Síða 1 af 1
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 08.jan 2012, 22:07
frá jeepson
Flottur. en afhverju afturhásingu úr yngri bíl? einhver sagði mér að þær væru mjórri. Endilega leiðréttið þetta ef að þetta er eitthvað bull.
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 08.jan 2012, 23:49
frá Hagalín
jeepson wrote:Flottur. en afhverju afturhásingu úr yngri bíl? einhver sagði mér að þær væru mjórri. Endilega leiðréttið þetta ef að þetta er eitthvað bull.
Afturhásingin er ekkert öðruvísi en það en að í 3.0l bsk bílnum var hún með stærra drifi.
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 09.jan 2012, 00:00
frá jeepson
Hagalín wrote:jeepson wrote:Flottur. en afhverju afturhásingu úr yngri bíl? einhver sagði mér að þær væru mjórri. Endilega leiðréttið þetta ef að þetta er eitthvað bull.
Afturhásingin er ekkert öðruvísi en það en að í 3.0l bsk bílnum var hún með stærra drifi.
Okey. Ég var spurður hvort að ég vildi 98 hásingu í minn bíl og þá var mér sagt að hún væri breiðari en t.d 94 hásingin. Sel það ekki dýrara en ég keypti það. Ég er neflilega að fara í hásinga skipti að aftan í sumar. Mun setja hásingu undir með diskabremsum og orginal læsinguni.
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 09.jan 2012, 00:01
frá Freyr
Æ æ Vopni, leiddist þér hvað cherokee dreif mikið í snjó svo þú skiptir í þennann ;-) Annars er þetta óneitanlega þægilegri ferðabíll, stóð þessi lengi á bílasölu upp á kletthálsi?
Kv. Freyr
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 09.jan 2012, 00:02
frá Freyr
kom 2x
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 09.jan 2012, 00:41
frá jeepcj7
Er ekki málið að taubílar 98,99 og 00 komu með diskalás að aftan vacumlásinn kom með leðrinu í þeim árgerðum svo kom 3.0 bíllinn bsk. með stærra drifi og sverari öxlum aftan.Þetta boddý er líka með talsvert breiðari hásingum en 89-97.
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 09.jan 2012, 21:20
frá hobo
Getur verið að þessi hafi verið í Bolungarvík fyrstu árin?
Mig minnir að olíufurstinn þar hafi átt eins bíl með svipað bílnúmer.
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 11.jan 2012, 01:48
frá Valdi B
kiddi patrol snillingur á selfossi sagði mér það að nýrri hásingarnar væri breiðari en eldri hásingarnar væri sterkari...
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 11.jan 2012, 08:59
frá Stebbi
valdibenz wrote:kiddi patrol snillingur á selfossi sagði mér það að nýrri hásingarnar væri breiðari en eldri hásingarnar væri sterkari...
Það er rétt með framhásingarnar, það minnkaði önnur legan og varð styttra á milli þeirra um svipað leiti og 3L bíllinn kom. Sterkasta afturhásingin er samt úr beinskiptum 3l bíl.
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 17.jan 2012, 22:57
frá Forsetinn
Flottur bíll, hvað er búið að keyra þetta ?
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 18.jan 2012, 12:30
frá GeiriLC
svopni wrote:Hérna sést að Patrol kemst þó örlítið lengra en Cruiser. Sennilega spilar þó árfarvegurinn eitthvað inni :)
sést líka að snjósleðinn festist ekki :p en flottur bill annars
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 18.jan 2012, 14:41
frá Hagalín
Varðandi aflleysið.
Athugaðu tölvukubbinn hjá þér. Það eiga að vera 3 stilliskrúfur á honum. Ein fyrir turbo önnur fyrir olíu og þriðja er svona fínstilling. Ég og félagi minn stilltum kubbinn hjá honum í haust og það var þvílíkur munur þegar búið var að stilla hann upp á nýtt.
Átt að geta fengið teikningu af þessu á netinu.
Allavega munaði þetta helling eftir að við núlluðum hann og stilltum upp á nýtt.
Aflið er ekki mikið orginal þannig að maður finnur allavega mikinn mun þegar þetta
er látið virka eins og það á að gera, ekki of lítið né of mikið.
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 18.jan 2012, 21:53
frá Fetzer
ogg.. hver var það sem fékk að grindaskekkja til að toga í ykkur ? :)
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 18.jan 2012, 21:56
frá Fetzer
haha æjæj
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 24.jan 2012, 00:04
frá -Hjalti-
Ég vil sja breiðari felgur undir hann
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 30.jan 2012, 22:37
frá Izan
Sæll
Þessi jeppi á eftir að koma þér á óvart, ég er alveg viss um það.
