Síða 2 af 3
Re: Skítsæll
Posted: 09.sep 2015, 02:26
frá grimur
Ég er löngu fallinn fyrir svona flatbed útfærslu. Ég varð að gera smá stefnubreytingu á skúr-verkefninu mínu vegna flutninga og það verður sko ekki blikk skúffa þar með plastköntum.....ónei engum tíma sóað í þannig pjatt!
Líklega verður settur Tacoma framhluti og svo farið hamförum með vinkla og rifflað ál afturúr....þetta eru nú "trukkar" eftir allt saman ekki satt?
Re: Skítsæll
Posted: 05.nóv 2015, 09:50
frá draugsii
jæja núna er verið að setja 22rte ofaní húddið
hann verður vonandi eitthvað skarpari með hann
- gamla druslan að kveðja
- image.jpeg (1.31 MiB) Viewed 22291 time
- image.jpeg (1.42 MiB) Viewed 22291 time
Re: Skítsæll
Posted: 05.nóv 2015, 11:52
frá Startarinn
Passar RTE beint ofan í?
Re: Skítsæll
Posted: 05.nóv 2015, 12:10
frá draugsii
mér sýnist það kemst að því í kvöld og svo er það bara rafkerfis vinna
Re: Skítsæll
Posted: 05.nóv 2015, 13:52
frá hobo
Þetta verður geggjað!
Re: Skítsæll
Posted: 05.nóv 2015, 14:03
frá Svenni30
Get vottað það að þessi vél sem er að fara í virkar. Þarf að fara koma í skúrinn til ykkar
Re: Skítsæll
Posted: 06.nóv 2015, 18:41
frá draugsii
Re: Skítsæll
Posted: 06.nóv 2015, 23:46
frá draugsii
Re: Skítsæll
Posted: 08.nóv 2015, 23:50
frá draugsii
jæja þá er rafkerfið að verða langt komið
það voru tvö rafkerfi með turbo motornum
annað orginal kerfið af turbovélinni og svo kerfið sem var í bílnum sem vélin var í síðast.
þessi tvö kerfi eru svo splæst saman svo við fórum í að einfalda þetta og fjarlægðum allar óþarfa leiðslur
þessi hönk er að fara úr bílnum
- image.jpeg (1.69 MiB) Viewed 22027 times
þarna var fullt af plöggum sem gerðu ekkert nema þvælast fyrir og tengdust ekki í neitt
- image.jpeg (1.47 MiB) Viewed 22027 times
- image.jpeg (1.39 MiB) Viewed 22027 times
og þarna er búið að einfalda þetta svolítið
- image.jpeg (1.13 MiB) Viewed 22027 times
Re: Skítsæll
Posted: 09.nóv 2015, 18:08
frá olafur f johannsson
Magnað svo verður gaman að sjá hvað hann hressist við þetta
Re: Skítsæll
Posted: 09.nóv 2015, 23:37
frá draugsii
Re: Skítsæll
Posted: 10.nóv 2015, 23:49
frá draugsii
Re: Skítsæll
Posted: 11.nóv 2015, 01:57
frá Svenni30
Glæsilegt. Verður gaman að sjá þennan keyra með þessa vél
Re: Skítsæll
Posted: 14.nóv 2015, 00:22
frá draugsii
Re: Skítsæll
Posted: 14.nóv 2015, 13:09
frá Startarinn
Þurfa þessar vélar ekki MIKLU stærri intercooler?!?
Re: Skítsæll
Posted: 14.nóv 2015, 13:29
frá draugsii
hún virkaði ágætlega í bílnum sem hún fór úr þannig að ég er ekkert viss um það
en stærri er öruglega ekkert verri
Re: Skítsæll
Posted: 14.nóv 2015, 17:18
frá Startarinn
Ég er með 2,3 ltr úr volvo og orginal coolerinn þar er næstum jafn stór og toyota vatnskassinn (coolerinn er jafn stór og volvo kassinn) og lagnirnar að og frá sverari.
