráður: 27.okt 2011, 08:54
Fullt nafn: Sigvaldi Þ Emilsson

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá silli525 » 24.feb 2014, 18:20

http://csloffroad.com/wj242hdslipyokeel ... -iror.aspx


Kostar nú ekki mikið svona dót, spurning hversu gott þetta er.....

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 24.feb 2014, 18:35

ég þakka góð svör það verður klárlega að skoða þennan möguleika eitthvað betur, því aðalhugmyndin hjá mér var að losna við "stútinn" sem er á neðstu myndinni hjá kidda.

Kittið sem Sigvaldi bendir á leysir þann vanda að mestu

Þá væri hægt að koma handbremsunni fyrir á þeim part á millikassanum, en maður verður greinilega bara að gefa sér smá tíma í það að rífa kassann og skoða almennilega.

en já Heiðar láttu heyra í þér, þú ert sá maður sem þekkir þetta ameríska dót best af mínum vinum.

Kv. Atli
Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)

User avatar

MixMaster2000
Innlegg: 101
Skráður: 05.des 2011, 20:41
Fullt nafn: Heiðar Þorri Halldórsson
Bíltegund: Ford Bronco 1974

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá MixMaster2000 » 24.feb 2014, 21:47

Það eru til kitt sem saman standa af styttum og endur ríluðum öxli og stút af nv kassa.
http://www.4xshaft.com/SYE_detail.asp
http://www.4xshaft.com/SYE/242LateDesignLatetransfercase27spline.html

Þú getur nátturlega líka stytt öxulinn sjálfur og látið skerpu ríla hann fyrir þig. Og stytt stútinn sjálfur.
http://www.naxja.org/forum/showthread.php?t=83758 http://www.jeepforum.com/forum/f11/hack-n-tap-re-yolk-674154/

Hvort ertu með 27 eða 32 rillu öxul?

kv Heiðar
Ford Bronco 1974, 351W EFI
Polaris 800 RMK 155
Polaris Fusion, 900

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 24.feb 2014, 23:25

Það er 32 rílur

já líst vel á þennan PAPXJ, þetta er eitthvað sem maður á ekki að eiga í neinum svakalegum vandræðum með, jafn vel þótt maður smíði bara allan stútinn upp aftur.

en ef maður hugsar þetta út frá tíma vs peningar þá er líklega ódýrara að panta settið sem Silli benti á

en það gerðist lítið í skúrnum í kvöld smellti stuðaranum aftur á bílinn og dráttarbeislið undir.
fór svo að máta kannta,
ég á 2 sett af könntum af hilux 1sett af 80-88 bílnum og 1sett af 89-97 bílnum ég held að ég reyni að nota kanntana af 89-97 luxanum, það kemur allt í lagi út.

20140224_224503.jpg
20140224_224503.jpg (146.01 KiB) Viewed 11938 times

20140224_221425.jpg
20140224_221425.jpg (108.44 KiB) Viewed 11938 times

20140224_221341.jpg
20140224_221341.jpg (124.37 KiB) Viewed 11938 times

20140224_224514.jpg
20140224_224514.jpg (115.28 KiB) Viewed 11938 times


þarf aðeins að modda þá til sum sé lengja og breikka. og að sjálfsögðu laga þá að boddyinu

kv. Atli
Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)


silli525
Innlegg: 109
Skráður: 27.okt 2011, 08:54
Fullt nafn: Sigvaldi Þ Emilsson

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá silli525 » 25.feb 2014, 05:04

Kemur vel út með þessa kanta, sérstaklega að aftan. Gott að þurfa ekki að vera með kant inn á hurðina. Það er leiðinlega þröngt að ganga um þessa bíla þegar kanturinn nær inná hurðina.

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 26.feb 2014, 23:37

jæja eftir umræðuna um styttinguna á millikassanum var ákveðið að taka bara á þessu og láta vaða.

