Síða 1 af 1
Re: Cherokee XJ 90 árg 38"
Posted: 28.apr 2011, 23:11
frá Sævar Örn
Svalur, hvaða vél er í honum og er það bensin eða disel :)
Re: Cherokee XJ 90 árg 38"
Posted: 28.jún 2011, 19:48
frá icewolf
Flottur Bíll
Re: Cherokee XJ 90 árg 38"
Posted: 24.aug 2011, 18:07
frá hobo
Ég græjaði mér svona mobile loftkerfi á pallinn. Átti þetta frá því ég var með súkkuna, þá var þetta í kassa aftan á hlera. Fínasta viðbót við AC dæluna.

Kúpling á loftið, plögg á rafmagn og 4 boltar á brakketið. Annars er plássið nóg þannig að þetta fer sennilega aldrei úr..
Re: Cherokee XJ 90 árg 38"
Posted: 24.aug 2011, 18:51
frá hobo
Jú reyndar er mælir inn í bíl, þessi var þarna fyrir og datt í hug að hann myndi nýtast betur þarna en uppá hillu. Kúturinn er bara 1 gallon(ca 3,5ltr), þetta átti bara að vera nett svona í stíl við súkkuna.
Re: Cherokee XJ 90 árg 38"
Posted: 24.aug 2011, 20:12
frá HaffiTopp
hobo wrote:Ég græjaði mér svona mobile loftkerfi á pallinn. Átti þetta frá því ég var með súkkuna, þá var þetta í kassa aftan á hlera. Fínasta viðbót við AC dæluna.

Kúpling á loftið, plögg á rafmagn og 4 boltar á brakketið. Annars er plássið nóg þannig að þetta fer sennilega aldrei úr..
Er þetta loftdæla úr Stillingu?
Kv. Haffi
Re: Cherokee XJ 90 árg 38"
Posted: 24.aug 2011, 20:52
frá hobo
HaffiTopp wrote:Er þetta loftdæla úr Stillingu?
Kv. Haffi
Ég keypti þessa af Tryggva í Stýrivélaþjónustunni Hfj.
A.m.k Stilling og Landvélar hafa verið að selja sömu dælur. Hún kostaði 19.900 í vetur á meðan hinar voru á 32 þús ca. Það segir manni að búðirnar tvær eru örugglega með 100% álagningu.
Re: Cherokee XJ 90 árg 38"
Posted: 24.aug 2011, 21:18
frá AgnarBen
hobo wrote:HaffiTopp wrote:Er þetta loftdæla úr Stillingu?
Kv. Haffi
Ég keypti þessa af Tryggva í Stýrivélaþjónustunni Hfj.
A.m.k Stilling og Landvélar hafa verið að selja sömu dælur. Hún kostaði 19.900 í vetur á meðan hinar voru á 32 þús ca. Það segir manni að búðirnar tvær eru örugglega með 100% álagningu.
Hvað dælir þessi mörgum lítrum á mínútu ?
Re: Cherokee XJ 90 árg 38"
Posted: 24.aug 2011, 21:19
frá hobo
150 ltr/min
Re: Cherokee XJ 90 árg 38"
Posted: 24.aug 2011, 23:47
frá AgnarBen
Fini endist bara og endist ..... það er ekki víst að hin geri það þannig að þú kemst að því eftir 5 ár hvort kaupin voru góð eða léleg ;)
Re: Cherokee XJ 90 árg 38"
Posted: 30.okt 2011, 20:17
frá Valdi B
AgnarBen wrote:Fini endist bara og endist ..... það er ekki víst að hin geri það þannig að þú kemst að því eftir 5 ár hvort kaupin voru góð eða léleg ;)
því miður þá endast þessar bara ekki neitt, vinur minn er með eina svona tveggja stimpla í hilux h´ja þér og notar hana fyrir tvo loftpúða og tila ð pumpa í 38" dekk undir bílnum hjá sér og þetta er algjört vesen, hann keypti svona nýja hjá n1 minnir mig og hún entist í eina ferð, eða ekki það , fór uppá jökul og þegar niður var komið þá dó hún þegar var verið að setja aftur í dekkin...
hann skilaði henni og fékk aðra ís taðinn og síðan bilaði hún stuttu seinna og þá fékk hann aðra bilaða tila ð eiga í varahluti ef mér minnir rétt, við rifum hana núan í vikunni því dælan bilaði aftur og okkur vantaði varahluti... þá voru farnir í henni stimplarnig en það er bara einn gúmmíhringur á hvorum stimpli... en það virkilega bilar allt í þessu þar sem að varahlutadælan var með ónýtann rafmagnsmótor tilað snúa stimplunum... síðan fara í þessu stimplarnir og þær komu í held ég tveimur tegundum eða önnur er með ál stimpla með álstöngum áföstum stimplunum og hinar með plaststimpla með áföstum plaststimplum...
