Mig suður

Fyrir allt sem fram fer í skúrnum eða eftir atvikum, úti á stétt.

Höfundur þráðar
Fordinn
Innlegg: 377
Skráður: 03.feb 2010, 21:47
Fullt nafn: Mikkjal Agnar Þórsson

Mig suður

Postfrá Fordinn » 19.maí 2013, 23:15

hefur einhver hérna reynslu af Esab caddy 200 mig suðu....

http://www.youtube.com/watch?v=D2PE-UcYJ8c

er að hugsa þetta í skúrinn....



User avatar

Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: Mig suður

Postfrá Startarinn » 20.maí 2013, 00:27

ég er með ESAB Caddy C160i og er bara mjög sáttur. ég fékk hana haustið 2010 og hún er sú hraustasta sem ég hef prófað af litlu einfasa suðunum.

Það eina sem tók smá tíma að venjast var að hún tekur ekki við sér um leið og þú tekur í takkann, það líður um 1 sek frá því að þú tekur í gikkinn þar til vírinn fer að mata, soldið pirrandi fyrst en venst.

Ég er með hana tengda við slökkvitæki sem hlífðargas og það hefur reynst mér ágætlega
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"


Höfundur þráðar
Fordinn
Innlegg: 377
Skráður: 03.feb 2010, 21:47
Fullt nafn: Mikkjal Agnar Þórsson

Re: Mig suður

Postfrá Fordinn » 20.maí 2013, 12:46

já takk fyrir þetta.... lýst ágætlega á þessar enda sennilega á að kaupa svona græju... ertu með kolsýru þá á slökkvitækinu eða??

User avatar

Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: Mig suður

Postfrá Startarinn » 20.maí 2013, 13:00

Ég er með kolsýru já, ég skipti ekki einusinni um krana á slökkvitækinu, ég er bara með spennu sem heldur því opnu meðan ég er að nota tækið, það hefur gefist vel

Það má bæta því við að rafmagns kapallinn að græjunni er hrikalega sver, sennilega til að auka traust Kanans á græjunni þar sem þeir eru vanir 120 voltum og þ.a.l. mun hærri straum, en ég keypti mína á Ebay og fékk hana heim gegnum ShopUSA
Það var alveg vesen að koma venjulegri kló á kapalinn og hann er hrikalega stífur, ætli ég skipti ekki um hann á endanum
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: Mig suður

Postfrá jeepson » 20.maí 2013, 13:08

Ertu að sjóða með venjulegum eða fylltum vír? Ég hef soðið mikið með báðum vírum og ég hef aldrei geta vanist því að sjoða með venjulegum og kolsýru. En hann er fínn með fogon gasi. Hinsvegar er fínt að sjóða með fyllta vírnum og kolsýru. Við notum aðalega bara kolsýru á fylltan vír í vinnuni. Þá erum við að sjóða með 1,2mm vír.
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn

User avatar

Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: Mig suður

Postfrá Startarinn » 20.maí 2013, 15:00

Ég er með ófylltan 0,6mm vír, mér finnst hann mun skemmtilegri í svona bílskúrsbras.

Mig minnir að ég hafi soðið allar breytingar á fjöðrun í jeppanum hjá mér með 0,6mm líka en þá með Mison 18 og 3ja fasa ESAB vél sem ég man ekki nánar hvað heitir

Ég hef ekki lent í neinum vandræðum með kolsýruna, ég hef strauminn í hærri kantinum miðað við fæðinguna á vírnum, það hefur gengið ágætlega hjá mér.

En Caddy vélin er frekar imbaheld, þar stillir maður bara efnisþykkt og hversu heita þú vilt hafa suðuna, bara næs
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"

User avatar

Stebbi
Innlegg: 2098
Skráður: 31.jan 2010, 22:59
Fullt nafn: Stefán Stefánsson
Bíltegund: Eitthvað blátt
Staðsetning: Hafnarfjörður

Re: Mig suður

Postfrá Stebbi » 21.maí 2013, 14:17

Startarinn wrote:Það var alveg vesen að koma venjulegri kló á kapalinn og hann er hrikalega stífur, ætli ég skipti ekki um hann á endanum


Það er afþví að í Evrópulandi er ætlast til þess að þú notir CEE kló ekki þessar venjulegu Schuko hemilisklær.


Image
Hilux DC 2.4 dísel úrbræddur
Jeep Grand Cherokee 4.7 Seldur
MMC Pajero 2.5TDI 38" Seldur
Ford Econoline 44"

User avatar

Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: Mig suður

Postfrá Startarinn » 21.maí 2013, 21:34

Ég keypti vélina frá USA, 1x230volt og það var risastór svona kló á henni:

Image
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"

User avatar

muggur
Innlegg: 378
Skráður: 12.okt 2011, 15:16
Fullt nafn: Guðmundur Þórðarson

Re: Mig suður

Postfrá muggur » 21.maí 2013, 21:44

Startarinn wrote:Ég keypti vélina frá USA, 1x230volt og það var risastór svona kló á henni:

Image


Hmmm þetta er ensk kló. Kaninn er með allt öðruvísi, en væntanlega ertu með 220volta versionina og þar með UK-kló.
----------------------------------------------
Guðm. Þ.
Pajero 1998 V6 3000/3500 24V

User avatar

arni87
Innlegg: 305
Skráður: 01.feb 2010, 19:49
Fullt nafn: Árni Freyr Rúnarsson
Bíltegund: 38" Musso
Hafa samband:

Re: Mig suður

Postfrá arni87 » 21.maí 2013, 21:48

En hafa menn einhverja reynslu af MIG vélunum frá Holti??
http://www.holt1.is/suduvelar.html

Ég er með MMA og TIG vél þaðan og er mjög sáttur við hana.
Árni F
Lækurinn
Musso 97 38"

Flickr

User avatar

íbbi
Innlegg: 1468
Skráður: 02.feb 2012, 04:02
Fullt nafn: ívar markússon

Re: Mig suður

Postfrá íbbi » 21.maí 2013, 22:03

ég hef bara verið með telwin, og þótt hún frekar leiðinleg
1996 Dodge Ram. 38" eilífðarverkefni
1996 Dodge Ram 38"
2000 Gmc sierra


Til baka á “Breytingar, viðhald og viðgerðir”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur