Síða 1 af 1
					
				Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 02.feb 2019, 05:10
				frá baraÆgir
				Sælir spjallverjar, ætla reyna halda utanum þráð um nýjasta Hiluxinn.  Þetta er semsagt eldgamall extracab lúxus sem hóf líf sitt sem v6 hryllingur, en var með volvo vél í svolítinn tíma en þegar ég kaupi hann þá var búið að klístra ofaní 2.4 turbolausri toyotu vél sem ég var fljótur að slíta uppúr.  Átti til 1KZ-TE vél sem ég hafði hugsað ofaní hann en festi kaup á Isuzu CrewCab 3.1TD sem ég ætla að nota lengjuna úr frekar, 3.0 Toyota vélin er til sölu by the way. Þetta fer hægt af stað vegna skólagöngu og get bara unnið í þessu um helgar, pantaði frá Bretlandi í 3.1 tímareimarsett, vatnsdælu, vatnslás, kúplingu og pakkningarsett fyrir heilar 29þús íslenskar krónur sem ég tel vera nokkuð gott!  Fer í það bráðlega að sækja líffæragjafann og þá er hægt að fara möndla þessu saman :) Læt einu myndina sem ég á af dýrinu fylgja
			
		
				
			 
- hilux.jpg (352.41 KiB) Viewed 36793 times
  
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 02.feb 2019, 06:47
				frá sukkaturbo
				Jamm verður gaman að fylgjast með þessu hjá þér félagi
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 02.feb 2019, 11:15
				frá íbbi
				laglegur bíll.  sá hann auglýstann um daginn,  hef verið að renna hýru auga til þessara lúxa síðustu vikurnar
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 10.feb 2019, 20:03
				frá baraÆgir
				Jæja helgin var nýtt í að ná í líffæragjafann og spaðrífann, þessi annars glæsilegi Isuzu Pickup með 3.1 ekinn litla 190þ km!
Mjög sprækur mótor en þorði ekki mjög hratt því það er lítið sem ekkert um bremsur í boði.
			
		
				
			 
- FE0815D4-E06B-41E4-9FEF-8815D1950604.jpeg (1.8 MiB) Viewed 36512 times
 Slípirokkur, slaghamar, bílalyfta, 14mm og 17mm toppar og hjartað laust
			
		
				
			 
- 3FB3750C-CA0D-4ABB-B9F3-0184475F2774.jpeg (533.6 KiB) Viewed 36512 times
 Nú er bara að slíta kassan af, skipta um kúplingu, slíta heddið af og skipta heddpakkningu, tímareim og vatnsdælu.  Þarf eitthvað að skoða legur í svona mótor ekinn 190þ?
			
		
				
			 
- 56AC5113-CA07-4D9B-AB32-44B003119619.jpeg (2.59 MiB) Viewed 36512 times
 Gamli Ford dregur vélarvana Hiluxinn
Hvernig AC dælu hafa menn skrúfað á þessar vélar? notast við orginal dælurnar og breyta þeim eða eitthvað annað?
 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 10.feb 2019, 21:07
				frá StefánDal
				Gaman að sjá að það séu enn svona verkefni í gangi!
Ég er mikill áhugamaður um 4jg2 vélina og hrifinn af Hilux. Þessi blanda getur ekki klikkað. Hvað varðar ac dælur þá myndi ég bara nota dæluna sem er á vélinni. Fullt af uppl á netinu um hvernig best sé að ganga frá svona dælum.
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 18.feb 2019, 03:37
				frá baraÆgir
				Smá update
Skellti mér sem co-ari á fjöll um helgina og náði bara rétt að kíkja á bílinn núna í kvöld
Þorrablót hjá Húnvetningadeild 4x4 í Ströngukvísl
			
		
				
			 
- 1E6AAE5E-3895-4C4E-A0DD-F809A5B2BD2F.jpeg (1.65 MiB) Viewed 36292 times
 En hvað um það reif úr lúxanum í kvöld teppið, hluta af innréttingu og allt komlett v6 rafkerfið
			
		
				
			 
- 428379C9-896F-4CCA-AFCF-56977929D877.jpeg (3.32 MiB) Viewed 36292 times
 
			
		
				
			 
- B13CDD10-5E06-42AD-B77F-61CCCB76765A.jpeg (3.06 MiB) Viewed 36292 times
 
			
		
				
			 
