Af hverju ættli þetta fólk sé ekki bara nafngreint ?
þau kæmu þá sjálfsagt nokkuð hratt og gerðu upp reikninginn.
Ef þetta kemst í tísku þá fara allir að varast að veita hjálparhönd í svona málum eins og t.d. þegar björgunarsveitir og fleiri eru látnir sitja uppi með reikninginn þegar þeir eru búnir að draga upp bíla sem skemmast við það.
Það skal enginn segja mér að það sé ekki alltaf einhver í jafn stórum hóp eins og t.d. hérna sem veit ekki hverjir þetta voru.
http://www.pressan.is/Frettir/Lesafrett ... a-er-ljott
Fingralangir Ferðalangar
-
- Innlegg: 2700
- Skráður: 29.mar 2012, 08:39
- Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
- Bíltegund: Toyota Tacoma
Re: Fingralangir Ferðalangar
Það er spurning hvort björgunarsveitin hafi yfirhöfuð vitneskju um hverjir þetta séu. Þegar ég var að skreppa eftir fólki upp á Fjarðarheiði og Öxi þá var maður ekkert að hafa fyrir að taka niður nöfn og símanúmer, hvað þá bílnúmer. Möguleiki að Neyðarlínan hafi símann ef það voru þessir en ekki fólk úr hinum bílnum sem hringdi.
-
- Stjórnandi
- Innlegg: 1069
- Skráður: 30.jan 2010, 23:08
- Fullt nafn: Gísli Sverrisson
- Bíltegund: Ford Transit
- Staðsetning: Mosó
- Hafa samband:
Re: Fingralangir Ferðalangar
Þetta er vissulega ljót saga, en mér finnst heldur ósennilegt að svona komist í tísku, hef starfað nokkuð með ferðamönnum og held að mikill meirihluti þeirra sé bæði kurteis og þakklátur.
Vonandi leysist þetta mál.
Vonandi leysist þetta mál.
Re: Fingralangir Ferðalangar
gislisveri wrote:Þetta er vissulega ljót saga, en mér finnst heldur ósennilegt að svona komist í tísku, hef starfað nokkuð með ferðamönnum og held að mikill meirihluti þeirra sé bæði kurteis og þakklátur.
Vonandi leysist þetta mál.
þetta voru víst íslendingar skilst mér. þess vegna datt mér í hug að einhver hérna þekkti þá.
Re: Fingralangir Ferðalangar
Hvers vegna datt mer það i hug ?? þ.e. að þetta væru Landar okkar , ju vegna þess að landinn verður bara forskammaðri i framkomu ar fra ari :(
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur