Síða 1 af 2
Forljótur
Posted: 04.feb 2021, 21:35
frá Elvar Turbo
Re: Forljótur
Posted: 04.feb 2021, 21:44
frá Elvar Turbo
Re: Forljótur
Posted: 04.feb 2021, 21:52
frá Elvar Turbo
Re: Forljótur
Posted: 05.feb 2021, 08:21
frá jongud
Hvernig hásingar og milligír ertu með í honum?
Re: Forljótur
Posted: 05.feb 2021, 08:48
frá Járni
Þvílíka bomban! Spennandi og flott verkefni, það væri virkilega gaman að fá nánari lýsingar =)
Re: Forljótur
Posted: 05.feb 2021, 15:49
frá Sævar Örn
þetta er flott hjá þér! veistu hver er heildarlengd og hvað er hjólabil eftir strekkinguna??
Re: Forljótur
Posted: 05.feb 2021, 21:36
frá Elvar Turbo
jongud wrote:Hvernig hásingar og milligír ertu með í honum?
Er með Y60 patrol hásingar
Millikassan fékk ég gefins frá Óskari félaga mínum, þetta er np208 dodge kassi með chevrolet slipyoka og output öxli (hann notaði chevrolet frampart með föstum dodge yoka í torfærubílinn hjá sér) þannig þetta hentaði budgetinum vel hjá mér.
Þurfti að smíða 26mm spacer milli skiptingu og millikassa of smíðaði fastan yoka úr dodge drifskapti og patrol yoka, og svo patrol handbremsuna aftan á hann.
Sköptin eru patrol, vel lengt að aftan og np208 flangs að framan með tvöföldum lið.
Re: Forljótur
Posted: 05.feb 2021, 21:45
frá Elvar Turbo
Járni wrote:Þvílíka bomban! Spennandi og flott verkefni, það væri virkilega gaman að fá nánari lýsingar =)
Já ekkert mál
1990 hilux extracab, 5.7 hemi úr 2005 durango, 545rfe úr sama bíl með transgo shiftkit og dýpri ál pönnu (man ekki hvað hun heitir), ram panna og olíupikkup á mótor.
Framendi lengur um 18cm, boddíið fært aftur um þessa 18cm í staðin fyrir að lengja grindina og skúffan stytt um 20cm.
Patrol y60 hásingar fr/aftan, arb læsing framan (koma myndir seinna) rancho 5000 að aftan sem ég fann undir borði hjá pabba og eitthverjir koni demparar að framan sem voru undir borði líka.
Range rover gorman framan/aftan.
Byrja á orginal hlutföllum
Patrol framstífur framan og aftan (langaði að prufa það)
Lengdur um sirka 55cm milli hjóla man ekki nákvæmlega. Mótor og skipting færð aftur í grindinni um ca 5cm
Recaro stólar ur evo 8, veltibúrið er alfarið smíðað af Árna frey frá Á.S Þjónustinni, mjög flinkur og vel þétt útí boddíið til að spara pláss.
Re: Forljótur
Posted: 05.feb 2021, 21:48
frá Elvar Turbo
Sævar Örn wrote:þetta er flott hjá þér! veistu hver er heildarlengd og hvað er hjólabil eftir strekkinguna??
Takk fyrir vinur gaman að heyra!
Minnir hann var lengur um 33cm afturábak og grind styrkt í boganum og framhásingin fram um ca 16cm.
Heildarlengdin er sú sama og orginal extracab þar sem framendin var lengdur, boddíið fært aftur á grindinni og skúffan stytt um lenginguna að framan.
Markmiðið var að sitja ca í miðjunni á grindinni
Re: Forljótur
Posted: 08.feb 2021, 02:32
frá grimur
Margt sniðugt hér, persónulega hefði ég lagað til afturfjöðrunina frekar en að setja radíus arma, þeir eru uppskrift að hoppiskoppi eiginleikum sem fara illa með drifgetu, sérstaklega í bíl sem er léttur að aftan. Ég átti Galloper sem var með svona original, það kom svosem ekki að sök þar en bara vegna þess hvað hann var afturþungur og máttlaus.
EN, prófa skal og reyna, svo má bara breyta ef þarf!
Flott smíði á þessu, alveg klassa vinna. Gaman að svona flottum framkvæmdum sem eru samt ekki að kosta alltof alltof mikið. Nota það sem maður kemst í og finna út úr hlutunum. Brill.
Takk fyrir að deila myndum og texta!
Re: Forljótur
Posted: 08.feb 2021, 17:22
frá birgthor
Skemmtilegt að fa að fylgjast með, vel unnið budget (ef svo má kalla) verkefni
Re: Forljótur
Posted: 08.feb 2021, 20:45
frá Elvar Turbo
grimur wrote:Margt sniðugt hér, persónulega hefði ég lagað til afturfjöðrunina frekar en að setja radíus arma, þeir eru uppskrift að hoppiskoppi eiginleikum sem fara illa með drifgetu, sérstaklega í bíl sem er léttur að aftan. Ég átti Galloper sem var með svona original, það kom svosem ekki að sök þar en bara vegna þess hvað hann var afturþungur og máttlaus.
EN, prófa skal og reyna, svo má bara breyta ef þarf!
Flott smíði á þessu, alveg klassa vinna. Gaman að svona flottum framkvæmdum sem eru samt ekki að kosta alltof alltof mikið. Nota það sem maður kemst í og finna út úr hlutunum. Brill.
Takk fyrir að deila myndum og texta!
Takk fyrir gaman að heyra
sammála með stífu uppsetninguna, er buin að hugsa þetta í marga hringi síðan ég smíðaði þetta, besta við þetta er að þetta er bara járn þannig lítið mál að breyta!
Re: Forljótur
Posted: 30.jan 2022, 23:58
frá Elvar Turbo
Re: Forljótur
Posted: 02.feb 2022, 21:02
frá Elvar Turbo
Kom farþega stólnum í, þarf svo eitthvað að endurhugsa togstöngina og þverstífu málin hjá mér

