Síða 1 af 1
hilux bastarður
Posted: 07.nóv 2011, 22:55
frá spámaður
jæja verslaði þennan um daginn.eflaust einhver sem kannast við þennan bíl.
toyota hilux 90 árg.
er á 39,5 irok en var á 44"
3.1 isuzu turbo D.og isuzu kassi+millikassi.
orginal hásing að framan,loftlæst
9" ford að aftan fullfljótandi með nospin.
14.5 breiðar felgur.
koni framan/aftan
70 cruiser stífur framan/gormar.
fourlink og gormar að aftan.
svo þetta vanalega loft dælur(arb +viair)
spiltengi og prófílfesting fr.
gps og kastarar.
er held ég með 4 runner mælaborði,sætin eru ekki orginal og buið að hækka þau aðeins.
þarf aðeins að betrumbæta en annars fínn.
já svo er hann á 5.29 hlutföllum.
Re: hilux bastarður
Posted: 08.nóv 2011, 00:56
frá Gunnar
þetta er hinn ágætasti grútarbrennari sýnist mér..
Re: hilux bastarður
Posted: 08.nóv 2011, 08:19
frá hobo
Í það minnsta fjarskafallegur.
Það toppar nú fátt hvítan Hilux ;)
Re: hilux bastarður
Posted: 08.nóv 2011, 10:43
frá Nóri 2
virkilega flottur kannast svoldið við hann.
Re: hilux bastarður
Posted: 08.nóv 2011, 17:05
frá arni_86
Til lukku med gripinn!.
Hvernig er thessi mòtor ad virka i honum? Er thetta svipad og 3.0 L toy diesel?
Re: hilux bastarður
Posted: 08.nóv 2011, 17:56
frá -Hjalti-
3.1 isuzu turbo (84 kW; 112 hp) @ 3600 rpm and maximum torque is 260 N·m (192 lb·ft) @ 2000 rpm
3.0 Toyota diesel (93 kW; 125 hp) @ 3600 rpm and maximum torque is 287 N·m (211 ft-lb) @ 2000 rpm
Re: hilux bastarður
Posted: 10.nóv 2011, 16:57
frá spámaður
mótorinn virkar svakalega..sérstaklega fyrir það að hann er með ford hásingu og bollahaldara:)
Re: hilux bastarður
Posted: 10.nóv 2011, 22:01
frá Hlynurh
Það er líka munur á því að 3,1 mótorinn er ekki með ál drullu í heddum og blokk og það má alveg bæta hressilega í til að hún fari að virka alminnilega án þess að hafa áhyggjur af því að allt bráðni
Re: hilux bastarður
Posted: 14.nóv 2011, 13:23
frá Nóri 2
eru komin sömu hlutföll að aftan og framan?
Re: hilux bastarður
Posted: 14.nóv 2011, 15:56
frá BrynjarHróarsson
Mjög fallegur hilux þarna á ferð. Veistu hver býr til þessa brettakanta ? er þetta ekki einhver önnur týpa en þessir algengu hilux kantar sem allir virðast vera með ?
Re: hilux bastarður
Posted: 14.nóv 2011, 16:45
frá birgthor
Bara topp bíll fyrst þessi mótor er kominn í, ég var með svona mótor og var ávallt mjög ánægður með hann.
Hvað er túrbínan að blása?
Mundu bara að passa vel upp á að kælikerfið sé gott, það er það eina sem fer með þá.
Re: hilux bastarður
Posted: 14.nóv 2011, 17:46
frá -Hjalti-
BrynjarHróarsson wrote:Mjög fallegur hilux þarna á ferð. Veistu hver býr til þessa brettakanta ? er þetta ekki einhver önnur týpa en þessir algengu hilux kantar sem allir virðast vera með ?
Þetta eru 44" kantar og eru á nokkrum hilux/runnerum. Veit þó ekki hver frammleiðir þá.
