Síða 1 af 1

Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 17.mar 2012, 22:22
frá villisiggi
Jæja þetta er nýji cruiserinn minn!
http://imageshack.us/photo/my-images/82 ... 12014.jpg/

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 17.mar 2012, 22:30
frá trooper
shit hvað þessi er verklegur..

kv. Hjalti

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 17.mar 2012, 22:46
frá Svenni30
Til hamingju með þennan. Hann er hrikalega flottur og vel græjaður.
Skoðai hann á sýningu á Akureyri um daginn.
Hérna eru myndir sem ég tók af honum þáþ

Image

Image

Image

Image

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 17.mar 2012, 23:05
frá lc80cruiser1
Sæll

hvernig er þessi miðað við 80 bílinn ?

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 17.mar 2012, 23:14
frá s.f
í hverju ligur þessi 700.000þ í framhásinguni ef það er ekki vinna innifalin og hvernig hásingu notaðir þú

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 17.mar 2012, 23:39
frá villisiggi
s.f wrote:í hverju ligur þessi 700.000þ í framhásinguni ef það er ekki vinna innifalin og hvernig hásingu notaðir þú

sko í 1 lagi var þetta ný dana 60 (alveg glæný og einnig það þarf að breyta henni aðeins til að hún sé tilbúinn undir bílinn)
og í 2 lagi ef þú ert að efast um etthvað sambandi við verð á þessum lista þá breytti ég ekki bílnum en þú getur þú bara fengið numerið hjá þessum snilling sem breytti bílnum og spurt hann um verðin á þessum hlutum sem eru gefnir upp á listanum ef þú villt og fengið þessi verð á hreinu! (bíllinn er alveg svakalega vel breyttur) .........
ég bara þekki það ekki hvort það sé hægt að fá þessa hluti fyrir 5 eða 10 þúsund krónur og búa til eins góðan bíl og þennan,
en ef þú veist og eða getur það þá er ég til í að kaupa hann af þér fyrir slatta af peningum(staðgreitt)
kveðja Villi (sem er mjög ánægður með bílinn sinn!!)

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 17.mar 2012, 23:44
frá ellisnorra
Ég held að ég hafi séð þennan í Reykjavík í dag eða gær, getur það ekki verið?
Þetta er alveg neck breaker sko!

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 08:24
frá HaffiTopp
Þetta þykir mér alveg svakalega ljótt ökutæki.
Kv. Haffi

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 09:17
frá elfar94
HaffiTopp wrote:Þetta þykir mér alveg svakalega ljótt ökutæki.
Kv. Haffi

en það svínvirkar örugglega

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 09:46
frá HaffiTopp
Já örugglega, og maður fer ekki langt á útlitinu einu saman á fjöllum.
Kv. Haffi

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 10:03
frá Freyr
Ég er hrifin af þessum bíl, er viss um að hann svínvirkar og þykir hann mjög flottur

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 10:19
frá s.f
villisiggi wrote:
s.f wrote:í hverju ligur þessi 700.000þ í framhásinguni ef það er ekki vinna innifalin og hvernig hásingu notaðir þú

sko í 1 lagi var þetta ný dana 60 (alveg glæný og einnig það þarf að breyta henni aðeins til að hún sé tilbúinn undir bílinn)
og í 2 lagi ef þú ert að efast um etthvað sambandi við verð á þessum lista þá breytti ég ekki bílnum en þú getur þú bara fengið numerið hjá þessum snilling sem breytti bílnum og spurt hann um verðin á þessum hlutum sem eru gefnir upp á listanum ef þú villt og fengið þessi verð á hreinu! (bíllinn er alveg svakalega vel breyttur) .........
ég bara þekki það ekki hvort það sé hægt að fá þessa hluti fyrir 5 eða 10 þúsund krónur og búa til eins góðan bíl og þennan,
en ef þú veist og eða getur það þá er ég til í að kaupa hann af þér fyrir slatta af peningum(staðgreitt)
kveðja Villi (sem er mjög ánægður með bílinn sinn!!)

ég var ekki að efast neitt um verðið bara að spá hvað hevði verið notað í þetta

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 10:45
frá jeepson
Til lukku með gripinn og meigi hann gagnast þér vel og lengi. Mér fynst að vísu að hann samsvari sér ekki nógu vel á þessum stóru dekkjum. En hann hlýtur að svínvirka. Hvað er hann að vigta hjá þér??