- 20220202_204506.jpg (3.71 MiB) Viewed 148695 times

- 20220202_204515.jpg (3.95 MiB) Viewed 148695 times
Re: Forljótur
Posted: 03.feb 2022, 01:22
frá grimur
Áttu ekki bara eftir að snúa liðhúsunum til að fá almennilegan spindilhalla og láta togstöngina sleppa uppfyrir þverstífuboltann í leiðinni?
...bara pæling...
Re: Forljótur
Posted: 05.feb 2022, 14:32
frá íbbi
smíðagleðin alveg á botni, æðislegt dæmi
Re: Forljótur
Posted: 07.feb 2022, 17:39
frá juddi
Glæsilegur og skemtilegur smíða þráður á flottu verkefni
Re: Forljótur
Posted: 08.feb 2022, 15:36
frá Elvar Turbo
Inngjafar pedallinn úr dodgeinum kominn á sinn stað, farin að pæla í skiptirnum langar svoldið að nota þennan sem er á myndinni, kemur úr hemi cherokee.
Á eitthver hér skipti bracketið + barkan úr dodge með 208 millikassan?

- 20220208_153136.jpg (4.01 MiB) Viewed 148124 times
Re: Forljótur
Posted: 10.feb 2022, 17:00
frá Elvar Turbo
Nældi mér í Covid, þurfti ekki að hugsa mig mikið um hvað ég nýti tímann í
Framhásingin í spað, skipta um allar legur og pakkdósir.
Tek lokurnar í burtu og set flangsa í staðinn.
5.13 hlutfall og ARB læsing.
Svo var mér boðið í ferð í mars, ætla að láta reyna á að gera hann ferðafæran en er ekkert rosalega bjartsýnn

- 20220210_164406.jpg (4.54 MiB) Viewed 147913 times
Re: Forljótur
Posted: 19.feb 2022, 22:03
frá Elvar Turbo
Ætla að koma með updeit einusinni í viku á föstudegi eða laugardegi.
Kláraði framdrifið og þrýstiprófaði það
Smíðaði mér specialtool til að koma loft draslinu uppá keisinguna, svoldið nauið að koma o-hringjunum uppá og fatta rétt með ekkert fas.
Smíðaði millistykki fyrir stýrisstöngina sem fer niðrí maskínu til að færa rillustykkið á réttan stað, á eftir að klára hana.

