Sælir félagar
Hér ætla ég að vera með þráð um 4runner sjálfrennireið sem félagi minn keypti upphaflega en svo varð þetta að sameign okkar.
Bifreiðin sem um ræðir er 4runner body á 90 model hilux klafagrind.
Bíllinn kaupum við breyttan einsog hann er í dag, 44'' breyttur á hilux framhasingu og gormum, með stýristjakk og dempara. Lc 80 afturhasingu sem búið er að mjókka og setja loftpúða. 4:88 hlutföll og loftlæsingar á báðum drifum. Tveir áltankar sérsmíðaðir og byrjað á úrhleipikerfi.
Í bílnum var LS vél held annaðhvort lq9 eða lq4 með 4l80 skiptingu og lógír. En við kaupum hann kramlausan.
Bíllinn stóð í dágóðan tíma hjá okkur áður en við létum slag standa og versluðum suburban sem líffæragjafa, úr honum var rifin vél og skipting.
Um er að ræða 5,3ltr vél L59 (LM7) og 4l60e skipting.
Ætlunin er að setja þessa vél í með 4l60e skiptingunni þar aftaná lógírinn NP241 sem hafði verið smíðaður í bílinn með milliplötu við v6 runner millikassann.
Í dag er búið að gera vélina alla upp, skipta um legur, stimpilhringi, pakkningar ofl. Sett var í hana stage 2 trukka knastás frá summit en allt uppgerða settið var verslað þaðan. Við ákvaðum að fara í ekki öflugri knastas í bili þar sem við sleppum með að uppfæra ventlagorma, rockerarma og slíkt með þessu. Orginal rafkerfinu verður hent og tölvunni og smellt á þetta standalone kerfi frá Holley Terminator Xmax fyrir bæði vél og skiptingu. Bætt verður við mat skynjara fyrir lofthita á inntaki og skynjara fyrir eldsneytisþrýsting.
Það á eftir að koma í ljós hvort trukka milliheddið geti sloppið ofaná og eins á eftir að skoða hvaða pústgreinar munu henta þessu verkefni.
Ég set inn myndir af bifreiðinni einsog hún var þegar við kaupum hann og týni svo inn af vinnunni sem búið er að framkvæma til dagsins í dag.
LS 4runner sameignarverk
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 16
- Skráður: 25.jan 2012, 17:36
- Fullt nafn: Hjálmar Björn Guðmundsson
- Bíltegund: LS 4runner
- Staðsetning: Blönduós
LS 4runner sameignarverk
- Viðhengi
-
- FB_IMG_1693859856310.jpg (215.28 KiB) Viewed 6129 times
-
- FB_IMG_1693859853913.jpg (111.4 KiB) Viewed 6129 times
-
- FB_IMG_1693859851515.jpg (112.6 KiB) Viewed 6129 times
-
- FB_IMG_1693859861420.jpg (114.42 KiB) Viewed 6129 times
-
- FB_IMG_1693859858779.jpg (181.93 KiB) Viewed 6129 times
F4x4 Húnvetningadeild
Suzuki Vitara 1600 99 33 PP-002 seld
Hilux 91 2.4 38'' SE-180 seldur
Ford Explorer 91 46" XT-622 í dvala
Toyota 4runner LM7 90 44'' PH648
Suzuki Vitara 1600 99 33 PP-002 seld
Hilux 91 2.4 38'' SE-180 seldur
Ford Explorer 91 46" XT-622 í dvala
Toyota 4runner LM7 90 44'' PH648
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 16
- Skráður: 25.jan 2012, 17:36
- Fullt nafn: Hjálmar Björn Guðmundsson
- Bíltegund: LS 4runner
- Staðsetning: Blönduós
Re: LS 4runner sameignarverk
Cevrolet suburban lúxusbifreið sem var notuð sem líffæragjafi í þetta verkefni
Einsog alltaf þá er vinnugleðin svo mikil að maður gleymir að taka nóg af myndum en það týnist eitthvað saman :)
Vélin var síðan rifin í spað og skoðuð, mikið búið að spá og spekúlera. Henni var skutlað suður í menninguna og sett í þvott og létt hónaðir cylendrar. Heddið og ventlar fóru í Kapp, til fíniseringar fyrir uppgerð.