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 11:30
frá lc80cruiser1
Áttir þú ekki 80 cruiser villi, hvernig er þessi miðað við hann ?

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 11:31
frá Einar Örn
HaffiTopp wrote:Þetta þykir mér alveg svakalega ljótt ökutæki.
Kv. Haffi

afhverju sleppiru því ekki bara að commenta efað þér finst þetta svona ljótur bíll...

og hvað hefur þú efni á því að seigja að þetta sé ljótur bíll. ekur um á pajeró og skítur yfir einn af flottari lc120 bílum á landinu...

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 11:36
frá Svenni30
Einar Örn wrote:
HaffiTopp wrote:Þetta þykir mér alveg svakalega ljótt ökutæki.
Kv. Haffi

afhverju sleppiru því ekki bara að commenta efað þér finst þetta svona ljótur bíll...

og hvað hefur þú efni á því að seigja að þetta sé ljótur bíll. ekur um á pajeró og skítur yfir einn af flottari lc120 bílum á landinu...

Strákar mínir höldum okkur á málefnalegum nótun.
Skulum ekkert vera detta í live2cruize syndrome hérna

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 12:04
frá villisiggi
sælir jeppaeigendur (og aðrir bílakallar og konur)
það er allt í lagi að láta sínar skoðanir í ljós og gera athugasemdir í sambandi við bílinn hjá mér því það særir mig ekki!
(ég fer vonandi ekki að gráta hehehe)
málið er að ég er MJÖG ánægður með bílinn en á eftir að gera smá breytingar á honum svo hann verði fullkominn fyrir MIG!
en endilega koma með komment og hugmyndir um hvað er hægt að gera betur og flottara!
ps: fór prufurúnt í gær og bíllinn kom vel út.
kveðja Villi Siggi

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 13:39
frá Hjörturinn
Ein forvitnisspurning, hvernig heldur hann ferð á þjóðvegum?
Maður er alltaf a heyra hvað 46" étur mörg hestöfl alltaf.
En til lukku með flottan bíl, hef held ég einusinni sest uppí þennan og var útsýnið gott :)

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 14:01
frá HaffiTopp
Einar Örn wrote:
HaffiTopp wrote:Þetta þykir mér alveg svakalega ljótt ökutæki.
Kv. Haffi

afhverju sleppiru því ekki bara að commenta efað þér finst þetta svona ljótur bíll...

og hvað hefur þú efni á því að seigja að þetta sé ljótur bíll. ekur um á pajeró og skítur yfir einn af flottari lc120 bílum á landinu...

Eeee.... okeyyy...????? :/ Mín skoðun vinur. Afsakar. Skal næst hringja í þig til að spyrja hvenær ég má draga andann.
Kv. Haffi

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 14:27
frá Freyr
Hjörturinn wrote:Ein forvitnisspurning, hvernig heldur hann ferð á þjóðvegum?
Maður er alltaf a heyra hvað 46" étur mörg hestöfl alltaf.
En til lukku með flottan bíl, hef held ég einusinni sest uppí þennan og var útsýnið gott :)

Afsakið off topic en smá varðandi þessa spurningu:

Ræddi þetta eitt sinn við góðan vin sem er með 2008 common rail ssk. patrol í túristaakstri. Hann er oftast á 44"DC en einstaka sinnum á 46"MT. Hann sagðist finna mjög lítinn mun á afli en munaði töluverðu í eyðslu, man ekki nákvæmar tölur en það voru nokkrir lítrar upp. En það munaði líka umtalsvert á drifgetu í snjó. Þegar hann var á 44"DC þá gekk mér stundum betur á mínum 38" '95 patta en þegar hann var á 46"MT þá í besta falli hélt ég í við hann en oft náði ég því ekki.

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 15:11
frá elvarö
Sama hvað övundsjúkir menn segja þá er þetta sórgæsilegur bíll og til hamingju með hann
kveðja Elvar

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 15:51
frá peturp
Til hamingju með með nýja tækið Villi. Hann er flottur að sjá.
Sjáumst kannski á sunnudaginn fjöllum . Aldrei að vita nema ég kaupi þennan af þér líka þegar þú loksins hættir að fara fjöll.
"Allt er ef þrennt er"

Kv

Pétur Hans

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 18:38
frá Arnþór
Einar Örn wrote:
HaffiTopp wrote:Þetta þykir mér alveg svakalega ljótt ökutæki.
Kv. Haffi

afhverju sleppiru því ekki bara að commenta efað þér finst þetta svona ljótur bíll...

og hvað hefur þú efni á því að seigja að þetta sé ljótur bíll. ekur um á pajeró og skítur yfir einn af flottari lc120 bílum á landinu...