- 20220216_180110.jpg (3.75 MiB) Viewed 147536 times

- 20220213_151945.jpg (4.27 MiB) Viewed 147536 times

- 20220216_180100.jpg (4.12 MiB) Viewed 147536 times
Re: Forljótur
Posted: 26.feb 2022, 16:25
frá Elvar Turbo
Engar myndir þessa vikuna.
Búinn að vera að mæla og pæla, þarf að færa stýrismaskínuna aðeins út svo að stöngin sleppi við mótor.
Er kominn með drifskapt að framan til prufu, var að pæla i að smíða spacer við flangsinn á millikassanum þá get ég notað patrol skapt (munar 30mm)
Rafkerfið er í vinnslu, þarf aðeins að finna útur tölvunni útaf þjófavörninni. Gæti endað að ég sendi hana út til að opna hana.
Kominn með annan hilux útí sveit, ætla að nota botninn úr þeirri skúffu ef hann er ekki haug ryðgaður
Sit núna uppí bústað í kæruleysi og bauk
Re: Forljótur
Posted: 06.mar 2022, 23:07
frá Elvar Turbo
Re: Forljótur
Posted: 13.mar 2022, 21:21
frá Elvar Turbo
Búinn að vera að vinna í stýrinu
Boraði og snittaði maskínuna fyrir tjakkinn
Smíðaði 30mm spacer undir maskínuna svo að stýrisstöngin sleppur við mótorinn
Togstöngin er í vinnslu
Fór svo í varahlutalagerinn og sótti tvö liðhús, aðalega til að fá legustútinn

- 20220309_201141.jpg (3.89 MiB) Viewed 146385 times

- 20220311_175029.jpg (3.98 MiB) Viewed 146385 times

- 20220312_173530.jpg (4.39 MiB) Viewed 146385 times
Re: Forljótur
Posted: 11.maí 2022, 17:39
frá Elvar Turbo
Jæja sjitt maður..
Hef ekkert komist í þetta það er búinn að vera eintómu veseni á daily bílnum en er loksins búinn að ná að laga hann.

- 20220420_223448.jpg (3.43 MiB) Viewed 144693 times
skellti viðhæfandi límmiða á húddið á honum
Svo er nottla sumarið byrjað og sótti bílakúrsdrottninguna.
Ætla að græja hann ásamt því að vera á kafi í torfærunni.

- 20220511_173228.jpg (3.73 MiB) Viewed 144693 times
Annars er ekkert buið að gerast í jeppanum
Re: Forljótur
Posted: 22.maí 2022, 12:37
frá Gormur
Gaman og fróðlegt fylgjast með, takk fyrir að deila þessu með okkur.
Re: Forljótur
Posted: 29.nóv 2022, 22:20
frá Elvar Turbo
Eitthvað að brasa í þessu
Stýrisstöng niðrí maskínu tilbúin, endaði með 90krúsel lið uppvið maskínu, smíðaði millistykki þaðan yfir í wj cherokee stýrisstöng með draglið og þaðan uppi orginal hilux.
Togstöngin er kominn í
Skiptirinn fyrir ssk og millikassa er kominn í og klár
Inngjöfinn er kominn á sinn stað
Er að vinna í að steikja skúffuna hjá mér saman

- 20221122_210651.jpg (3.65 MiB) Viewed 140493 times

- 20221129_210526.jpg (4.4 MiB) Viewed 140493 times

- 20221105_174501.jpg (5.07 MiB) Viewed 140493 times

- 20221126_152920.jpg (4.46 MiB) Viewed 140493 times

- received_657881865873023.jpeg (124.99 KiB) Viewed 140493 times

- 20221105_174115.jpg (4.3 MiB) Viewed 140493 times
Re: Forljótur
Posted: 17.jan 2023, 20:46
frá Elvar Turbo