Á meðan beðið var eftir pakkanum úr ameríkuhreppi þá smelltum við lit á blokkina og ventlalokin.
Tíminn var líka nýttur í að lesa úr sér allt vit á veraldarvefnum, allt um LS vélar uppgerðir ofl ofl Enda pistlahöfundur bara menntaður vírafikti (rafvirki) en vélvirkjamenntaði meðeigandinn fór með yfirverkstjórn yfir uppgerðinni.
Byrjað að raða mótornum saman og allt gert eftir leiðbeiningum, hert eftir specum, mældar rýmdir á legum osfrv
Smellt í hana nýjum knastás sem heitir 8701r1 frá summit, olíudælan aðeins tjúnuð, brúnir í portunum á henni fræstar uppá flæði og bætt við skinnum í lokann í henni til auka aðeins við þrýsting. Uppskriftin kom af youtube frá miklum gáfumönnum.
4L60e skiptinguna ætlum við að nota einsog komið hefur fram til að byrja með, allavega þangað til annað kemur í ljós. Við hendum rafskipta millikassanum sem var í suburbarn til hliðar, og smellum lógír smíðað úr Np241 aftan á skiptinguna, þessi lógír var í bílnum og með sérmíðaðri milliplötu til að fitta við V6 4runner millikassann. Þar sem í bílnum hafði verið 4l80 skipting þurfti að skipta um tengihjólið í lógírnum uppá öxulinn úr skiptingunni. 4l80 er með sverari 32 rillu öxli en 4l60e með 27 rillu, fengum við tengihjólið rétt frá Ljónsstöðum.
Skiptingin mun líklega fá sverari og öflugri pönnu, og verður auðvitað tengd kæli sem fyrir er í bílnum.
Það sem á eftir að koma í ljós, hvort við komum mótornum nógu aftarlega til að láta lengjuna smella uppá v6 millikassann þar sem hann er staðsettur í bílnum og sleppa við að breyta sköptum. Lengdar munurinn felst í að 4l80 er aðeins lengri en 4l60.
Holley rafkerfið er síðan mætt í hús og þarf að bæta við eða mixa 2 skynjara aukalega í verkefnið. Mat skynjara (hitanema í loftinntak) gætum notað hitaskynunina úr Maf skynjaranum úr suburban en ætlum að panta nema frá holley í það. Vss skynjara (hraðaskynara) þarf líklegast að mixa, hann er staðsettur í rafskipta millikassanum í suburban en hugmyndin er að nota hann úr honum, bora í húsið milli skiptingar og lógírs og smella þar uppá öxulinn úr skiptingunni 40 tanna hjóli úr rafskipta kassanum til að fá rétt merki inná Holley tölvuna. Fann reyndar í 4runner um daginn búnað frá dakota digital sem ég á eftir að skoða hvort geti eitthvað nýst í staðinn. Hraðamælirinn í runner fær sitt merki úr v6 kassanum, en það er ekki rétt signal fyrir holley svo einhvern merkjabreyti þarf í staðinn, datt í hug þetta dakota digital dót hefði verið nýtt í svoleiðis.
Til að auðvelda aðeins vinnuna við að koma lengjunni fyrir, var ráðist í að svipta body af grind. En auðvitað fékk maður þá flugu í höfuðið til að bæta ofaná verkefnalistann að mála grindina í leiðinni og ryðverja botninn á bodyinu.
Bíllinn er auðvitað leiðinlega mjór með þessa kanta á bodyinu og eitthvað er búið að vera pæla hvort ekki væri eina vitið að smella patrol hásingum undir, en það verður látið bíða í bili. Fáum dótið allavega í gang og prófum hann eitthað.
Hægt er að klippa helling í viðbót úr body að aftan og þá í leiðnni ef maður færi í hásingar swap að færa þá aftari mun aftar.
Svona er nú staðan í dag og týnum við inn uppfærslur af verkefninu, þar að segja ef maður man eftir því að taka myndir ;)

Aðeins verið að nudda þessu áfram, meðan beðið er eftir sendingu frá summit, þar er eitt og annað að finna en aðallega það sem vantar eru boltarnir til að festa flywheelið.