20140226_103619.jpg
stúturinn
20140226_103619.jpg (125.29 KiB) Viewed 11851 time

20140226_103629.jpg
svona leit þetta út þegar var búið að taka drifskaftið af
20140226_103629.jpg (132.92 KiB) Viewed 11851 time

20140226_121314.jpg
draslið rennt niður og stytt
20140226_121314.jpg (151.62 KiB) Viewed 11851 time

20140226_150629.jpg
ABS hjólið pressað af öxlinum á gömlu hásingunni til að fá hraða signal aftur.
20140226_150629.jpg (108.59 KiB) Viewed 11851 time

20140226_220251.jpg
smíðuð plata til að loka kassanum aftur og ABS skynjararnir settir við
20140226_220251.jpg (120.73 KiB) Viewed 11851 time


flangs settur upp fyrir toyotu hjörulið svo að það sé örlítið meira úrval af krossum héðan úr skúrnum.

Þá er bara eftir að ákveða hversu margar tennur þarf að fjarlægja úr ABS kransinum til að bíllinn verði nokkuð réttur á hraða mælinum.

svo var smíðað ljótasta box sem sett hefur verið í bíl, til að hylja slöngurnar fyrir bensín áfyllinguna.
20140225_182343.jpg
boxið
20140225_182343.jpg (132.79 KiB) Viewed 11851 time


Kv. Atli
Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)

User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Kiddi » 26.feb 2014, 23:54

Þetta er flott lausn, maður gerir auðvitað ráð fyrir að skynjarafestingin eigi eftir að verða eitthvað verklegri? Það er spurning hvort það geti verið nóg að lagfæra hraðamælismerkið bara með hraðamælisbreyti frá Samrás í staðinn fyrir að fikta í kransinum?

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 27.feb 2014, 00:00

skynjara festingarnar verða svona til að byrja með, sjá hvort þetta virkar ef svo er þá verður þetta smíðað upp.

það er bara svo helvíti mikið sem þarf að breyta merkinu því drifsköftin snúast jú 5X hraðar en öxlarnir svo að ef ég væri á 100 Km/klst myndi mælirinn sýna 500 Km/klst, sem er nokkuð flott svona að vissu leiti.
svo er góður maður hér í bæ sem á tölvu fyrir bílinn sem getur breytt dekkja stærðinni svo það væri hægt að fín stilla þannig.
Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)


Arni Gunnars
Innlegg: 8
Skráður: 21.feb 2011, 13:09
Fullt nafn: Árni Gunnarsson

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Arni Gunnars » 27.feb 2014, 00:13

Sæll og flottur þráður hjá þér,
þú veist að það er líka speed signal í sjálfskiptingunni :)
ég notaði það og fékk svo hraðamæla breiti hjá samrás.

Kv. Árni

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 27.feb 2014, 00:18

Þakka þér fyrir það Árni

en þá verð ég að spyrja afhverju sýndi bíllinn engan hraða á orginal hásingunum þegar ég var búinn að taka Abs skynjarana frá og hengja þá upp ????? þá var eins og það væri ekkert merki.

er þá merkið úr skiftingunni aðalmerki og abs leiðréttingar stuðull ???

eða hvernig í fjandanum virkar þetta.

Kv. Atli
Síðast breytt af Atttto þann 27.feb 2014, 13:07, breytt 1 sinni samtals.
Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)

User avatar

StefánDal
Innlegg: 1224
Skráður: 23.mar 2010, 21:21
Fullt nafn: Stefán Hrannar Dal Björnsson
Bíltegund: Toyota Hilux

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá StefánDal » 27.feb 2014, 00:22

Þetta er flott smíði hjá þér. Sérðu ekki ástæðu til þess að styrkja festingarnar fyrir skynjarana meira? Td. með gjörð í kringum þá?

User avatar

Höfundur þráðar
Atttto
Innlegg: 122
Skráður: 18.mar 2012, 23:38
Fullt nafn: Atli Þorsteinsson
Bíltegund: Grand cherokee
Staðsetning: Reyđarfjörđur

Re: Cherokee af orginal yfir á 44"

Postfrá Atttto » 27.feb 2014, 00:34

Atttto wrote:skynjara festingarnar verða svona til að byrja með, sjá hvort þetta virkar ef svo er þá verður þetta smíðað upp.


Þessu verður breytt ef hraðamerkið er í lagi
Ef þú kemst þađ ekki þá þarftu meira afl

Ford F-150
44" Grand Cherokee (fyrrverandi)


Til baka á “Jeppinn minn”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 27 gestir