- 20221209_222740.jpg (4.76 MiB) Viewed 138859 times
Koma bitunum á sinn stað

- received_882683229419437.jpeg (134.16 KiB) Viewed 138859 times
Smíðaði loft tank þarna fyrir úrhleypibúnaðinn

- 20221209_215738.jpg (4.65 MiB) Viewed 138859 times
Annar minni loft tankur framar í grindinni fyrir lásinn (var vel ölvaður að smíða þetta í þarna hehe)

- 20221211_160423.jpg (4.26 MiB) Viewed 138859 times

- received_728971315047150.jpeg (156.09 KiB) Viewed 138859 times
Botninn klár

- 20230107_184834.jpg (4.63 MiB) Viewed 138859 times
Hjólskálar klárar, smíðaðar í yfirstærð svo ég þurfi ekki að breyta þeim ef ég lækka hann

- 20230114_182059.jpg (4.33 MiB) Viewed 138859 times

- received_730993675413960.jpeg (193.79 KiB) Viewed 138859 times
Seinustu stífurnar í búrinu klárar, hel sáttur. Þær eru boltaðar í botninn á pallinum og eru á klemmu sem er boltuð saman ofar á rörunum
Re: Forljótur
Posted: 19.mar 2023, 13:13
frá Elvar Turbo
Hellingur búið að gerast en en engar myndir teknar
En hann drullaðist í gang í gærkvöldi!
https://youtube.com/shorts/JsvprYImY4U?feature=share
Re: Forljótur
Posted: 25.mar 2023, 23:28
frá Elvar Turbo
Jæja eitthverjar myndir af víraflóðinu of því sem ég er búinn að vera að brasa í
Notaði annað orginal durango öryggja/relay boxið. Er að fullnýta öll relayinn, það voru 6 relay í boxinu orginal. 5 fyrir allt tengt mótor, skiptingu og ac dælu fyrir loftkerfi, svo tengdi ég rafmagnsviftuna inná 30amp öryggi inná boxinu og þaðan inna "blower mótor" relayið

- 20230324_204708.jpg (4.53 MiB) Viewed 137312 times
Lúmið frá vélartölvu. tölvan var send út og allt auka ruslið deletað úr henni, þjófavörn og allt draslið

- 20230324_204656.jpg (4.95 MiB) Viewed 137312 times
Í vinnslu (það eru krónutengi og allt raðtengt inná jörðina á geyminum meðan ég er að finna útur öllu)

- 20230324_204638.jpg (4.96 MiB) Viewed 137312 times
Allt auka ruslið sem ég klippti úr original vélarlúminu, þetta er bílmegin úr durangoinum

- 20230324_204727.jpg (4.62 MiB) Viewed 137312 times
Fékk félaga minn í Allt í vinnslu ehf til að græja aftur rúðurnar fyrir mig. Þetta er pappa mót til að máta. Þetta verður skorið úr plexy sem verður filmað báðum megin með glærari filmu svo það verði ekki matt. Smíða svo flangsa úr áli sem boltast í rúðuna með smá nebba framaná þannig ég nota universal öxulhosur sem festast utan um flangsin og utan um veltibúrs stífuna.

- 20230324_204721.jpg (3.79 MiB) Viewed 137312 times
Millistykki sem ég smíðaði fyrir efri vatnskassahosuna, þurfti minnkun svo hosan passaði fyrir vatnskassan og skaut rofanum fyrir viftuna þar

- 20230324_211716.jpg (4.34 MiB) Viewed 137312 times
Millistykkið

- 20230324_204747.jpg (4.01 MiB) Viewed 137312 times
Ef að menn hafa áhuga fyrir hemi swappi látið mig vita hérna í þráðinum. Á rafmagnsteikningar fyrir "standalone" durango rafkerfi. Get sent þær teikningar eða bara sett þær hér inná.
Re: Forljótur
Posted: 29.mar 2023, 11:49
frá Fógetinn
Ég er að setja hemi í 4Runner 90, þessar teikningar myndu koma sér vel.
Re: Forljótur
Posted: 29.mar 2023, 12:35
frá jongud
Fógetinn wrote:Ég er að setja hemi í 4Runner 90, þessar teikningar myndu koma sér vel.
Það er líka hægt að fá tilbúið rafkerfi fyrir vélaskipti;
https://swapspecialties.com/product/hemi-standalone-harness/
Re: Forljótur
Posted: 29.mar 2023, 19:03
frá Elvar Turbo
Ég reyndi að versla við þá mæli eindregið á móti því
Ef þið skoðið umsagnir á þeim þá skiljið þið mig.
Tapaði næstum 100+þ kr á þeim
Re: Forljótur
Posted: 10.maí 2023, 21:18
frá Elvar Turbo

