Síða 1 af 1

Toyota Land Cruiser 70

Posted: 29.nóv 2011, 18:40
frá GeiriLC
Toyota Land Cruiser 70
Jæja þá er maður buinn að kaupa fyrsta bílinn (koominn tími til) og fyrir valinu varð 70 krúser fæddur arið 1985 á ágætum 33" og nánast ekkert riðgaður Veit ekki alveg hvað mig langar að gera við hann. en mig langaði að deila honum með ykkur og allar hugmyndir eru vel þegnar.
hérna er léleg síma mynd en ætla að fá lánaða mynda vél og taka fleiri myndir

Image

En svona það sem mér dettur í hug að gera er:
Útbúa bensínbrúsahaldara ( )
Kastarar ( )
Skipta um blöndung (X)
Græjur ( ) bíð eftir hátölurunum
Xenon ( ) í pöntun
Laga hurðaspjöld (x)
Laga aftur hlera (stóra) ( )
Skoða mótor skipti ( )
Koma fyrir loftdælu ( )
riðbæta og mála ( )
Öll skít köst skjóta sig sjálfkrafa í fótinn því það er ekki hægt að "dissa" Land Cruiser

Re: Toyota Land Cruiser 70

Posted: 29.nóv 2011, 20:04
frá elfar94
flottur hjá þér, á svo ekki að kíkja á hittingin um helgina?

Re: Toyota Land Cruiser 70

Posted: 29.nóv 2011, 20:26
frá Forsetinn
Alvöru jeppi sem þú átt.... til hamingju með hann.....

Re: Toyota Land Cruiser 70

Posted: 29.nóv 2011, 20:47
frá GeiriLC
forsetinn: takk sömuleiðis

elvar: ætli maður mæti ekki

Re: Toyota Land Cruiser 70

Posted: 06.mar 2012, 19:11
frá GeiriLC
Þá er hann kominn á 35" ( jan) buinn að laga kveikjuröðina vona ég ( 2 hljóðkutar farnir á mánuði) hvernig er það, er hægt að sleppa hljóðkutnum og hafa þetta bara beint i gegn? er þá ekki ægilegur háfaði og kemst ekki i skoðun?
og loksins komst ég að því hvað var að blöndungnum helv... hægagang nálinn var ónyt i nýja blöndungnum skipti um hana og nuna er hann aftur eins og draumur :D

Re: Toyota Land Cruiser 70

Posted: 12.mar 2012, 01:08
frá Hrannifox
þó þú sleppir þessum kút eru ekki fleiri kútar en bara þessi eini ?

ættir að geta sett túbu í staðinn fyrir kútinn deyfir hávaðann og hleypir betur i gegnum sig.


getur talað við þá í bjb þeir ættu að geta sagt þér allt um þetta

Re: Toyota Land Cruiser 70

Posted: 12.mar 2012, 23:35
frá GeiriLC
nei það er bara einn kútur kvarfa kúturinn var tekinn í burtu af fyrri eiganda