Síða 1 af 1

Land Cruiser 120

Posted: 20.feb 2021, 00:45
frá Emil Grettir/YD986
Sælir, veit einhver hvað er hámarkshraðin á lc 120 2004 þegar hann er í 4HI og 4Lo

Re: Land Cruiser 120

Posted: 20.feb 2021, 10:06
frá jongud
Mig minnir að sjálfskiptir LC90 hafi neitað að skipta sér upp fyrir 2. gír í lága drifinu, en það var hægt að komast fyrir það með einhverju trixi, (klippa á einn vír eða eitthvað) Ef þú ert með sjálfskiptan LC120 þá gæti þetta verið flóknara en það, þar sem ég held tölvurnar tali meira saman í 120 en 90

Re: Land Cruiser 120

Posted: 20.feb 2021, 10:50
frá Emil Grettir/YD986
Ég fór allavega út í gær og prófaði þetta og hann skipti alveg upp í 2 gír en er bara aö spá í þessu því að í land cruiser bókinni er sagt að þaö má ekki fara hraðar en 16 en hef samt séð fólk vera að fara vel yfir það í lága drifinu

Re: Land Cruiser 120

Posted: 23.feb 2021, 09:28
frá jongud
Emil Grettir/YD986 wrote:Ég fór allavega út í gær og prófaði þetta og hann skipti alveg upp í 2 gír en er bara aö spá í þessu því að í land cruiser bókinni er sagt að þaö má ekki fara hraðar en 16 en hef samt séð fólk vera að fara vel yfir það í lága drifinu


Hafðu endilega samband við Breyti eða ArcticTrucks, þeir vita allt um þessa bíla og eru liðlegir með svör.