Búið að rústberja alla grindina og sulla ryðbreyti efni frá wurth á hana.
Búið að rústberja alla grindina og sulla ryðbreyti efni frá wurth á hana.
- Viðhengi
-
- 20230906_222012.jpg (3.56 MiB) Viewed 5976 times
-
- 20230906_203558.jpg (3.4 MiB) Viewed 5976 times
F4x4 Húnvetningadeild
Suzuki Vitara 1600 99 33 PP-002 seld
Hilux 91 2.4 38'' SE-180 seldur
Ford Explorer 91 46" XT-622 í dvala
Toyota 4runner LM7 90 44'' PH648
Suzuki Vitara 1600 99 33 PP-002 seld
Hilux 91 2.4 38'' SE-180 seldur
Ford Explorer 91 46" XT-622 í dvala
Toyota 4runner LM7 90 44'' PH648
-
- Innlegg: 2659
- Skráður: 29.mar 2012, 08:39
- Fullt nafn: Jón Guðmundur Guðmundsson
- Bíltegund: Toyota Tacoma
Re: LS 4runner sameignarverk
Flott þetta!
Persónulega myndi ég ekki fara í Patrol hásingar þarna undir. Afturhásingin er ágætlega sterk, og framhásinguna er hægt að stykja með patrol köggli (eins og er gert fyrir LC80 framhásingar). Hertir öxlar að framan væru svo endanleg trygging.
Persónulega myndi ég ekki fara í Patrol hásingar þarna undir. Afturhásingin er ágætlega sterk, og framhásinguna er hægt að stykja með patrol köggli (eins og er gert fyrir LC80 framhásingar). Hertir öxlar að framan væru svo endanleg trygging.
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 16
- Skráður: 25.jan 2012, 17:36
- Fullt nafn: Hjálmar Björn Guðmundsson
- Bíltegund: LS 4runner
- Staðsetning: Blönduós
Re: LS 4runner sameignarverk
Sælir takk fyrir það, vangavelturnar eru aðallega með hásingar að fá breiðari til að fylla útí kantana og mögulega koma 46 tommu undir.
F4x4 Húnvetningadeild
Suzuki Vitara 1600 99 33 PP-002 seld
Hilux 91 2.4 38'' SE-180 seldur
Ford Explorer 91 46" XT-622 í dvala
Toyota 4runner LM7 90 44'' PH648
Suzuki Vitara 1600 99 33 PP-002 seld
Hilux 91 2.4 38'' SE-180 seldur
Ford Explorer 91 46" XT-622 í dvala
Toyota 4runner LM7 90 44'' PH648
-
- Póststjóri
- Innlegg: 2492
- Skráður: 31.jan 2010, 17:44
- Fullt nafn: Hörður Bjarnason
- Bíltegund: 1988 Ford Econoline
Re: LS 4runner sameignarverk
Það vantar ekki kraftinn í ykkur kumpána.
Með þessa uppskrift af jeppa verður útkoman líklegast stórkostleg ;D
Með þessa uppskrift af jeppa verður útkoman líklegast stórkostleg ;D
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 16
- Skráður: 25.jan 2012, 17:36
- Fullt nafn: Hjálmar Björn Guðmundsson
- Bíltegund: LS 4runner
- Staðsetning: Blönduós
Re: LS 4runner sameignarverk
Þakka þér, já við vonum að þetta standist væntingar.
F4x4 Húnvetningadeild
Suzuki Vitara 1600 99 33 PP-002 seld
Hilux 91 2.4 38'' SE-180 seldur
Ford Explorer 91 46" XT-622 í dvala
Toyota 4runner LM7 90 44'' PH648
Suzuki Vitara 1600 99 33 PP-002 seld
Hilux 91 2.4 38'' SE-180 seldur
Ford Explorer 91 46" XT-622 í dvala
Toyota 4runner LM7 90 44'' PH648
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 16
- Skráður: 25.jan 2012, 17:36
- Fullt nafn: Hjálmar Björn Guðmundsson
- Bíltegund: LS 4runner
- Staðsetning: Blönduós
Re: LS 4runner sameignarverk
Þetta potast allt í áttina þessa dagana. Alltaf gaman þegar eitthvað sést eftir kvölddundið hjá manni, verður víst nóg af dúlleríi og fíniseringum þegar allt er komið á sinn stað.