- 20230510_200048.jpg (4.52 MiB) Viewed 136451 time
Raðaði lúxanum aðeins saman til að ýta undir áhugan.
Keypti mjög góðan gang af cebeck á weld racing álfelgum með beadlocki.
Gamli gangurinn er til sölu ef eitthver hefur áhuga, 15x16" patrol felgur með beadlocki, ca 8mm af munstri en tók eftir að það er búið að skera í þau
Leka mismikið og eitt heldur lofti
S:8577915
Re: Forljótur
Posted: 11.des 2023, 20:07
frá Elvar Turbo
Jæja eitthvað að gerast, stærsta fréttinn er nú að ég er búin að snúa bílnum við.

- snúinn við.jpg (191.24 KiB) Viewed 130168 times
tók prufurúnt eftir að hafa verið orðin gjörsamlega gráhærður að finna útúr öllu littlu bilunum í rafkerfi og öðru bara til að geta keyrt hann út, tók prufurúnt í afturhjóladrifinu, gerði ekkert annað en að spóla með öll 40kg ofaná hásingunni að aftan eða hvað þetta er þungt, fór inn setti framskaptið í hann og það var allt annað tæki
flott vinnsla í þessu, tók alla gíra bæði í skiptingu og millikassa.
kom eitt og annað í ljós við prufukeyrsluna, fíni stýristjakkurinn sem ég smíðaði er of stuttur.. þannig þarf að henda í annan áður en hann fer á númer, Autostick eða ETS draslið í skiptirnum virkar ekki, held ég hringi í eitthvern sem hefur vit á tölvudótinu í þessu til að græja það ooog svo er viftan ekki að halda undan, stendur stöðugt í botni og rétt fer niður fyrir 90gráður í lausagang
Annars er ég búinn að vera að taka til inná verkstæði og er kominn í loftsíupælingar. þar sem ég er að vinna við viðgerðir á traktorum þá lá þetta beint við að henda loftsíuboxi úr Massey Ferguson 5455 í hann

- loftsíupælingar.jpg (251.04 KiB) Viewed 130168 times
fyrir ykkur sem eru að pæla í hemi swappi, þetta eru teikningarnar frá mér, þær virka gegn því að scimma PCM tölvuna.
þetta passar eingöngu við durango þar sem cherokee/ram dótið er öðruvísi (og einfaldara)

- durango standalone1.jpg (40.28 KiB) Viewed 130168 times

- durango standalone2.jpg (35.8 KiB) Viewed 130168 times

- durango standalone3.jpg (37.4 KiB) Viewed 130168 times
ef eitthver vill notfæra sér þetta mæli ég með að finna manual yfir durango
-Elvar
Re: Forljótur
Posted: 21.des 2023, 23:01
frá Elvar Turbo
Potast aðeins áfram
Loftsíuboxið tengt, á eftur að koma intake-air temp sensornum fyrir og stút fyrir pcv í inntaksrörið

- received_1099866327844051.jpeg (144.79 KiB) Viewed 129936 times
Re: Forljótur
Posted: 09.jan 2024, 21:01
frá Elvar Turbo
loft inntakið er 95% tilbúið á eftir að koma festingu fyrir sem boltar rörið við vélina, það er smá þyngd í þessu
þetta er smíðað úr riðfríu 90mm röri með 2mm veggþykkt
fékk Árna félaga til að steikja þessu saman

