veit ekkert hvort þið hafið gamann af lesninguni eða ekki en hendi inn smá pistli um þetta
svona fyrst maður seldi hitt barnið.
Sá auglýstan forláta hilux og ákvað að bjóða í bílinn í ganni var ekki búinn að skoða gripinn eða sjá
mynd af honum þannig ég vissi ekkert í hvað ég væri að bjóða enda skifti það svosem litlu máli
tilboðinu var hafnað fékk þó símann hjá eigandanum og svona fyrir rælni geymdi ég það,
svo kom upp eitthver forvitni í kúlunum og ég hringi athuga hvort maður fá ekki að skoða.
Eigandinn var þó eitthvað tregur og svona ekkert svakalega lípó til að byrja með, eftir smá samtal
um bílinn og eitthvað mas þá var komið grænt ljós á að kíkja í heimsókn, karlinn var svo yndislegur
setti bílinn inní bilskúr fyrir mig svo ég gæti skoðað undirvagninn( leiðinda veður slabb og drulla)
jæja lét mig hafa það rúlla uppí mosó á manninn lá við ég fengi kaffi og með því þegar ég mæti
var bílinn skoðaður hátt og látt fékk söguna af bílnum frá þvi hann var nýr og svo var spjallað um
hitt og þetta í allnokkurn tíma alveg hreint gull af manni hann Guðlaugur (fyrv. eigandi)
jæja svo var farið í prufurúnt Guðlaugur vildi endilega keyra aðeins út fyrir bæinn svo við gerðum það
EKKI var aftur snúið ég VARÐ að eignast þessa klæsi kerru!
Svona til að gera langa sögu stutta þá kaupir pabbi hans bílinn nýjan sá gamli var/er rafveitustjóri
á Reyðafirði og bilinn því búinn að vera fyrir austan alla sína herrans tíð enda ekkert ryðgaður undirvagn
og bílinn mjög heill miðað við aldur og fyrri störf. Allir pappírar frá upphafi
Spec:
-Toyota Hilux 2.4 efi 91 árg
-Ekinn: 154.xxx varla tilkeyrt!
- dekkjastærð: 31'' nelgd á nýlega uppteknum felgum
- pallhús
- Pallur klæddur að innan ( get ómögulega munað nafnið á plötunum í augnablikinu) smiðað yfir hjólskálar
og vél gengið frá.
Viðhald:
var farið að sjást smá rið undir brettakönntum svo Guðlaugur keyfti ný frammbretti hjá Toyota
let síðan sprauta framm partinn og pallhúsið
lét skifta um pakkdósir á mótor
nýr gírkassi
lélegar myndir rétt áður en ég sótti hann:


Plön:
- Laga allar dældir og láta sprauta restina af bilnum
- Fá nýtt plast kringum V/frammljós
- Nýtt púst
- Fá sæti úr tacomu
Kv Hrannar