- 84E47591-5EF6-4688-AC5C-62278884AACB.jpeg (3.64 MiB) Viewed 36292 times
 Svona á orginal ósnert gólfið frá 1990 að lýta út, bara ryk og drulla á því, þetta er alveg nær óryðgað! þvílikt gott eintak ryðlega séð.  Bara loka einu gati á miðju gólfinu sem var fyrir aftari gírstöngina þegar að hann var með tvo kassa.  Sat í bílnum um helgina sem prýðir þessa lengju í dag og þetta er hreint magnað að hræra í tveimur og jafnvel þremur stöngum í snjónum, alltaf til réttur gír
			
		
				
			 
- E5ACC646-E600-4545-937E-82CED8217BD2.jpeg (3.03 MiB) Viewed 36292 times
 Húddið orðið heldur tómlegt 
			
		
				
			 
- F733CDC3-58AA-40B1-86B2-FE20FA9DB801.jpeg (3.09 MiB) Viewed 36292 times
 Allt komplett bensínrafkerfið, set rafkerfi úr dísel bíl til að fá dísel öryggjabox og svona
			
		
				
			 
- 539B7788-6291-4D58-B6A4-5BD76A419B0C.jpeg (3.87 MiB) Viewed 36292 times
 Hentugt að vera með pallbíl undir dótið
			
		
				
			 
- B1F3EF41-8EE6-4A0F-AC5C-9073C4BA21C9.jpeg (3.31 MiB) Viewed 36292 times
 3.1 bjútíið bíður eftir að láta slaka sér ofaní næztu helgi..
			
		
				
			 
- 603C0786-7AD0-457A-814E-48CCA5ECA694.jpeg (3.4 MiB) Viewed 36292 times
 EGR ruslið rifið af og hent beinustu leið í ruslið
			
		
				
			 
- FE3767A5-5C4E-4957-85CD-19A583D6E90E.jpeg (4.23 MiB) Viewed 36292 times
 Tveir svona keyptir, lágir og fínir svo hausinn sé ekki límdur við toppinn, hálf körfustólalegir þannig það má kalla þetta sportbíl
			
		
				
			 
- A4FC69C5-0636-4390-A4D6-8358DA1C48FF.jpeg (253.33 KiB) Viewed 36292 times
 Nú væri fínt að fá álit hjá mönnum, hvernig lýst ykkur á þessa staðsetningu? kaupi bílinn svona og er að velta því fyrir mér að breyta þessu
			
		
				
			 
- BE3EA9E4-DF81-45AE-ABD3-EA95EE0459AC.jpeg (2.29 MiB) Viewed 36292 times
  
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 18.feb 2019, 08:43
				frá villi58
				Breyttu þessu í hvelli.
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 18.feb 2019, 09:12
				frá jongud
				Þetta er ekkert ofboðslega sniðugur staður fyrir úthleypibúnað, 
en úr því að það er búið að koma honum fyrir,
 og ef hann virkar þarna,
og ef þér finnst í lagi að vinna með kranana þarna,
þá myndi ég ekki breyta þessu.
Það er jú ekkert ofboðslega mikið pláss í Hilux þannig að þetta er ákveðin lausn á því vandamáli.
Þetta eru allavega mínar 2,38Kr.
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 18.feb 2019, 17:28
				frá StefánDal
				Ég myndi hafa kistuna þarna áfram. Fáir betri staðir í boði. Það væri ekki úr vegi að smíða eitthvað í kringum hana svo þetta lýti betur út. 
En hvaða bíll er með lengjuna í dag?
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 18.feb 2019, 19:21
				frá baraÆgir
				Það er gamall 4Runner á 44" á Hvammstanga, mjöög flottur bíll
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 22.apr 2019, 03:19
				frá baraÆgir
				