Kannski ekki nauðsynlegt en ágætt að vita ;)
Re: Skítsæll
Posted: 14.nóv 2015, 20:00
frá ellisnorra
Já þetta er óttalegur ræfill þessi cooler. Í hiluxnum hjá mér (dísel, reyndar 2.7 nissan) var loftið út af túrbínunni heitast 116 gráður (inn á cooler) og út af cooler uþb 10 gráðum heitara en útihiti. Ég var með eins cooler og Addi (nær 3cm frá grind og alveg uppí húddlok, úr 760 volvo)
Re: Skítsæll
Posted: 15.nóv 2015, 13:07
frá juddi
Hvar fékstu vigtina ?
Re: Skítsæll
Posted: 15.nóv 2015, 13:27
frá svarti sambo
Re: Skítsæll
Posted: 17.nóv 2015, 21:45
frá juddi
Takk fyrir svörinn já 300kg er í það minsta
Re: Skítsæll
Posted: 19.nóv 2015, 19:18
frá draugsii
þá er hilux kominn saman og allt virðist virka
lagaði aðeins til í aukarafkerfinu og lagði það að hluta upp á nýtt
- image.jpeg (1.61 MiB) Viewed 21393 times
- image.jpeg (1.66 MiB) Viewed 21393 times
og svona stendur hann núna kominn á vetrardekkin
- image.jpeg (1.05 MiB) Viewed 21393 times
Re: Skítsæll
Posted: 31.des 2015, 14:16
frá draugsii
Smá uppfærsla er búin að vera að vesenast með hægaganginn þegar hann er kaldur
hann gékk bara á sirka 500 sn kaldur en fór í 750 heitur og það var hugsað spáð og spegulerað og uppgötvað að loki sem stýrir loftflæði framhjá trottle boddy var ónýtur og þar sem herra toyota er hættur að framleiða þessa loka eftir því sem ég kemst næst þá var farinn sú leið að græja handvirkan loka
- image.jpeg (1.64 MiB) Viewed 21229 times
- image.jpeg (1.61 MiB) Viewed 21229 times
Re: Skítsæll
Posted: 31.des 2015, 16:51
frá ellisnorra
Haha þetta er besta handvirka innsog sem ég hef séð :)
Re: Skítsæll
Posted: 26.maí 2016, 23:54
frá draugsii
pantaði mæla frá glowshift boost mælir sem sínir psi og svo fuel ratio mæli
- image.jpeg (1.2 MiB) Viewed 20760 times
- image.jpeg (1.15 MiB) Viewed 20760 times
- image.jpeg (1.16 MiB) Viewed 20760 times
koma bara nokkuð vel út held ég
Re: Skítsæll
Posted: 06.mar 2017, 22:59
frá draugsii
Re: Skítsæll
Posted: 11.mar 2017, 00:50
frá draugsii
Re: Skítsæll
Posted: 20.sep 2017, 22:48
frá draugsii
jæja það er best að koma með áframhald á þessari vitleisu,búin að setja tvöfaldan bremsuboster í hann,setja í hann loftkút og allskonar bras stefni svo á að koma í hann úrhleipibúnaði við tækifæri
Re: Skítsæll
Posted: 20.sep 2017, 22:53
frá draugsii
svo eignaðist ég sjálfskiftingu sem var við 22re mótor sem mig langar að setja í hann, svona ef maður getur fundið út hvernig maður tengir rafmagnið við hana
Re: Skítsæll
Posted: 21.sep 2017, 16:31
frá helgierl
Kemur þetta vel út að setja annan bremsubúster? Ég er með 92módel hilux á 35". Setti nýja diska, dælur og klossa en bremsurnar mættu alveg vera skarpari.....
Re: Skítsæll
Posted: 21.sep 2017, 19:31
frá draugsii
já ég finn töluverðan mun bæði fynst mér hann bremsa betur og svo er ástigið léttara
Re: Skítsæll
Posted: 21.sep 2017, 20:50
frá helgierl
Áhugavert. Passa þeir beint í úr 4runner frá þessum tíma?
