Síða 1 af 1

Huyndai Terracan 35"

Posted: 13.des 2011, 13:31
frá gustile
Var að eignast fyrsta breytta jeppann minn sem er huyndai terracan sem er breyttur fyrir 35" dekk og fór með félaga mínum hellisheiðahringinn um helgina og skemmti mér vel
jeppinn er með 2,9 crdi vél en hann er ólæstur

Image

Image

en endilega ef einhver á svona bíl þá væri gaman að geta fræðst um þá einsog hvað er mikið mál að koma honum á 38" dekk og hafa einhverjir sett læsingar í þá og hvernig hefur það komið út ? ætli afturlæsingin úr pajero passi í þessa bíla?

Re: Huyndai Terracan 35"

Posted: 13.des 2011, 14:46
frá elfar94
alminnilegt, ég veit að fjallasport hafa breytt terracan á 38", þetta eru andskoti seigir og skemmtilegir bílar, en hastir að aftan finnst mér. pabbi átti einn 35" breyttan og stóð sig vel hvert sem farið var

Re: Huyndai Terracan 35"

Posted: 14.des 2011, 19:20
frá Ingójp
Þetta eru fínir bílar Pabbi á svona hans er samt læstur að aftan

Re: Huyndai Terracan 35"

Posted: 14.des 2011, 20:15
frá gustile
Já ég var ánægður með hann þarna í snjónum en þessi var keyptur aðallega til að ferja mig í veiði á sumrin en svo verður maður veikur eftir svona leikdaga :) en langar helst að finna í hann læsingar allavega að aftan ... en eina sem ég hef lesið að passi í þessa bíla eru arb læsingar sem kosta alveg handlegginn en var að spá hvort einhver hafi sett orginal læsingu af pajero í svona jeppa ? skilst að þessir jeppar séu byggðir á pajero

Re: Huyndai Terracan 35"

Posted: 15.des 2011, 02:52
frá streykir
Er þetta ekki bara uppfærð útgáfa af gamla galloper jeppanum? Sem var auðvitað bara teikning af gamla kassa pajero?

Re: Huyndai Terracan 35"

Posted: 18.des 2011, 12:26
frá Hordursp
Jeppinn er svo nýr hjá þér að þú kant ekki einusinni að skrifa nafnið á honum;)