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 22.apr 2019, 17:05
				frá Startarinn
				Það var snilld að vera með 2 gírkassa. engin þörf á að breyta hlutföllum, bíllinn er væntanlega ennþá með 4,56:1 
Ég notaði 3ja gír á 41", 4ða á 38" og 5ta á 225/75R15
og 3-5 gír var þægilegt millistig milli 3-4 og 4-4 þegar það var keyrt á 38"
Mér finnst sorglegt fúskið sem var unnið á bílnum milli þess að ég sel hann og þar til Ægir eignast hann, sé að hann er í góðum höndum í dag
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 23.apr 2019, 02:35
				frá baraÆgir
				Já sumt sem var búið að fúska var ótrúlegt, sem dæmi þá losaði ég aðra mótorfestinguna af grindinni með 3 léttum höggum frá léttum slaghamri og "vaccumið" inná bremsukútinn var teipuð garðslanga sem lá frá lofthreinsara yfir í bremsukút, stúturinn á vaccumdælunni stóð bara opinn útí loftið haha.  Já bíllinn er ennþá á 4,56 en varðandi gírkassana þá er ég sammála þér, sat sem co-ari í bílnum sem prýðir þá gírkassa í dag og það var alveg hreint magnað að sjá þetta í actioni :) Það fer undir hann 9" Pajero afturhásing og 60 cruiser að framan með 4:88 hlutföllum næsta sumar.
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 23.apr 2019, 07:38
				frá Hailtaxi
				3.1l mótorinn kom í einhverjum second gen Trooperum, og þá var notaður sami gírkassi og við 4JX1 (3L vélina).  Þá er sett á mótorinn Dual Mass Flywheel, stærri kúplingsdiskur og auka milliplata, bæði til að kassinn passi og líka til að búa til pláss fyrir swinghjólið.
Ef þú ferð með bílinn á mjög stóra skó og þessi kassi höndlar það ekki þá hefurðu möguleikann á því að setja stærri kassa við vélina og það er mestmegnis bolt-on, og kannski líka skera-úr, og smá berja-til, og svo framvegis :-)
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 26.apr 2019, 01:40
				frá baraÆgir
				Hailtaxi wrote:3.1l mótorinn kom í einhverjum second gen Trooperum, og þá var notaður sami gírkassi og við 4JX1 (3L vélina).  Þá er sett á mótorinn Dual Mass Flywheel, stærri kúplingsdiskur og auka milliplata, bæði til að kassinn passi og líka til að búa til pláss fyrir swinghjólið.
Ef þú ferð með bílinn á mjög stóra skó og þessi kassi höndlar það ekki þá hefurðu möguleikann á því að setja stærri kassa við vélina og það er mestmegnis bolt-on, og kannski líka skera-úr, og smá berja-til, og svo framvegis :-)
Já ég þekki það einmitt, hef sett 3.1 ofaní 3.0 Trooper :)
 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 30.okt 2019, 02:29
				frá baraÆgir
				Í þessum hefur ekki gerst rassgat :) hef bara verið að verzla hitt og þetta til að fara breyta en þetta tekur u-beygju núna og fara breytingar á fullt, nú skal druslan á stærri dekk, búið að versla nýja 200a Mig suðu, 200a Tig suðu, 44" kanta af Gunnari Ingva, 1KZ-TE mótor og beinskiptann kassa, megnið í úrhleypibúnaðinn, Fini dælu, aðra Pajero afturhásingu með loftlás og 5:29, barkalæsta LC60 framhásingu og nýtt 5:29 hlutfall í hana á leiðinni frá Ammríkunni :) mig vantar 44" DC dekk á 16-18" breiðum 6 gata felgum ef einhver lumar á slíku :)
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 31.okt 2019, 02:10
				frá baraÆgir
				baraÆgir wrote:Í þessum hefur ekki gerst rassgat :) hef bara verið að verzla hitt og þetta til að fara breyta en þetta tekur u-beygju núna og fara breytingar á fullt, nú skal druslan á stærri dekk, búið að versla nýja 200a Mig suðu, 200a Tig suðu, 44" kanta af Gunnari Ingva, 1KZ-TE mótor og beinskiptann kassa, megnið í úrhleypibúnaðinn, Fini dælu, aðra Pajero afturhásingu með loftlás og 5:29, barkalæsta LC60 framhásingu og nýtt 5:29 hlutfall í hana á leiðinni frá Ammríkunni :) mig vantar 44" DC dekk á 16-18" breiðum 6 gata felgum ef einhver lumar á slíku :)
Fyrsta mátun á einum kanti bara uppá gamanið
			
		
				
			 
- 0631ED27-D014-401C-B4F4-9B32437F608D.jpeg (2.98 MiB) Viewed 33379 times
  
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 31.okt 2019, 08:58
				frá hjallz
				Hvað varstu búinn með marga í gærkveldi þegar þú settir inn mynd af mátuninni ;)
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 03.nóv 2019, 14:14
				frá baraÆgir
				Skera felgur
			
		
				
			 
- C05FF396-6FAB-4E5A-AFBF-B979DF8E2142.jpeg (2.82 MiB) Viewed 33076 times
 Pajero hásing í snyrtingu
			
		
				