Nei helvíti er á Pajero og er að breyta honum er hann ekki góður jeppi? eða er ég á villigötum...

Kv Ak

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 18:59
frá Freyr
Eigum við ekki bara að vera vinir hérna? Það er svo miklu skemmtilegra....

Kveðja Freyr

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 22:31
frá snorri80
Þetta er stóglæsilegur jeppi og ég hef farið með honum í ferð og hann svínvirkar til hamnigju með glæsilegan jeppa

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 22:37
frá -Hjalti-
Freyr wrote:
Hjörturinn wrote:Ein forvitnisspurning, hvernig heldur hann ferð á þjóðvegum?
Maður er alltaf a heyra hvað 46" étur mörg hestöfl alltaf.
En til lukku með flottan bíl, hef held ég einusinni sest uppí þennan og var útsýnið gott :)

Afsakið off topic en smá varðandi þessa spurningu:

Ræddi þetta eitt sinn við góðan vin sem er með 2008 common rail ssk. patrol í túristaakstri. Hann er oftast á 44"DC en einstaka sinnum á 46"MT. Hann sagðist finna mjög lítinn mun á afli en munaði töluverðu í eyðslu, man ekki nákvæmar tölur en það voru nokkrir lítrar upp. En það munaði líka umtalsvert á drifgetu í snjó. Þegar hann var á 44"DC þá gekk mér stundum betur á mínum 38" '95 patta en þegar hann var á 46"MT þá í besta falli hélt ég í við hann en oft náði ég því ekki.

Er þetta ekki bara spurning um færi eins og allt annað?

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 23:06
frá Freyr
-Hjalti- wrote:

Vissulega ræður færið miklu, en þegar ferðirnar eru nokkrar og niðurstaðan sú sama í lausamjöll, vindbörðum snjó o.fl. þá er komin marktækur munur.

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 23:09
frá Járni
Mikið er ég ánægður að sjá hvað menn á þessum vef eru duglegir að kæfa rifrildi í fæðingu. Takk kærlega fyrir það!

On topic: Sé þennan reglulega þar sem hann kemur oft í sama hús og ég vinn í, þetta er helvíti svalt ökutæki.

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 23:29
frá birgthor
Ertu til í að uppljóstra uppskriftinni?

Þyngd, afl, tog, kram, aukabúnaður og hvað á eftir að breytast?

Annars lúkkar þetta sem hið fínasta verkfæri :)

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 18.mar 2012, 23:33
frá risinn
Ég veit það að ég er ekki sá mesti hugsauðurinn hérna á spjallinu. En ég held að 70 kg. maður eða kona á háum hælum sökvi meira í snjó, en 70 kg maður eða kona á snjó þrúgum. Þetta er bara það sem ég held en hef ekkert fyrir mér í því. :-)

Kv. Ragnar Páll.

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 19.mar 2012, 00:02
frá AgnarBen
Freyr wrote:Þegar hann var á 44"DC þá gekk mér stundum betur á mínum 38" '95 patta en þegar hann var á 46"MT þá í besta falli hélt ég í við hann en oft náði ég því ekki.

Nú ertu búinn að vera of lengi í skúrnum að vinna með sterk efni Freyr ;-)

Það liggur greinilega mikil smíði í þessum Krúser og gaman að sjá þegar menn fara all-in í jeppabreytingum. Það væri áhugavert að heyra hver þurrviktin er á honum eftir allar þessar breytingar.

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 19.mar 2012, 00:12
frá Freyr
AgnarBen wrote:

Ég veit ekki hvort þú náðir öllu samhenginu, var ekki að tala um þennan cruiser heldur '08 patrol og sá bíll var yfir 600 kg þyngri en minn gamli. Geri mér engar grillur um að ég hefði á gamla patta gert betur en þessi cruiser á 44"

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 19.mar 2012, 01:43
frá Freyr
Varðandi þyngdina þá er hann skráður 2.320 sem mér þykir mjög flott ef það er raunin.

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 19.mar 2012, 13:13
frá -Hjalti-
risinn wrote:Ég veit það að ég er ekki sá mesti hugsauðurinn hérna á spjallinu. En ég held að 70 kg. maður eða kona á háum hælum sökvi meira í snjó, en 70 kg maður eða kona á snjó þrúgum. Þetta er bara það sem ég held en hef ekkert fyrir mér í því. :-)

Kv. Ragnar Páll.