Ef það er eitthvað að heyrast í framdrifinu á honum dettur mér í hug hvort það geti verið að lokurnar séu í Auto, það er allavega algerlega harðbannað í snjó. Ef þú vilt eitthvað vera að hrigla í lokunum gerðu það þá bara í vor og hafðu þær á Lock þangað til.
Það þarf að vera duglegur að skipta um olíur og smyrja en þá líka endist þetta von og viti, og stingur allar toyotur af.
Kv Jón Garðar
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 31.jan 2012, 08:32
frá JoiVidd
Það var ónýtur tvöfaldi liðurinn í framskaftinu, það voru hljóðin. Ef einhver á framskaft úr svona bíl (passar líka úr gamla patrol held ég) þá má hann gjarnan láta eiganda vita:-)
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 13.feb 2012, 12:45
frá arniph
Izan wrote:Sæll
Þessi jeppi á eftir að koma þér á óvart, ég er alveg viss um það.
Ef það er eitthvað að heyrast í framdrifinu á honum dettur mér í hug hvort það geti verið að lokurnar séu í Auto, það er allavega algerlega harðbannað í snjó. Ef þú vilt eitthvað vera að hrigla í lokunum gerðu það þá bara í vor og hafðu þær á Lock þangað til.
Það þarf að vera duglegur að skipta um olíur og smyrja en þá líka endist þetta von og viti, og stingur allar toyotur af.
Kv Jón Garðar
þú ert brandarakall :D
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 28.feb 2012, 22:38
frá jeepson
Lookar vel :)
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 29.feb 2012, 00:44
frá AgnarBen
Líst vel á úrhleypibúnaðinn. Getur þú listað upp nokkurn vegin hvað þarf í þetta. Ertu með plasthné eða eitthvað stáldót og það væri flott að fá góða mynd af því hvernig þú gengur frá festingum á felgum. Ertu með krana á felgunum, hvernig er þetta útfært þar ?
Svo mynd af frágangi í kringum kistuna inn í bíl væri líka flott. Er að spá í að setja svona í minn bíl einhvern daginn þegar ég kemst í stuð :)
Re: Patrol 42" 2.8.
Posted: 02.mar 2012, 23:41
frá Hrannar Ingi
Glæsilegur Patrol ! :)
Re: Patrol 44" 2.8.
Posted: 07.mar 2012, 19:57
frá lc80cruiser1
Ég hef átt svona bíl og eru þeir mjög traustir og drifbúnaðurinn er óbilandi ! Til hamingju
Re: Patrol 44" 2.8.
Posted: 07.mar 2012, 21:12
frá -Hjalti-
Allt annað að sjá hann! Lentiru á góðum gangi? Semsagt skopplausum?
Re: Patrol 44" 2.8.
Posted: 07.mar 2012, 22:01
frá Járni
Sæll, hressilegar framkvæmdir hjá þér.
En ég sá að þú ert búinn að taka utan af Finidælunni og sá ekki betur en þú værir samt með einhverja hlíf í kringum kæliviftuna, fékkstu hana einhverstaðar eða smíðaðirðu hana?
Ég spyr nefnilega því ég var sjálfur að strípa mína og er að koma henni fyrir inni í afturbrettinu v/m.
Gangi þér annars vel með þetta allt saman, helvíti reffilegur á 44"!
Re: Patrol 44" 2.8.
Posted: 08.mar 2012, 09:28
frá Doror
Sæll,
þarftu ekki að skella úrhleypisysteminu á nýju felgurnar?
Re: Patrol 44" 2.8.
Posted: 08.mar 2012, 11:20
frá lc80cruiser1
Minn var árgerð 2001 á 44 með öllu, drifkúlan á beinskiptu bílunum er stærri að aftan en á þeim sjálfskiptu, veit ekki afhverju.Minn bíll var með 3,0 vélinni beinskiptur.
Í dag á ég 80 Cruiser 1991 módel, helsti munurinn er aflið þar sem munar gríðarlegu, hásingarnar á Cruiser eru ekki jafnsverar og þarf því að styrkja framhásinguna sem er reyndar lítið mál.
Patrolinn reyndist mér afar vel og mun ég ekki tala illa um þá bíla hér.
Re: Patrol 44" 2.8.
Posted: 13.mar 2012, 17:31
frá steinarxe
af gleði yfir að hafa valið rétt þá eða?;)