			 
- 1ECC2FE2-73A8-4A81-97B1-1BAD14FE1039.jpeg (3.51 MiB) Viewed 33076 times
  
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 03.nóv 2019, 15:55
				frá ÓskarÓlafs
				Lúkkar vel, gaman að fylgjast með
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 07.nóv 2019, 01:58
				frá baraÆgir
				Eitthvað að ske, Pajero hásing klár fyrir stífuvasa
			
		
				
			 
- 8C5EFA4A-C531-429C-AC3B-60FF0893E787.jpeg (4.07 MiB) Viewed 32781 time
 Byrjað að skræla LC60 hásinguna
			
		
				
			 
- 745717E6-E39D-4B52-9993-DFD685EC38B3.jpeg (3.68 MiB) Viewed 32781 time
 Pakkadagur, allt komplett nýtt í framhásinguna, allar legur, pakkdósir, 5:29 hlutfall, 10mm Landvélahné og mælir og ég veit ekki hvað og hvað
			
		
				
			 
- 2B323D87-7949-4E88-964B-70A59FA59444.jpeg (1.94 MiB) Viewed 32781 time
 Smíðaði kerru undir suðuvélarnar svo núna er bara að fara stilla undir hásingar og smíða fjöðrun
 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 07.nóv 2019, 21:22
				frá siggiey
				Gamli Fordinn seigur !
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 10.nóv 2019, 21:55
				frá baraÆgir
				Smá óvænt u-beygja, hugsaði með mér um daginn blönduna af 3.1 isuzu og 46" dekkjum og leyst hálf illa á það, sá þá á sama augnabliki þetta fína kram til sölu, þetta er semsagt 3.0 1KZ-T úr 4Runner, búið að stækka element í olíuverki, yfirfara spíssa ofl ofl, nokkuð viss um að hún eigi meiri séns að snúa 46" MT dekkjunum, þá er bara að byrja aftur og smíða þessa ofaní
			 
			
					
				46" breyting og ný vél
				Posted: 26.nóv 2019, 18:06
				frá baraÆgir
				Fann nálargat á orginal pústgreininni á 1kz vélinni, fínasta ástæða til að uppfæra
			
		
				
			 
- A87D81E9-4D06-47D7-A178-B70B239DE6FC.jpeg (3.39 MiB) Viewed 32036 times
 Boltað á svert skúffujárn svo að draslið vindi sig ekki í allar áttir í suðu
			
		
				
			 
- 35FB74A0-5F7C-48AC-84DB-5C32A802BD07.jpeg (2.14 MiB) Viewed 32036 times
 Draslið meirasegja passaði
			
		
				
			 
- 5DE530E9-79FE-43F9-8234-9E2F6EAF6A35.jpeg (3.33 MiB) Viewed 32036 times
 
			
		
				
			 
- 4A493A2A-4120-46FD-94B5-9C3DC9D9254D.jpeg (3.14 MiB) Viewed 32036 times
 Þessi er fullstór, Holset HX30W fer á en klára að smíða greinina þegar að hún lendir á klakanum
			
		
				
			 
- 7CBB02E7-3806-42C3-933D-C7DB1568DAD7.jpeg (2.91 MiB) Viewed 32036 times
 3 raða álkassi var að lenda frá útlandinu, reyna að koma í veg fyrir að þessi vél hitni, henni er víst meinilla við háann afgas og vatnshita
			
		
				
			 
- 8A5C1F48-B098-4E68-BC30-EC83D6A14763.jpeg (4.07 MiB) Viewed 32036 times
 
			
		
				
			 
- 5A0650B8-D6F6-4012-A442-BBA09A486B6B.jpeg (3.25 MiB) Viewed 32036 times
  
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 08.des 2019, 20:01
				frá baraÆgir
				Meistari Þórir Gísla breikkaði fyrir mig felgur sem enduðu í 16x19.5", fer í það í vikunni að sjóða eyru á fyrir spangir, mála og vefja 46" gúmmíinu utanum þær.
			
		
				
			 
- 15D90F0C-FF56-4F90-80B5-A162761D717B.jpeg (3.3 MiB) Viewed 31655 times
 
			
		
				
			 
- 505A400A-E327-4818-8E79-1C8EFC268E82.jpeg (2.91 MiB) Viewed 31655 times
 Nú fer eitthvað loksins að ske :)
			
		
				
			 
- 21855DE8-7EF0-4215-8B50-ADE45BFFE6E9.jpeg (3.4 MiB) Viewed 31655 times
  
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 04.jan 2020, 05:26
				frá baraÆgir
				Áfram gakk
46" mátuð á felgu
			
		
				