síðan á ég svona dælu sem er með einum stimpil og hún er búin að deyja einu sinni... þá var það því hún var svo óþétt (notuð tvisvar sinnum síðan hún var ný) og hún fylltist bara af drullu, ég er ekki að segja að ég hafi verið aða henda henni útí snjóskafl eða drullupoll , hún er föst fyriir aftan aftursætið íi hilux hjá mér og það kemst bara ryk og dót þar inn þeagr maður er alltaf að fara inn og út og fólk að fara afturí og maður að ná í verkfæri og dót fyrirf aftan aftursætið...
en gott ráð fyrir fólk sem á svona og vill láta þetta endast.... takið heddið ofan af þeim og cyllenderin.. kaupið ykkur svona bremsufeiti sem maður notar tilað setja með stimplum í bremsudælur.. hún eyðileggur ekki gúmmí ið á cyllendernum og þá slitnar þaðeki jafn mikið og jafn hratt...
og já setjið cylikon með cyllendernum þegar þið setjið hann á aftur svo þetta fyllist ekki af sandi eða drullu ;)
kv.valdi
Re: Cherokee XJ 90 árg 38"
Posted: 31.okt 2011, 09:36
frá Stjáni
Ég keypti svona dælu einsog Hobo er með en bara með einum haus (cylender) sem á að dæla 75 ltr á mín. fyrir rúmum 6 árum síðan í N1
og henni hefur sko aldrei verið hlíft, búin að drukkna nokkrum sinnum og sjóðhitna en það eina sem hefur klikkað í henni var að hún fór að blása með heddinu þannig ég herti það bara einsog ég þorði og hún gerir bara ekkert annað en virka vel plús það að loftsíjan af henni týndist þegar hún var rétt ný og hefur alltaf verið notuð án síju... Kannski er ég bara heppinn með eintak en ekki get ég hvartað yfir að hafa eytt þessum 17.000 kalli sem hún kostaði þá :)
Re: Cherokee XJ 90 árg 38"
Posted: 31.okt 2011, 16:46
frá Valdi B
Stjáni wrote:Ég keypti svona dælu einsog Hobo er með en bara með einum haus (cylender) sem á að dæla 75 ltr á mín. fyrir rúmum 6 árum síðan í N1
og henni hefur sko aldrei verið hlíft, búin að drukkna nokkrum sinnum og sjóðhitna en það eina sem hefur klikkað í henni var að hún fór að blása með heddinu þannig ég herti það bara einsog ég þorði og hún gerir bara ekkert annað en virka vel plús það að loftsíjan af henni týndist þegar hún var rétt ný og hefur alltaf verið notuð án síju... Kannski er ég bara heppinn með eintak en ekki get ég hvartað yfir að hafa eytt þessum 17.000 kalli sem hún kostaði þá :)
mín er með einum haus og hún hefur verið notuð samtals tvisvar af mér (viðað pumpa í dekkin á bílnum mínum) og einu sinni af félaga mínum í einni ferð,
Re: Cherokee XJ 90 árg 38"
Posted: 18.nóv 2011, 18:46
frá Svenni30
Vígalegur hjá þér. Ef ég má finna að einhverju þá finst mér vanta stigbretti á hann.
Re: Cherokee XJ 90 árg 38"
Posted: 18.nóv 2011, 21:20
frá JoiVidd
Flottur! verðum að fara að drulla okkur á fjöll! þetta fer að verða vandræðalegt að eiga svona jeppa hehe:D
Re: Cherokee XJ 90 árg 38"
Posted: 18.nóv 2011, 21:36
frá JoiVidd
já ég hugsa að það sé eina vonin hehe:) það hlítur nú að fara að kólna þegar fer að nálgast desember..
Re: Cherokee XJ 90 árg 38"
Posted: 10.des 2011, 11:00
frá hobo
Gaman að skoða framkvæmdamyndir.
Eina sem ég var að spá hvort útfærslan hjá AgnarBen væri ekki betri, þ.e.a.s uppá að nýta gólfplássið. Verður ekki alltaf hætta á að þungir hlutir í skottinu gætu runnið á dæluna eða tengin á kútnum og skemmt?
Ég finn fyrir því hjá mér að ég hefði kannski átt að færa "mobile" dælusystemið ofar til að lenda ekki í þeirri hættu, plús að nýta plássið betur.
..Bara vingjarnlegar pælingar, ekkert meir :)