Re: hilux bastarður
Posted: 14.nóv 2011, 17:54
frá einstef
http://brettakantar.is/ Held að þeir séu með þessa kanta og verðið er um 90 þús minnir mig
Kv.
Einar St
Re: hilux bastarður
Posted: 15.nóv 2011, 09:10
frá spámaður
já komið 5.29 að aftan..miðað við boostmælinn þa er hann að blása 10 psi á botnálagi.
Re: hilux bastarður
Posted: 08.des 2011, 12:15
frá gudjonarnarr
það sem ég veit um þennan bíl er
4runner mælaborð
hann var alltaf að mölva afturdrifið svo það var sett 9"ford
fyrir var hann með loftlásum að framan og aftan
hann var græn á 38"
Re: hilux bastarður
Posted: 08.des 2011, 15:38
frá spámaður
hjá mér ríkir mikil gleði núna..framdrifið brotnaði hjá mér á 90 km/h í hálkuni.það fangar athyglina við aksturinn,rétt slapp við að fara útaf.nú er bara að brosa og herða sig andlega fyrir viðgerðir og smá fjárútlát svona rétt fyrir jólin:)
Re: hilux bastarður
Posted: 08.des 2011, 18:18
frá Óli Ingi
Ekki taka svona hrikalega á þessu Hlynur
Re: hilux bastarður
Posted: 09.des 2011, 19:39
frá spámaður
nei ég ætla að láta þig um það...á þínum bíl;)
Re: hilux bastarður
Posted: 01.feb 2012, 14:44
frá þorleifur
hvernig er gengið frá drifskaptinu að framan?
mátt senda mér myndir af því á
haukur22@hotmail.com
Re: hilux bastarður
Posted: 03.feb 2012, 20:14
frá Gunnar
já spámaður, stökktu i skúrinn og taktu mynd af framskaptinu fyrir okkur
Re: hilux bastarður
Posted: 03.feb 2012, 22:10
frá spámaður
gæti verið pínu erfitt.stál og stansar eru enn með skaftið í upptekt.það er alltaf eitthvað ónýtt í þessum toyotu búðingum.
þú ættir að vita það gunnar:)enda er willys í rólegum smíðum..vildi að ég væri búinn með hann.
Re: hilux bastarður
Posted: 05.mar 2013, 14:54
frá spámaður
veit ekki einhver úr hvaða árgerð af bíl þessi isuzu vél er ???og er það úr pickup eða trooper
þarf að panta kúpplingu og það eru tvær gerðir af svinghjólum í þessum vélum???
Re: hilux bastarður
Posted: 06.mar 2013, 00:58
frá FORDJONNI
Þetta kom úr pickup minnir mig en ég veit ekki hve gömlum.
Re: hilux bastarður
Posted: 06.mar 2013, 08:52
frá StefánDal
Ég var mikið að spá í svona mótor á tímabili. Þá datt ég inn á Izusu spjall síðu sem geymdi óhemju mikinn fróðleik um þessar vélar. Skal reyna að finna hana aftur. Er tímareim eða keðja (eða var það gír) í þessum mótor hjá þér? Mig minnir að það hafi verið munur á því á milli Tropper og pickups hjá þeim.
Re: hilux bastarður
Posted: 06.mar 2013, 09:54
frá spámaður
það er reim ef það er plast hlíf á vélinni að framan hef ég lesið.
getur verið að þessi síða heiti clubisuzu?
kv hlynur.
Re: hilux bastarður
Posted: 06.mar 2013, 10:00
frá elli rmr
Er ekki vélanr sem seigir manni allt?
Re: hilux bastarður
Posted: 06.mar 2013, 13:49
frá spámaður
ja samkvæmt þeim upplýsingum sem ég hef frá verstæðis manni þá segir serialnúmerið á vélinni ekkert um árgerð,það á að vera miði á ventlaloki en mér sýnist það vera farið af..
Re: hilux bastarður
Posted: 07.mar 2013, 09:49
frá spámaður
málið er leyst.takk fyrir hjálpina samt.