			 
- 7CFEDA94-7822-4538-8EC1-12CAF4312F79.jpeg (3.38 MiB) Viewed 31123 times
 Skera smá
			
		
				
			 
- 3D0BC313-535A-4973-A39E-68A683362333.jpeg (3.47 MiB) Viewed 31123 times
 Kláraði loksins pústgreinina og setti mótorinn í
			
		
				
			 
- 54DB3B4F-6756-4208-A7AD-DDD9EE836BAF.jpeg (3.42 MiB) Viewed 31123 times
 
			
		
				
			 
- A3AD8CB8-DBEE-4265-9A97-33288AFED5E1.jpeg (479.22 KiB) Viewed 31123 times
 Lent og soðin föst
			
		
				
			 
- 6BB9BF91-AE0B-488D-A1BA-A158599E48ED.jpeg (3.19 MiB) Viewed 31123 times
 Breyta þarf miðstöðvarrörum til að koma 3" downpipei fyrir
			
		
				
			 
- 78DD968C-E433-4C7B-A580-4869D1063DCE.jpeg (2.98 MiB) Viewed 31123 times
 Slef á túrbínu, renndi niður 1" nippiltengi og sauð á orginal flangsinn
			
		
				
			 
- 2C582F1C-5590-4B5E-9161-16F727F29D4B.png (12.02 MiB) Viewed 31123 times
 Nokkuð gott held ég bara
			
		
				
			 
- 6793ABC7-85F7-4860-9197-6982218F0C18.jpeg (254.38 KiB) Viewed 31123 times
 Olía inná túrbínu klár
			
		
				
			 
- 671B04DB-8F55-44CD-879E-A51736E99931.jpeg (3.31 MiB) Viewed 31123 times
 
			
		
				
			 
- C291916E-FA68-4BCF-8D80-45B316CA5333.jpeg (3.37 MiB) Viewed 31123 times
 Stýrislagnir klárar
			
		
				
			 
- 8CA438C4-BF4D-4726-A7FB-F2DB64E177FD.jpeg (3.13 MiB) Viewed 31123 times
 Gírstangir skornar til og soðnar aftur saman
			
		
				
			 
- EFB07150-44AA-4E92-BAE4-CC365AE82FA4.jpeg (2.82 MiB) Viewed 31123 times
 Keyptar 15x16" felgur og 42" garmar fylgdu, þær eru þarna undir eitthversstaðar
			
		
				
			 
- 053BB1CD-261E-4242-A029-DE00537FF8F2.jpeg (2.41 MiB) Viewed 31123 times
 Verður á 44" fyrst um sinn
			
		
				
			 
- 3C39BF33-0B72-477A-A269-B0BA48258885.jpeg (2.63 MiB) Viewed 31123 times
 Staðan, stefnt á gangsetningu á sunnudaginn
			
		
				
			 
- B3864C49-90F2-4123-9EB5-86D6197D5A00.jpeg (2.96 MiB) Viewed 31123 times
  
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 04.jan 2020, 18:01
				frá Startarinn
				allt að gerast, líst vel á þetta
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 04.jan 2020, 23:44
				frá íbbi
				þessi 42".  er hún nothæf :D ?
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 05.jan 2020, 00:11
				frá baraÆgir
				íbbi wrote:þessi 42".  er hún nothæf :D ?
Hún heldur lofti og allt svoleiðis en ekkert gaman að keyra á henni.
 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 05.jan 2020, 22:59
				frá jeepcj7
				Endalaust dugnaður bara flott hjá þér :- )
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 14.jan 2020, 19:56
				frá baraÆgir
				Lítið dund er betra en ekkert
			
		
				
			 
- 03C2ACAE-316A-411C-A768-0A2720426DE5.jpeg (3.35 MiB) Viewed 30565 times
 Miðstöðvarrörum breytt til að koma 3" pústi frá túrbínu
			
		
				
			 
- 98076038-008A-4F13-9A9B-A4C4B4B6CAE3.jpeg (3.1 MiB) Viewed 30565 times
 Þetta er betra :)
Nú bíð ég bara eftir intercooler, álrörum og sílikonhosum þá fer ég bara að fara setja í gang
 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 19.jan 2020, 03:05
				frá baraÆgir
				
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 19.jan 2020, 09:59
				frá jongud
				Flott þetta, notaðirðu aukaplaśsið eftir upphækkunina á boddíinu til að koma fyrir vatnskassa sem var meira á hæðina?
			 
			
					
				Re: Toyota Hilux Extracab 1990
				Posted: 30.jan 2020, 14:26
				frá baraÆgir