Síða 1 af 1
Hilux árg 91 dc,44" SELDUR:S
Posted: 07.des 2011, 20:10
frá gudjonarnarr
Hér ættla ég að henda inn myndum og uppl um hiluxinn minn
2,8 dihatsu rocky 97 mótor
hilux gírkassi og 2 millikassar (1 venjulegur og 1 low gír)
hilux hásing að framan með rafmagnslás
hilux hásing að aftan breikkuð með raflás og fljótandi öxlum
gormar að framan og afan
range rover stífur
vinnuljós á hliðum og aftan á húsi
kastara grind að framan og kastarar
prófíltengi að framan og aftan
diska bremsur að framan og aftan
loftkerfi án ac dælu
boost mælir
vhf stöð
lagnir fyrir cb vhf tetra og gps
38" mudder á 16" breiðum felgum
38" mudder á 13" breiðum felgum
44" dick cepek á 18,5" breiðum felgum
planið á lagfærslum
Redda felgum láta breikka í 18" og pólýhúðun (komið en ekki húðunin þær verða bara heimamálaðar og urðu næstum óvart 18.5")
skipta um fóðringar í A stífunni að aftan (komið)
laga afturlás
setja snúningshraðamæli
setja olíuþrístingsmæli
tengja loftkerfið
hækka bílinn örítið að framan með stærri gormum
setja fleirri kastara að framan





mynd á 44" frá þarsíðasta eiganda sem smíðaði bílinn

(uppfært 27.12.11)















Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 07.des 2011, 20:19
frá rockybaby
Gríðalega fallegur hilux hjá þér
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 07.des 2011, 20:47
frá gudjonarnarr
takk takk
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 07.des 2011, 21:12
frá sukkaturbo
bara flottur og örugglega drifgóður
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 07.des 2011, 21:58
frá -Hjalti-
Þetta er glæsilegur Hilux hjá þér
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 07.des 2011, 22:04
frá Nóri 2
flottur bíll og er alveg helvíti seigur! til hamingju með hann
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 07.des 2011, 22:14
frá Svenni30
Flottur. Hvernig er þessi vél að koma út ?
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 08.des 2011, 11:52
frá gudjonarnarr
af minni reinslu er hún að virka vel, og maðurinn sem setti þessa vél í bílinn á sínum tíma sagði mér að hún hafi verið að virka vel mjög drifmikill bílll bara spurning hvort ég komi honum ekki vel áfram í snjónum
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 08.des 2011, 15:55
frá Hjörvar Orri
Þennan jeppa stoppar fátt. Til hamingju með gripinn, að mínu mati er þetta einn af flottustu hiluxum landsins.
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 08.des 2011, 16:30
frá gudjonarnarr
takk fyrir það enn mig langar samt að sprauta hann í einhverjum spes lit að mínu mati er þessi litur ekki að gera sig
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 08.des 2011, 17:08
frá SmáriSig
Hvaða öxla ertu með að aftan? Og ertu þá með aðrar felgur að aftan fyrst að afturhásingin er breiðari ?
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 08.des 2011, 17:26
frá -Hjalti-
Er ekki bara komin afturhásing undan klafa bíl undir þennan? (149cm) vs (144cm) sem kom undir hilux með frammhásingu?
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 08.des 2011, 17:31
frá SmáriSig
Hún er ekki með fljótandi öxlum og diskabremsum
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 08.des 2011, 17:42
frá fordson
þetta er orginal hásing með heimasmíðuðum flöngsum og siðan eru frammnöf notuð og lokurnar smíðaðar til og innri öxullin að framan (lengri gerðin) notaður. Síðan eru subaru bremsudælur notaðar en man ekki hvaða diskur var notaður
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 08.des 2011, 17:58
frá SmáriSig
Já það hlaut að vera eitthvað svona mix haha. Sporar hann alveg rétt svona ?
Annars flott Toyota !
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 08.des 2011, 19:38
frá gudjonarnarr
já afturhásingin var breikkuð svo hann myndi fara í sporinn eftir sjálvansig enn þetta er rétt ynnrihlutinn af öxlinum er framöxull og soðið við hann stubbur úr afturöxli enn hann er með orginal fram bremsudiska að aftan og bara sömu felgur allan hringinn með orginal gatadeilingu
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 11.des 2011, 20:48
frá Einar Örn
þessi hilux er rosalega flottur í alla staði...
(nema liturinn fer soldið í mig)
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 11.des 2011, 21:45
frá siggi.almera
fallegur hilux
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 11.des 2011, 22:24
frá arni hilux
snildar hilux, maðurinn sem smíðaði þennan er líka hreinn snillingur :)
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 11.des 2011, 22:47
frá Valdi B
helvíti flottur þessi, skoðaði þennan einu sinni aðeins og helvíti flottur...
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 12.des 2011, 09:00
frá Hjörvar Orri
gudjonarnarr wrote:takk fyrir það enn mig langar samt að sprauta hann í einhverjum spes lit að mínu mati er þessi litur ekki að gera sig
Ég mundi halda gráa litnum, því hann gerir bílinn einstaklega spes. En það er bara mín skoðun.
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 12.des 2011, 10:04
frá LFS
er hann ekki ljósblár ???
Re: Hilux árg 91 dc,44"
Posted: 12.des 2011, 22:45
frá gudjonarnarr
ju ljósblár er liturinn á honum , en ég þarf að laga smá skemdir sem er að byrja rið á pallinum og var að velta því fyrir mér að heilmála hann í leiðinni annars þarf maður að fara á sprautuverkstæði til að láta þetta líta eins út og alstaðar í kring