Mig langaði að deila ferðalaginu með þessum Land Cruiser 80, árgerð ’92.
Ég eignaðist bílinn í fyrra, hann var þá þegar búinn að fá ýmsar breytingar og var í sæmilegu standi. Ég byrjaði á því að láta laga mesta ryðið í bodýinu (ekki allt búið á 3 nýjar hurðar sem eiga eftir að fara á hann), og síðan þá hafa ófáar klukkustundir farið í alls konar dund og viðhald.
Þegar ég fékk hann var búið að breyta honum og setja hann á þessi dekk, úrhleypibúnað, loftlása á fram- og afturdrif, RCV öxla að framan, það var intercooler en einungis 2" lagnir.
Vélargerð: 1HD-T dísel túrbó
Skipting: OEM 4 gíra
Túrbína: G Turbo 380 HD Titan er að láta hana blása 24-26 PSI
Spíssar: 30 % stærri frá G Turbo
Olíuverk: Aggresívari pinni frá Tillix og stífari gormur
Loftinntak: Safari Snorkel tengt OEM loftsíuboxi með K&N loftsíu, Intercooler með 2 3/4" lögnum.
Púströr: Ryðfrítt 3" straight-pipe
Alternator: Úr LC100 120 Amper
Hlutföll: 4.88
Stýrisdempari: Old man emu
Demparar: Fox 2.5" smooth body með forðabúri
Gormar: Old man emu
Hlutföll: 4.88
Öxlar: Framan RCV, aftan OEM
Læsingar: Lofttjakkar á fram- og afturdrifi, OEM rafmagnslás á millikassa.
Dekk:17 R 40x13.50 Cooper STT PRO
Úrhleypibúnaður: Landvéla kista og hné, FINI Flash loftdæla.
Rafkerfi: Auka rafkerfi stýrt í gegnum AUX beam rofaborð.
Þakgrind: Frá Offroad Mania
Stefnan er að uppfæra þráðinn smám saman eftir því sem vinnunni og brasinu vindur fram :)
80 series
-
GudmundurThorir
Höfundur þráðar - Innlegg: 7
- Skráður: 04.feb 2019, 19:49
- Fullt nafn: Guðmundur Þórir Sigurðsson
80 series
- Viðhengi
-
- 20250925_200344.jpg (344.81 KiB) Viewed 1322 times
-
- Sumar '25.png (6.03 MiB) Viewed 1519 times
-
- Ný búnir að ná í jeppann.jpg (1004.29 KiB) Viewed 1519 times
Síðast breytt af GudmundurThorir þann 28.okt 2025, 08:20, breytt 1 sinni samtals.
Re: 80 series
Til hamingju með gripinn. Hef alltaf verið smá skotinn í 80 bílnum þrátt fyrir að mönnum hafi ekki fundist mikið til þegar hann kom fyrst og tók við af 60 bílnum. það stendur einmitt reglulega einn svona fyrir utan gluggan hjá mér á 40tommunum með rauð/silfur tvítóna litaskemanu.
verður gaman að fylgjast með hvað verður. og endilega henda inn nóg af ferðamyndum líka :)
verður gaman að fylgjast með hvað verður. og endilega henda inn nóg af ferðamyndum líka :)
-
GudmundurThorir
Höfundur þráðar - Innlegg: 7
- Skráður: 04.feb 2019, 19:49
- Fullt nafn: Guðmundur Þórir Sigurðsson
Re: 80 series
Eftir uppfærsluna á túrbó að þá fór að koma leiðinlega hár hiti á sjálfskiptingunni undir álagi, svo ég ákvað að uppfæra í nýjann sjálskiptikæli og setja thermostat á milli kælis og skiptingar.
Nýi kælirinn er töluvert minni en er stacked plate gerð og á að skila meiri kæligetu, eftir fyrstu prófanir virðist hann vera halda hitanum 10-15°C lægri en gamli.
Thermostatið er að koma vel út, það lokar við 72°C og opnar við 82°C.
Bíllinn var prófaður um helgina á rjúpu og var látið reyna á kæligetuna fyrir sjálfskiptinguna. Ég var nokkuð ánægður en hefði viljað sjá hitann vera 5-10°C lægri, hugsa ég bæti við örlítið meiri kælingu og ætla prófa bæta við "Heat-sink transmission cooler" frá Summit
Læt fylgja með link'a á búnaðinn og myndir af kælum, thermostati og einni mynd frá helginni ✌️
Thermostat:
https://www.summitracing.com/parts/DER-13011
Kælirinn:
https://www.summitracing.com/parts/SUM-331216
Heat sink transmission cooler:
https://www.summitracing.com/parts/sum-331018bk

- 12.jpg (1.61 MiB) Viewed 873 times
-
- 20251021_190535.jpg (2.58 MiB) Viewed 873 times
-
- 20251021_190530.jpg (3.2 MiB) Viewed 873 times
-
- 20251021_184405.jpg (5.32 MiB) Viewed 873 times
-
GudmundurThorir
Höfundur þráðar - Innlegg: 7
- Skráður: 04.feb 2019, 19:49
- Fullt nafn: Guðmundur Þórir Sigurðsson
Re: 80 series
Mér tókst að ná mér í fínan gang af 44" DC (Gleðigúmmí), ákveðið var að skella þeim undir fyrir nýliða ferð með 4X4 inn í Setur.
Þau pössuðu ótrúlega vel undir, þurfti að taka 3cm úr könntunum og smá sleggjuvinna í innri frambrettunum.
Drifgetan er ótrúleg á þessum dekkjum m.v. 40", en bíllinn er ekki beint spennandi á milli 50-60 km/klst á malbiki, búinn að kaupa mér stýristjakk og vonandi lagar/dempar hann aðeins þessa jeppaveiki, hann fer á verkefnalistann.
Það er reyndar eitt stærra verkefni sem "poppaði" upp núna, það kom í ljós að kælivandamálið með skiptinguna lá í converternum. Ég var búinn að festa kaup á ZF8HP70 skiptingu úr X5 fyrr í sumar, planið var að setja hana í í "framtíðinni" en ég hef ákveðið að eyða ekki pening í að láta taka upp converterinn og henda mér í þessi sjálskiptingar skipti.
Þetta verður sennilega bylting m.v. gömlu 4 gíra skiptingu sem tekur bara lock up í 4 gír.
ZF 8HP70 vs Aisin A442F – Gírhlutföll
Gír | ZF 8HP70 | Aisin A442F
1 | 4.714 | 2.950
2 | 3.143 | 1.530
3 | 2.106 | 1.000
4 | 1.667 | 0.765
5 | 1.285 | —
6 | 1.000 | —
7 | 0.839 | —
8 | 0.667 | —
R | 3.317 | 2.678
Ég mun svo halda vel utan um ferlið og deila því sem gert verður og hvað þurfti að gera, og setja hérna inn á þráðinn og vonandi getur það nýst öðrum.

- 8HP.jpg (652.62 KiB) Viewed 169 times
-
- 40 STT Cooper og 44 DC.jpg (3.24 MiB) Viewed 169 times
-
- 90 ára jeppakall.jpg (2.93 MiB) Viewed 169 times
-
- 3cm skurður.jpg (3.16 MiB) Viewed 169 times
-
- nánast nudd.jpg (7.22 MiB) Viewed 169 times
-
- flex.jpg (6.48 MiB) Viewed 169 times
-
- Hosur yfirfarnar inn í Setri.jpg (242.09 KiB) Viewed 169 times
-
- Útkoman.jpg (230.59 KiB) Viewed 169 times
Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur