Síða 1 af 1

Nýji bílinn Toyota Hilux 91

Posted: 16.mar 2012, 02:11
frá Hrannifox
Sælir spjallverjar ætlaði að henda inn myndum og smá upplýsingum um nýja bílinn í fjölskylduni
veit ekkert hvort þið hafið gamann af lesninguni eða ekki en hendi inn smá pistli um þetta
svona fyrst maður seldi hitt barnið.


Sá auglýstan forláta hilux og ákvað að bjóða í bílinn í ganni var ekki búinn að skoða gripinn eða sjá
mynd af honum þannig ég vissi ekkert í hvað ég væri að bjóða enda skifti það svosem litlu máli
tilboðinu var hafnað fékk þó símann hjá eigandanum og svona fyrir rælni geymdi ég það,
svo kom upp eitthver forvitni í kúlunum og ég hringi athuga hvort maður fá ekki að skoða.

Eigandinn var þó eitthvað tregur og svona ekkert svakalega lípó til að byrja með, eftir smá samtal
um bílinn og eitthvað mas þá var komið grænt ljós á að kíkja í heimsókn, karlinn var svo yndislegur
setti bílinn inní bilskúr fyrir mig svo ég gæti skoðað undirvagninn( leiðinda veður slabb og drulla)
jæja lét mig hafa það rúlla uppí mosó á manninn lá við ég fengi kaffi og með því þegar ég mæti
var bílinn skoðaður hátt og látt fékk söguna af bílnum frá þvi hann var nýr og svo var spjallað um
hitt og þetta í allnokkurn tíma alveg hreint gull af manni hann Guðlaugur (fyrv. eigandi)
jæja svo var farið í prufurúnt Guðlaugur vildi endilega keyra aðeins út fyrir bæinn svo við gerðum það
EKKI var aftur snúið ég VARÐ að eignast þessa klæsi kerru!

Svona til að gera langa sögu stutta þá kaupir pabbi hans bílinn nýjan sá gamli var/er rafveitustjóri
á Reyðafirði og bilinn því búinn að vera fyrir austan alla sína herrans tíð enda ekkert ryðgaður undirvagn
og bílinn mjög heill miðað við aldur og fyrri störf. Allir pappírar frá upphafi

Spec:

-Toyota Hilux 2.4 efi 91 árg
-Ekinn: 154.xxx varla tilkeyrt!
- dekkjastærð: 31'' nelgd á nýlega uppteknum felgum
- pallhús
- Pallur klæddur að innan ( get ómögulega munað nafnið á plötunum í augnablikinu) smiðað yfir hjólskálar
og vél gengið frá.

Viðhald:

var farið að sjást smá rið undir brettakönntum svo Guðlaugur keyfti ný frammbretti hjá Toyota
let síðan sprauta framm partinn og pallhúsið

lét skifta um pakkdósir á mótor

nýr gírkassi

lélegar myndir rétt áður en ég sótti hann:

Image
Image

Plön:
- Laga allar dældir og láta sprauta restina af bilnum
- Fá nýtt plast kringum V/frammljós
- Nýtt púst
- Fá sæti úr tacomu

Kv Hrannar

Re: Nýji bílinn Toyota Hilux 91

Posted: 16.mar 2012, 04:43
frá -Hjalti-
Helvíti er þessi heill og flottur.
Til hamingju !

Re: Nýji bílinn Toyota Hilux 91

Posted: 16.mar 2012, 11:53
frá Hrannifox
já hann er hellvíti heill, enda eina ástæðan fyrir að ég tók hann, takk fyrir það.


ég var að spá núna er hann á 31'' hvernig væri að koma 33' undir ? mikið sem þarf að gera?

Re: Nýji bílinn Toyota Hilux 91

Posted: 19.mar 2012, 16:52
frá Valdi B
ég keypti mér svona bíl í síðustu viku tilað nota sem sleða/hjólabíl.... og er hann óbreyttur en 33" sleppur undir ef þú ert ekki á mjög breiðum felgum...

Re: Nýji bílinn Toyota Hilux 91

Posted: 19.mar 2012, 18:39
frá Hrannifox
valdibenz wrote:ég keypti mér svona bíl í síðustu viku tilað nota sem sleða/hjólabíl.... og er hann óbreyttur en 33" sleppur undir ef þú ert ekki á mjög breiðum felgum...


takk fyrir það.... ætli maður klári ekki að beturbæta bílinn laga þetta smotterí sem er að

og svo auðvita gera pallinn klárann undir hjólin fyrir sumarið.... eftir það þá pælir maður meira i 33''

Re: Nýji bílinn Toyota Hilux 91

Posted: 19.mar 2012, 22:22
frá Valdi B
hehe segðu.... nýji min er einmitt á 31" en var á 33" og fer aftur á 33" ... og er með palli sem rúmar tvo sleða og er þessvegna algjör snilld fyrir sleðann eða hjólin...

Re: Nýji bílinn Toyota Hilux 91

Posted: 20.mar 2012, 12:05
frá Hrannifox
já mjög svo þægilegir bílar í það! kom mér bara á óvart hvað þetta voru þægilegir bílar þótt höfðinginn sé gamall þá er hann miklu betri en vinnu luxinn sem ég var á í smá tíma sem var 98-99 model sést líka miklu meira á honum :P .


Svo var ég að spá með pústið þar sem aftari helmingurinn er orðinn ljótur og á svosem ekkert svakalega
mikið eftir, byrjað að pústa út og komið smá prúmp, hvarfinn er ónýtur líklegast enda er þetta púst 20
ára gamall reikna ég með, er eitthvað vit í að láta smíða 2 1/2 púst og setja túbu í staðinn fyrir hvarfann
k&n í síuhúsið ? ætli það geri bilnum eitthvað meira en orginal pústið?


M.B.K Hranni

kem með betri myndir á næstuni var í smá bóni og skola saltið af honum

Re: Nýji bílinn Toyota Hilux 91

Posted: 20.mar 2012, 22:21
frá Valdi B
það gerir ekkert annað en aðeins meiri hávaða ... vinnur ekkert betur ;)

Re: Nýji bílinn Toyota Hilux 91

Posted: 20.mar 2012, 23:35
frá Hrannifox
datt það svosem í hug að það gerði voðalega litið annað en meiri hávaða..... eitthvað sem ég nenni ekki
allavega þótt margir virðast hrífast af því.... get skilið það þó ef það kemur fallegur söngur.

þakka svörin valdi