íbbi wrote:gunnarb wrote:Takk fyrir ábendinguna um síuna. Ég var að lesa bók um tuningu á svona vélum og þar segja þeir að með því einu að fjarlægja "netið" úr orginal síuboxinu stóraukist flæðið og það sé í raun á pari við það að vera með svona high-flow filter. Það dugir etv. alveg ... ekki nennir maður að fá vatn inná þennan eðal mótor. Annars velti ég því líka fyrir mér í ljósi þess hversu mikið pláss er allt í einu komið í húddið að fara með rör inn í bíl sem hægt væri að plögga við loftinntakið ef maður lendir í miklum skafrenningi.
hafandi átt camaroa, trans ama, corvette og allt þetta sull þá get ég alveg sagt samviskusamlega að púst og liftintaksbreytingar á þessum mótorum eru afar skemmtilegar. ásamt fleyru. en ég sjálfur færi alltaf í síu í boxi sem er ekki í hættu í þeim skilyrðum sem að jeppi sem þessi kemur að öllum líkindum til með að sjá.
annað er svo að svona opin sía í vélarýminu sýgur heitt loft innan úr því, í staðinn fyrir að sjúga kalt loft úr brettinu eða undan stuðaranum, þannig að ávinningurinn er enginn
Ég sé það fyrir mér einhverntíma í framtíðinni að splæsa í langar flækjur á mótorinn. Þetta kostar tiltölulega lítið frá USA (300USD). Flækjurnar sem eru á mótornum eru ekki fallega smíðaðar, rörin mjög mis löng (sem ég hélt að ætti aldrei að vera) og víða dælduð.
Þetta með heita loftið er hárrétt, ef ég man rétt er t.d. camaro að taka loft innan úr vélarrýminu og það eru til ansi mörg myndbönd á youtube þar sem menn eru að setja cold-air intake, einmitt eins og þú segir með því að sækja loft úr brettinu eða hjólaskál - þessi mótor myndar nefnilega ansi mikinn hita...