- suða inntakspípa.jpg (198.71 KiB) Viewed 129401 time

- inntakspípa+loftsíubox.jpg (207.78 KiB) Viewed 129401 time
búinn að skipta um viftu á vatnskassanum, keypti mishimoto viftu sem er töluvert öflugari en viftan sem ég var með
er að vinna í því að ganga frá rafkerfinu núna og tengja inná auxbeam boxið, í framhaldi af því er komið af því að raða innréttinguna í hann aftur.
brettakantarnir að aftan voru boltaðir á og pabbi er í því að trebba upp skúffuna og svo verður gefið yfir hana ásamt restinu af boddíinu við tækifæri

- brettakantur+trebbi.jpg (152.16 KiB) Viewed 129401 time
Re: Forljótur
Posted: 24.feb 2024, 22:48
frá Elvar Turbo
snuddast aðeins áfram, hef ekki alveg þann tíma í þetta eins og ég væri til í þannig þetta gerist í hænuskrefum í einu
búinn að vera að raða í hann hnoðróm, markmiðið er að þurfa ekki að halda við eina einustu helvítis ró í vélarsalnum.
Bílstjórameginn í vélarsalnum er auxbeam, öryggjabox og arb loftdæla fyrir framlásin sem verður svo tengd inná auxbeamið

- rafkerfis frágangur.jpg (132.65 KiB) Viewed 128225 times

- festing öryggjabox.jpg (131.81 KiB) Viewed 128225 times
rafkerfið er langt komið, meira og minna allt tilbúið frammí vélarsal fyrir utan auka-rafið sem fer í axubeamið. er búinn að vera að ganga frá því eins snyrtilega og ég kann. finnst þetta koma vel snyrtilega út.
þetta er farþegamegin í vélarsalnum, tölvan og loftsíuboxið eru þarna megin og lúmið verður á felum bakvið það og varla sést. mjög ánægður að framendinn var lengdur á druslunni þar sem vélarsalurinn er alveg að verða svoldið pakkaður
svo að sjálfsögðu setti ég 90's Lund der á hann

- Lund der.jpg (140.58 KiB) Viewed 128225 times
er búinn að eyða meiri tíma sitjandi í vélarsalnum að tengja eitthvað drasl heldur en í bílstjórasætinu..

- hægindastóll.jpg (70.13 KiB) Viewed 128225 times

- frágangur rafkerfi.jpg (144.79 KiB) Viewed 128225 times
Re: Forljótur
Posted: 25.feb 2024, 21:53
frá elli rmr
Virkilega flott hjá þér , gaman að fylgjast með þessu :)
Re: Forljótur
Posted: 28.aug 2024, 09:03
frá Elvar Turbo
Smá uppfærsla
Þurfti að setja dodge bremsurofann í til að fá réttu merkin fyrir park-lockið í skiptir og fyrir tölvu til að setja i gang

- 20240828_085316.jpg (2.28 MiB) Viewed 121865 times
Auka öryggjabox til að dreifa sviss-straum, bakvið innréttinguna setti ég relay sem tekur strauminn beint úr durango öryggjaboxinu.
Í þessu öryggjaboxi er straumur inná obd tengið, asd sviss + ogstraumur fyrir skiptirinn. Notaði orginal hilux ssk stöngina fyrir millikassan og nota overdrive takkan á þeirri stöng

- 20240828_085340.jpg (2.93 MiB) Viewed 121865 times
Búinn að ganga frá lúminu fyrir bensíndæluna ásamt tengja auka raf fyrir bensíndæluna á aukatanki sem fer á auxbeamið

- 20240828_085526.jpg (2.32 MiB) Viewed 121865 times
Er að smíða mock-up rör fyrir miðstöðina á eftir að koma þeim betur fyrir. Var að pæla að nota glussarör í það, hugmyndir um annað efni vel þegið

- 20240828_085547.jpg (2 MiB) Viewed 121865 times
Re: Forljótur
Posted: 31.aug 2024, 13:07
frá Elvar Turbo
handbremsan kominn fyrir, þurfti að lengja barkann þannig ég tengdi bara 2 patrol barka saman, einfalt og þægilegt
haldfangið er v/m við bílstjórasætið þar sem það er andskotann ekkert pláss í þessu

- DiRlPe0j.jpg (105.83 KiB) Viewed 121441 time