Freyr wrote:
Ég veit ekki hvort þú náðir öllu samhenginu, var ekki að tala um þennan cruiser heldur '08 patrol og sá bíll var yfir 600 kg þyngri en minn gamli. Geri mér engar grillur um að ég hefði á gamla patta gert betur en þessi cruiser á 44"

Ég er nokkuð viss að 60kg kona á háum hælum sökkvi meira í snjó en 150kg maður á snjóþrúgum..
Þegar spurningin er um flot þá hefur 44" oftast viningin Fram yfir 38".

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 19.mar 2012, 13:27
frá AgnarBen
Freyr wrote:
AgnarBen wrote:
Freyr wrote:Þegar hann var á 44"DC þá gekk mér stundum betur á mínum 38" '95 patta en þegar hann var á 46"MT þá í besta falli hélt ég í við hann en oft náði ég því ekki.

Nú ertu búinn að vera of lengi í skúrnum að vinna með sterk efni Freyr ;-)

Það liggur greinilega mikil smíði í þessum Krúser og gaman að sjá þegar menn fara all-in í jeppabreytingum. Það væri áhugavert að heyra hver þurrviktin er á honum eftir allar þessar breytingar.

Ég veit ekki hvort þú náðir öllu samhenginu, var ekki að tala um þennan cruiser heldur '08 patrol og sá bíll var yfir 600 kg þyngri en minn gamli. Geri mér engar grillur um að ég hefði á gamla patta gert betur en þessi cruiser á 44"

Jú jú, ég náði alveg samhenginu. Búinn að eiga nokkra Y60 á 38" og líka Y61 á 44" (500 kg þyngri en y60 tilbúinn í ferð með tveim köllum) og y61 bíllinn hafði bara yfirburði á öllum sviðum skv minni reynslu.

Annars ætla ég ekkert að véfengja þína reynslu af þessu, það er bara staðreynd að bílar, dekk, búnaður, bílstjórar og færi geta haft svo mikil áhrif á svona samanburð að það er nánast gagnslaust að ræða þetta á netinu :-)

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 20.mar 2012, 12:23
frá Hrannifox
Rosalega fallegur! verður ekki annað sagt um tryllitækið, til hamingju með bílinn.

offtopic: hafa menn ekkert lent í of miklu floti ?, veit ekki hvort það sé eitthvað að marka þetta en
var á sukku á 30'' aðeins boddyhækkuð, og svo var önnur sukka með í för á 33'' við stúngum hana af !
kannski var það ökumaðurinn kunni ekki nó inná bílinn eða færðin, spilar allt samann

tek ekki ábyrð ef þið skiljið þetta ekki :P

kv Hranni

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 20.mar 2012, 13:00
frá Freyr
Áttu fleyri myndir af Cruisernum?

Re: Toyota landcruiser 120 46"

Posted: 20.mar 2012, 13:39
frá Óskar - Einfari
Hrannifox wrote:Rosalega fallegur! verður ekki annað sagt um tryllitækið, til hamingju með bílinn.

offtopic: hafa menn ekkert lent í of miklu floti ?, veit ekki hvort það sé eitthvað að marka þetta en
var á sukku á 30'' aðeins boddyhækkuð, og svo var önnur sukka með í för á 33'' við stúngum hana af !
kannski var það ökumaðurinn kunni ekki nó inná bílinn eða færðin, spilar allt samann

tek ekki ábyrð ef þið skiljið þetta ekki :P

kv Hranni

offtopic svar: Það er nú bara þannig að það er ekki til neitt eitt dekk sem er "best" við allar aðstæður. Stundum getur færið verið þannig að breið dekk virka illa og eru hreinlega fyrir á meðan alveg eins bílar á mjóum dekkjum gengur betur. Súkkur eru það léttar að þetta gæti allt eins verið tilfellið í þínu dæmi (33" er almennt breiðari en 30"). Ég held að það verði seint eitthvað of mikið flot, frekar gæti ég trúað því að léttir bílar myndu vera í erfiðleikum að bæla mjög stór og stíf dekk og gætu þessvegna virkað illa. Ef dekkin eru mjög stíf þarf líka meira afl til að snúa þeim... það gæti líka átt við hérna..

Annars er þetta glæsilegur cruiser og óska ég eigandanum til hamingju..... það væri gaman að vita hvaða hlutföll eru í hásingunum.