En grindin er orðin fullmáluð og búið að setja aftur tanka á sinn stað, skiptir og bensín lagnir.
Lengjunni var raðað saman í kvöld til mátunar og mælinga, nema milliplatan var endanlega sett á sinn stað kíttuð og boltuð á v6 kassann. Skipti svo um pönnu á sjálfskiptingunni, hún fékk nýja aFe power pönnu sem er stærri og betri. Hún var bara sótt uppí hillu í næsta skúr, gott að eiga vini sem panta vitlaust.
Máta líklegast bodyið á næst til að sjá hvort það sleppi við að rekast í hedd eða millihedd.

- 20230908_201836.jpg (2.78 MiB) Viewed 5822 times
-
- 20230908_231630.jpg (3.89 MiB) Viewed 5822 times
-
- 20230908_223135.jpg (3.82 MiB) Viewed 5822 times
-
- 20230908_210249.jpg (3.81 MiB) Viewed 5822 times
-
- 20230908_182045.jpg (3.49 MiB) Viewed 5822 times
-
- 20230908_111356.jpg (3.97 MiB) Viewed 5822 times
-
- 20230908_182042.jpg (3.89 MiB) Viewed 5822 times
-
- 20230907_132227.jpg (3.23 MiB) Viewed 5822 times
-
- 20230907_132220.jpg (3.76 MiB) Viewed 5822 times
F4x4 Húnvetningadeild
Suzuki Vitara 1600 99 33 PP-002 seld
Hilux 91 2.4 38'' SE-180 seldur
Ford Explorer 91 46" XT-622 í dvala
Toyota 4runner LM7 90 44'' PH648
Suzuki Vitara 1600 99 33 PP-002 seld
Hilux 91 2.4 38'' SE-180 seldur
Ford Explorer 91 46" XT-622 í dvala
Toyota 4runner LM7 90 44'' PH648
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 16
- Skráður: 25.jan 2012, 17:36
- Fullt nafn: Hjálmar Björn Guðmundsson
- Bíltegund: LS 4runner
- Staðsetning: Blönduós
Re: LS 4runner sameignarverk
Tekin góð vinnutörn í dag, verið að nýta helgina þar sem maður er að stinga af í vinnuferð til Þýskalands alla næstu viku. Verður vonandi kominn restin af dótinu frá ameríkunni þegar maður kemur aftur heim.
Bodyinu var rúntað inn á lyftu á taxanum og slakað niður kom þá í ljós að mótorinn varð að færast fram. Bitinn undir millikassa var losaður og festingarnar soðnar aftur fastar 4cm framar. Síðan voru smíðaðar mótor festingar með smá mixi á orginal mótorpúðana. Nóg pláss uppí húdd frá millihedd, setti mótorinn niður aðeins meira bílstjóramegin til að eiga ekki í hættu á að pannan rekist í framköggulinn. Mögulega tek ég smá af horninu á pönnunni til að eiga inni fyrir stærri köggli.
Þarf eitthvað að skoða fjöðrun í bílnum að framan, finnst hann ekki hafa vera smíðaður með mikinn sundurslátt inni.
Svo er ég með mikinn höfuðverk yfir þessum afturhlera, eini gallinn við þessa bíla en hann er líka stór. Þetta drasl getur tekið upp á því að rúðan kannski fer ekki upp þegar maður þarf að komast í skottið í hríðargargi. Ætli einhver hafi farið í að smíða nýjan hlera á bíl hjá sér, tvískiptann einsog lc 80 eða vængi í sitt hvora átt?