Re: Skítsæll
Posted: 22.sep 2017, 00:18
frá draugsii
já ég notaði höfuðdæluna úr mínum svo ég þurfti ekki að losa neinar lagnir bara losa hana frá bosternum og losa svo bosterinn inn í bíl
svo togar maður dæluna bara aðeins fram til að ná gamla úr og koma nýja í þetta er svona 10 til korters vinna
Re: Skítsæll
Posted: 22.sep 2017, 00:37
frá draugsii
Re: Skítsæll
Posted: 22.sep 2017, 08:23
frá jongud
draugsii wrote:svo eignaðist ég sjálfskiftingu sem var við 22re mótor sem mig langar að setja í hann, svona ef maður getur fundið út hvernig maður tengir rafmagnið við hana
Veistu úr hvaða árgerð sjálfskiptingin kemur? Var það 4Runner eða eitthvað annað?
Re: Skítsæll
Posted: 22.sep 2017, 09:40
frá draugsii
nei veit það ekki alveg held hún hafi verið í hilux það var 22re framan við hana
hún heitir A340H eftir því sem ég kemst næst
það fylgdi henni einhver tölva og eitthvað af drasli en vantar samt eitthvað af rafkerfi
Re: Skítsæll
Posted: 22.sep 2017, 12:08
frá jongud
draugsii wrote:nei veit það ekki alveg held hún hafi verið í hilux það var 22re framan við hana
hún heitir A340H eftir því sem ég kemst næst
það fylgdi henni einhver tölva og eitthvað af drasli en vantar samt eitthvað af rafkerfi
Ég held að US shift stýritölvurnar ráði við A340 skiptingarnar og svo var eitthvað til sem heitir "suprastick"
Ég sá einhverntíman rafteikningu af svona skiptingu, líklega í einhverjum bæklingi á
http://www.nude.is/stuff
Re: Skítsæll
Posted: 23.sep 2017, 02:08
frá grimur
Sennilega 3 spólur í henni.
2 þeirra stýra í sameiningu í hvaða gír skiptingin fer í D.
Þriðja er lockup kúplingin, hún má ekki fara á undir miklu álagi og bara í 3. og 4. Þrepi ef eg man rett.
Það ætti alveg að vera hægt að prógramma litla iðntölvu eða Arduino til að stýra svona skiptingu, sérstaklega ef þetta væri sett upp sem handsjálfskipt...þá þarf tölvan ekkert að vita um snúningshraða á neinu, bara skiptingar upp og niður plús vakúmskynjara á soggrein uppá lockupið.
Kv
Grímur
Re: Skítsæll
Posted: 23.sep 2017, 08:30
frá jongud
grimur wrote:Sennilega 3 spólur í henni.
2 þeirra stýra í sameiningu í hvaða gír skiptingin fer í D.
Þriðja er lockup kúplingin, hún má ekki fara á undir miklu álagi og bara í 3. og 4. Þrepi ef eg man rett.
Það ætti alveg að vera hægt að prógramma litla iðntölvu eða Arduino til að stýra svona skiptingu, sérstaklega ef þetta væri sett upp sem handsjálfskipt...þá þarf tölvan ekkert að vita um snúningshraða á neinu, bara skiptingar upp og niður plús vakúmskynjara á soggrein uppá lockupið.
Kv
Grímur
Ég rakst einhversstaðar á grein þar sem var sýnt hvernig hægt er að handskipta A340 skiptingu með því að möndla 2 kraftdíóður saman við skiptinn og spólurnar. Það var að vísu ekki lockup í því.
getbaraekkmunaðhvarégsáþetta
Re: Skítsæll
Posted: 01.okt 2017, 17:47
frá Aparass
draugsii wrote:Smá uppfærsla er búin að vera að vesenast með hægaganginn þegar hann er kaldur
hann gékk bara á sirka 500 sn kaldur en fór í 750 heitur og það var hugsað spáð og spegulerað og uppgötvað að loki sem stýrir loftflæði framhjá trottle boddy var ónýtur og þar sem herra toyota er hættur að framleiða þessa loka eftir því sem ég kemst næst þá var farinn sú leið að græja handvirkan loka
image.jpeg
image.jpeg
þú verður að setja nýjann svona loka.
þessi steppermótor á að stjórna lausagangi og um leið og þú snertir gjöfina þá á hann að loka alveg fyrir.
Ef þú ert með barka á þessu þá er gangurinn alltaf vitlaus á snúning og eyðslan verður töluverð.
þessi loki þarf semsagt að vera og hann þarf að vera í lagi.
kv.