Síða 1 af 1
Toyota hilux 1985
Posted: 05.okt 2011, 21:44
frá jonni187
Toyota hilux 1985 mòdel
38" mudder negld og skorinn vetrar dekk á 14" breiðum felgum, tveggja ventla, soðnum kant.
38" Ground Hawk sumar dekk á 14" breiðum felgum, tveggja ventla.
3,4 (3B)diesel med turbinu
4 gìra kassi
arb loftlæsingar framan og aftan
5:71 hlutföll
Loftdæla og loftkùtur
Re: Toyota hilux 1985'
Posted: 05.okt 2011, 21:49
frá steinarxe
Namminamm,skelltu þessari mynd inn en hvaða mótor er þetta annars?
Re: Toyota hilux 1985'
Posted: 05.okt 2011, 21:58
frá jonni187
Eg þarf ad komast i almennilega tölvu, er i ipad :(
En memn halda ad hann se ur toyota coaster eda gamla cruiser, eg þarf að googlea þetta betur :)
Re: Toyota hilux 1985'
Posted: 05.okt 2011, 22:03
frá beygla
þeir komu orginal 2.4 turbo :) en eru ekki nema 86 hross átti svona bíl
Re: Toyota hilux 1985'
Posted: 05.okt 2011, 22:31
frá Hjörturinn
Getur passað að þetta sé 3B, 3.4 litra toyota diesel?
Re: Toyota hilux 1985'
Posted: 05.okt 2011, 23:36
frá jonni187
Heyrðu já það passar.
Re: Toyota hilux 1985 komnar myndir :)
Posted: 12.okt 2011, 15:05
frá Hjörturinn
þú ert metur settur með þennan mótor en turbolausan 4 litra held ég bara.
3B er betur fallin til túrbínuvæðingar en hitt dótið.
Re: Toyota hilux 1985
Posted: 24.nóv 2011, 17:18
frá jonni187
Jæja, tók gólfið fram í aðeins í gegn, núna á að fara í fullt um helgina og reyna klára bílinn að innan.
Taka úr gólfi fyrir og koma stöng í fyrir millikassan, leggja fyrir vhf, ganga betur frá útvarpi.
Klæða hliðarnar og einangra að innan og skella teppi á þær og gólfið, vonandi að maður geti gefið sér góðan tíma um helgina í þetta.
Re: Toyota hilux 1985
Posted: 27.nóv 2011, 21:51
frá jonni187
Tók mig til um helgina, byrjaði að klæða bílinn aðeins að innan og ákvað að hafa teppið í svörtum lit. Reif mest allt úr honum nema áklæðið á toppnum sem ég ætla að þrífa bara vel og halda því, þetta virðist ætla að koma alveg ágætlega út.
Henti myndum inn á facebook, eru of stórar hér í og hef ég ekki hugmynd um hvernig ég minka þær :)
http://www.facebook.com/media/set/?set= ... f7b7e55c9b
Re: Toyota hilux 1985
Posted: 27.nóv 2011, 22:13
frá jeepson
Flott að sjá þetta hjá þér vinur. en varstu að spá í að fá annan miða eða?
Re: Toyota hilux 1985
Posted: 29.nóv 2011, 00:51
frá jonni187
Hehe ja gisli, tarf annan mida, a eg ad leggja inn hja ter aftur eda borga a hittingnum?
Re: Toyota hilux 1985
Posted: 29.des 2011, 19:53
frá jonni187
Jæja !
Þá gaf maður sér smá tíma milli jóla og nýárs til að dunda í bílnum.
Orðinn munur að sjá hann að innan sérstaklega að aftan.
Ég er búinn að hljóðeinangra hliðarnar aftan, smíða krossvið í þær og klæddi að hluta til með svörtu teppi.
Núna á þetta allt að vera komið í ágætis stand og er ekkert eftir nema að fara að prófa um helgina :=)
Ég skellti inn myndum á sama albúmið á facebook, opið hverjum sem er.
http://www.facebook.com/media/set/?set= ... f7b7e55c9bMeð ósk um gleðilegt ár og bestu kveðjum
Jón
Re: Toyota hilux 1985
Posted: 12.mar 2012, 22:45
frá jonni187
Jæja, ákvað að drífa í því að taka lakkið á honum í gegn aðeins, voru komnir nokkrir blettir sem fóru í taugarnar á mér.
Tók toppinn líka, þar sem mikið var flagnað úr að framan og aftan og gerði við það. Orðinn ágætlega sáttur við útlitið á honum :)
Það sem ég er búinn að gera hingað til :
Pústkerfi 2 1/2 opið
Nýjir rafgeymar
Mála gólfið
Klæða hann að aftan og þétta hann allan
Laga lakkið að mestu
Vantar :
Ný sæti í hann,helst með armpúðum ef einhver lumar á
Taka felgur í gegn og láta sprauta þær/pólýhúða
Alltaf má svo einhvað betrumbæta, fer næst í það að taka hann í gegn að innan, framan. Innréttingu, stóla, teppi ogfl.
Læt slatta af myndum fylgja með í einhverri frábærri röð :P
M.B.K
Jón
Re: Toyota hilux 1985
Posted: 12.mar 2012, 22:47
frá jonni187
Nokkrar í viðbót
Re: Toyota hilux 1985
Posted: 15.mar 2012, 19:35
frá Ingójp
Voðalega ert þú búinn að vera duglegur