Jeep Wrangler 1990árg


Höfundur þráðar
ivarhauks
Innlegg: 85
Skráður: 05.okt 2010, 23:51
Fullt nafn: Ívar Hauksson

Jeep Wrangler 1990árg

Postfrá ivarhauks » 22.feb 2011, 23:18

Sælir, hérna er vetrarverkefnið hjá mér og tengdapabba, búnir að vera að dunda í þessum síðan í september, fórum svosem styðstu leið í breitingum,færðum bara hásingarnar undir fjaðrirnar, orginal hásingar, 4L HO vél, 5 gíra kassi, fjaðrir framan og aftan. En boddyið var tekið alveg í gegn og er bíllinn farinn að taka á sig mynd.
Viðhengi
IMG_3008.JPG
IMG_3006.JPG
IMG_3002.JPG
IMG_3000.JPG
IMG_2999.JPG
IMG_2997.JPG
IMG_2974.JPG
IMG_2973.JPG
wrangler_048.JPG
wrangler_043.JPG




Höfundur þráðar
ivarhauks
Innlegg: 85
Skráður: 05.okt 2010, 23:51
Fullt nafn: Ívar Hauksson

Re: Jeep Wrangler 1990árg

Postfrá ivarhauks » 22.feb 2011, 23:20

Eitthvað spes röðin á þeim hjá mér:)
Viðhengi
006.JPG
009.JPG

User avatar

Tómas Þröstur
Innlegg: 330
Skráður: 19.mar 2010, 10:03
Fullt nafn: Tómas Þröstur Rögnvaldsson

Re: Jeep Wrangler 1990árg

Postfrá Tómas Þröstur » 23.feb 2011, 08:21

Líst vel á fjaðrabúntin - temmilega hár og fínn. Blaðfjaðrir eru vanmetnar - sérstaklega löng USA fjaðrablöð sem fjaðra og hafa bara ágætis teygju og lifa í flestum tilfellum bílinn. Vantar stundum burðinn en hægt að fjölga blöðum.

User avatar

jeepson
Innlegg: 3176
Skráður: 31.jan 2010, 16:02
Fullt nafn: Gísli J Gíslason
Bíltegund: Nissan patrol
Staðsetning: Þarna fyrir austan.

Re: Jeep Wrangler 1990árg

Postfrá jeepson » 23.feb 2011, 18:53

Djöfull er hann svalur þessi :)
Kv. Gísli

Nissan Patrol 1992 6.5 detroit diesel 46" Trölli
Isuzu Trooper 2003 3.1 TDI[b]37"/b] vinnu og veiði bíllinn
Audi Q7 3.0 TDI frúar vagninn


SævarM
Innlegg: 165
Skráður: 05.feb 2010, 16:19
Fullt nafn: Sævar Már Gunnarsson
Staðsetning: Sandgerði

Re: Jeep Wrangler 1990árg

Postfrá SævarM » 24.feb 2011, 21:18

þarf ekki að skella honum í nokkra tíma í taninu hann er svo hvítur :)
Jeep willys 64, Torfærubíll
TurboCrew Offroad Team


Höfundur þráðar
ivarhauks
Innlegg: 85
Skráður: 05.okt 2010, 23:51
Fullt nafn: Ívar Hauksson

Re: Jeep Wrangler 1990árg

Postfrá ivarhauks » 24.feb 2011, 21:23

Heheh nei 040 toyota hvítur er bestur og smá svart með, já ég er ekki ennþá búinn að prufa hann neitt þannig að ég vill ekkert tjá mig um fjaðrabúntin ennþá, en mig vantar drifskaft af aftan ef einhver veit um svoleiðis á lausu:)

Kv Ívar Hauks
S:8205658

User avatar

Kiddi
Innlegg: 1160
Skráður: 02.feb 2010, 10:32
Fullt nafn: Kristinn Magnússon
Bíltegund: Wrangler 44"

Re: Jeep Wrangler 1990árg

Postfrá Kiddi » 24.feb 2011, 21:44

Já stærsti gallinn við fjaðrirnar er að það fer ekki alveg svo rosalega vel saman að fá þær til að fjaðra skemmtilega og koma á sama tíma miklu afli frá mótor og út í hjól á sama tíma...
Það er ekkert mál að fá fjaðrirnar til að fjaðra flott, en svo þegar það á t.d. að hjakka þá veltur hásingin fram og aftur og allt í ruglinu. Sumir "leysa" það með því að setja stífu með fjöðrunum til að halda hásingunni en þá steinhættir þetta dót að fjaðra og verður eins og versta hestakerra því það stoppar hreyfinguna í hengslunum, fjöðrin verður jú að geta lengst og styst ekki satt

User avatar

jeepcj7
Innlegg: 1697
Skráður: 01.feb 2010, 08:46
Fullt nafn: Hrólfur Árni Borgarsson
Bíltegund: F-250 Powerstroke
Staðsetning: Akranes

Re: Jeep Wrangler 1990árg

Postfrá jeepcj7 » 24.feb 2011, 23:11

Sammála Kidda aðalvandamálið við blessaðar fjaðrirnar er ekki fjöðrunin sem slík heldur að halda aftur af vindingnum á hásingum undan átaki frá stórum hjólum þessi vindingur og hopp sem honum fylgir er alveg hryllingur og trackið fer á veg allrar veraldar,síðan bara brotna helv.... flatjárnin fyrir rest eða drifskaftið.
Heilagur Henry rúlar öllu.


Til baka á “Jeppinn minn”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 79 gestir