- 20230909_135316.jpg (3.95 MiB) Viewed 5754 times
-
- 20230909_144416.jpg (3.31 MiB) Viewed 5754 times
-
- 20230909_181414.jpg (3.45 MiB) Viewed 5754 times
-
- 20230910_001655.jpg (3.95 MiB) Viewed 5754 times
-
- 20230910_010622.jpg (3.42 MiB) Viewed 5754 times
-
- 20230910_011620.jpg (2.94 MiB) Viewed 5754 times
F4x4 Húnvetningadeild
Suzuki Vitara 1600 99 33 PP-002 seld
Hilux 91 2.4 38'' SE-180 seldur
Ford Explorer 91 46" XT-622 í dvala
Toyota 4runner LM7 90 44'' PH648
Suzuki Vitara 1600 99 33 PP-002 seld
Hilux 91 2.4 38'' SE-180 seldur
Ford Explorer 91 46" XT-622 í dvala
Toyota 4runner LM7 90 44'' PH648
-
Höfundur þráðar - Innlegg: 16
- Skráður: 25.jan 2012, 17:36
- Fullt nafn: Hjálmar Björn Guðmundsson
- Bíltegund: LS 4runner
- Staðsetning: Blönduós
Re: LS 4runner sameignarverk
Jæja það er kominn tími á uppfærslu
Það kom nú smá pása um tíma í þetta verkefni, enda ekkert verið að flýta sér og ágætt að geta sett þetta til hliðar svo maður missi ekki áhugann á þessu. En einsog svo oft þá gleymist að mynda allt ferlið frá A-Ö en hér kemur þó eitthvað af því sem búir er að snudda í þessu. Síðastliðið ár.
Þegar búið var að fullmáta body á með lengjuna í bílnum, var klárað að sjóða allar festingar og ganga úr skugga um að skepnan sitji kyrr í vélarrýminu.
Renndir voru nýjir bodypúðar úr pom og bodyið fest á sinn stað.
Síðan var farið í að grysja aðeins úr gömlu rafkerfi og undirbúa að koma nýju fyrir frá Holley.
Holley vélartalvan fékk sitt pláss í hanskahólfið og skjárinn fyrir hana komið fyrir á sínum stað.
Bætt var við MAT hitaskynjara í loftinntakið, en Holley kerfið þarf að hafa það.
Smá breyting á festingu fyrir inngjafarbarka og síðan smíðuð festing fyrir skiftingarbarka á sjálfskiptingu, það fer endalaus tímí í smá dúdl hér og þar í svona verkefni.
Einsog áður hefur komið fram þarf Holley tölvan hraðamerki á output shaft í skiftinunni. Við mixuðum það með því að taka vss speed sensorinn úr rafskifta millikassanum og tannhjólið á móti honum. Renndum innan úr tannhjólinu til að passa uppá skaftið úr skiptingunni og snittuðum síðan í millhúsið á milli skiptingar og lógírs fyrir skynjaranum.
Ákveðið var að sérsmíða nýjar pústgreinar á vélina, þar sem orginal pössuðu illa. Við létum skera út fyrir okkur flangsa sem var til mál af og síðan var raðað saman suðufittingst og 3ja tommur röri. Pústið afturúr var svo smíðað úr 3ja tommu og tekið út framan við afturdekk.
Föndrað í kringum festingar á nýjum stólum.
Langt síðan verkefnið hefur staðið í 44 tommu barðana, en greyið er svona fjarskafallegur með þessa kanta. Body hefur séð betri daga og það verður líklegast næsta verkefni að taka það í nefið. Endist þó vonandi veturinn.
Komið fyrir nýjum 3ja raða vatnskassa með rafmagnsviftu sem Holley kerfið sér um að kveikja á. Silicon hosur notaðar til að tengja þetta saman. Kassinn var pantaður af ebay.
Farið var í að taka allt í gegn í bremsum að aftan og bæta þurfti réttum handbremsubarka við alla leið uppí handfang.
Það er ágætis hiti útúr þessum bensínbrennara svo það þýddi ekkert annað en að vefja greinarnar til að grilla ekki allt sem liggur nálægt þeim.
Ac dælunni var breytt í loftdælu og sett smurkerfi inná hana, klárað var að leggja í hann úrheipikerfið, 10mm útí hjól og sverað upp útúr kistunni.
Bíllinn kemur vel út í fyrstu prófunum og virkar allt saman. En verkefnalistinn er langt því frá að vera tæmdur einsog held ég hjá öllum jeppamönnum, það er alltaf rými fyrir fleiri breytingar eða bætingar.

Tengdir notendur
Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 1 gestur