Góður díselbíll 1997 árg. til sölu með túrbínu og intercooler og með heila grind, ekinn ca 60.000 frá upptekningu og er að virka mjög vel. Sjálfskiptur með læsingu í afturdrifi, stillanlega dempara og cruise-control. Ekinn ca 3000 km frá skoðun í fyrra (2013 miði). Mætti dytta að lakkinu svo hann ætti möguleika fegurðarsamkeppni ef það væri ætlunin en ekkert skrölt né óþarfa tíst er í honum. Glóðarkerti nýleg.
Bílnum getur fylgt annar Pajero , bensín með ónýta heddpakkningu sem myndi nýtast vel í varahluti (bodyhlutir, ljósabúnaður, dekk felgur og margt fl.
Díselbíllinn er ekki á númerum, þar sem ég á orðið of marga bíla, en hann hefur verið geymdur inni síðan ég setti plöturnar í geymslu.. Set inn mynd af díslebílnum á ekki myndir af hinum en hann er grænn. Verðhugmynd er 320 þús fyrir báða bílana en endilega skjóta inn tilboðum (var 420 þús)..
Upplýsingar hér eða í síma 8937503
Pajeróar....
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur