Síða 1 af 1
Patrol 2001
Posted: 01.feb 2010, 20:31
frá Brjótur
Leikfangið mitt og vinnustaður er mikið breyttur Patrol 2001 upprunalega 3.0 diesel sjálfskiftur en svo hafa orðið breytingar
og þær eru 44 tommu breyting með brettakanta fyrir 2005 bílana 5/42 hlutföll loftlæsing framan original rafm. aftan 3.0 mkettlingurinn er farin úr vélarrúminu og í staðin er komin Nissan 4.2 turbo intercooler sjálfskiftingin vék líka fyrir 5 gíra kassa og svo er komin milligír frá Ljónsstöðum með Ástralíuhlutfalli, afturhásing aðeins aftar og framhásing aðeins framar
sérsmíðaðir legustútar að framan frá Ægi, gps fartalva, álkassar á topp, 12.000 lbs Warn spil,spilankeri og skófla,og járnkall
Re: Patrol 2001
Posted: 11.feb 2010, 12:02
frá ofursuzuki
Það er eitthvað við þessa bíla og ef ég fengi mér "stórann" jeppa þá hugsa ég að það yrði frekar Patrol heldur en Toyota,
hef þá trú að þetta séu mjög sterkir bílar og tel margt benda til þess. Held til dæmis að það sé ekki tilviljun að allavega hér á norðurlandi
þá hefur Rarik ekki viljað aðra bíla í sínum störfum og tel ég það vera ákveðin meðmæli.
P.S Flottar myndir.
Re: Patrol 2001
Posted: 11.feb 2010, 12:39
frá Brjótur
Takk fyrir Björn já er sammála þér enda ek ég um á endurbættum Patrol hvað varðar vélbúnað sem er nú aðalvandamálið
og takk fyrir já myndirnar eru teknar af professional ljósmyndara sem ég var að keyra .
kveðja Helgi
Re: Patrol 2001
Posted: 11.feb 2010, 13:23
frá Maggi
Flottar myndir
Re: Patrol 2001
Posted: 11.feb 2010, 13:26
frá Grease Monkey
Þetta er flottur bíll hjá þér Helgi (",) ef þú lendir í festu fyrir utan heimilið þitt þá hóaru bara í mig þú getur alveg verið óhræddur við það fyrst við erum nágrannar hehe
Re: Patrol 2001
Posted: 11.feb 2010, 15:00
frá HaffiTopp
..
Re: Patrol 2001
Posted: 11.feb 2010, 15:50
frá Brjótur
Takk drengir og já Baldvin gott að vita af þér í nágrenninu og Haffi ég er búinn að update framhjólalegurnar og mótorinn
þannig að þetta er bara komið í flott stand ;)
kveðja Helgi
Re: Patrol 2001
Posted: 11.feb 2010, 16:32
frá s.f
.
Re: Patrol 2001
Posted: 11.feb 2010, 16:51
frá olistef
Ég geri ráð fyrir að litli bróðir þinn taki þig í nefið þar sem að hanns patrol hefur fengið líffæra-ígræðslu frá ford :)
Eða hvað?
Kv. Óli
Re: Patrol 2001
Posted: 11.feb 2010, 18:11
frá Hagalín
Hvar keyptiru kanntana á bílinn? Þurftiru aðbreyta þeim eitthvað eða spössuðu þeir bara beint á??
KV Hagalín
Re: Patrol 2001
Posted: 11.feb 2010, 18:17
frá Brjótur
Sææælll Óli já þú heldur það :) nei sko núna eiga menn sem eru með svona V8 bensínsvelgi ekki fyrir bensíni nema nema upp á Úlfarsfell við borgarmörkin ;)
kveðja Helgi
Ps. Steinþór hvaðan fékkstu þá hugmynd að bíllinn sé falur? hann er sko ekki til sölu:)
P.s.s. Kantarnir eru bara frá breyti sömu og á 2005 Pat. það þurfti aðeins að steypa á þá á framhornin annars smellpasssaði
þetta bara
Re: Patrol 2001
Posted: 11.feb 2010, 21:05
frá Magni
Litli bróðir hans "á eftir" að taka hann í nefið á Patrol með líffæraígræðslu! en hún er reyndar úr GM ;-)
Re: Patrol 2001
Posted: 11.feb 2010, 21:50
frá Brjótur
Hi Magni ég held nú reyndar að Óli meini hinn litla bróður minn þann stóra og neiii þú átt ekkert eftir taka mig neitt í nefið!
hahaha komdu þessu nú ut ´r skúrnum áður en þú ferð að lofa eihverju ;)
kveðja stóri bró
Re: Patrol 2001
Posted: 22.sep 2010, 23:28
frá Brjótur
Jæja þá er maður orðin vel settur dekkjalega fyrir veturinn :) 2 sett á felgum
44x21 15 Trexus fyrir þurran snjó þar sem þarf flot
44x19,5 16 Pit bull fyrir blauta snjóinn og krapann!!