Síða 3 af 6
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 09.jún 2018, 17:59
frá Sævar Örn
Setti 37" nankang undir bílinn og brunaði beint inn Þórsmerkurveg á 12 pundum mjög sáttur dekkin eru hringlótt og hljóðlát hvað annað þarf maður fyrir sumardekk, gírunin er rétt og hraðamælirinn, m.v 38" dekk, var allt of lágt gíraður á 35"
- 34874218_10157602749702907_4408339129645924352_o.jpg (800.56 KiB) Viewed 42543 times
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 14.aug 2018, 20:51
frá Sævar Örn
Nóg búið að vera um að vera... Skrapp suðurfyrir Hofsjökul um verslunarmannahelgi og svo syðra fjallabak nú þessa helgi
Bíllinn stendur sig vel, og ferðavagninn líka
meira á sabi.is
- Á tjaldsvæði við Kjóastaði
- 20180805_161744.jpg (3.7 MiB) Viewed 42141 time
Setur - Kerlingarfjöll ofl.
- Á Öldufellsleið
- 20.jpg (32.55 KiB) Viewed 42141 time
Syðra fjallabak
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 14.aug 2018, 20:53
frá Sævar Örn
- Lengi hefur staðið til að taka til hendinni á verkstæðinu, létt er það með góðum flutningabíl..!
- 39145057_10157799241827907_7731258462163697664_o.jpg (471.99 KiB) Viewed 42141 time
Notaði pallinn í fyrsta sinn í gær...!
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 15.aug 2018, 08:23
frá jongud
Sævar Örn wrote:Nóg búið að vera um að vera... Skrapp suðurfyrir Hofsjökul um verslunarmannahelgi og svo syðra fjallabak nú þessa helgi
Bíllinn stendur sig vel, og ferðavagninn líka
meira á sabi.is
Flottar myndir þarna inni, og sniðugt að bera saman myndir frá í vetur.
Það þarf greinilega að stika leiðina inn í Kisugljúfur og laga utanvegaför.
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 15.aug 2018, 08:52
frá Sævar Örn
jongud wrote:Sævar Örn wrote:Nóg búið að vera um að vera... Skrapp suðurfyrir Hofsjökul um verslunarmannahelgi og svo syðra fjallabak nú þessa helgi
Bíllinn stendur sig vel, og ferðavagninn líka
meira á sabi.is
Flottar myndir þarna inni, og sniðugt að bera saman myndir frá í vetur.
Það þarf greinilega að stika leiðina inn í Kisugljúfur og laga utanvegaför.
Já mikið er ég sammála og væri til með að aðstoða við slíka för, þarna er gróður að taka við sér á melunum en líklega myndast þarna stöðuvatn í leysingum. Íburðarefni gæti hjálpað en nóg er af því við árfarveg Kisu.
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 29.nóv 2018, 23:23
frá Sævar Örn
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 10.des 2018, 07:19
frá sukkaturbo
Jamm er í lagi með stóru öryggin fram í vélarsal vinstramegin og botninn í því húsi losa það upp og velta því við og skoða það neðan frá
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 10.des 2018, 08:23
frá Sævar Örn
- running light reley
- 20181208_174036.jpg (2.81 MiB) Viewed 41197 times
jamm fæ 12v á allt en vantar jarðir við releyin mig grunar þær stoppi í þessu boxi
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 12.des 2018, 20:23
frá Sævar Örn
Jæja ég fékk annað box hjá Jamil frábær þjónusta og komin ljós allt í gúddí, þetta sama box til í yaris og corolla á sama aldri og víst nokkuð gjarnt á að bila !
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 16.des 2018, 14:57
frá elli rmr
Jamil er eðalmaður að eiga við finst mér :D og gott að skoðunarmaðurinn sé kominn með ljós :D
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 16.des 2018, 18:12
frá Sævar Örn
- málaði og ryðvarði hurðarkarminn
- 12.jpg (56.85 KiB) Viewed 40877 times
- Frágangur á mælaborðinu aftur, henti helling af óþarfa víradrasli
- 11.jpg (72.13 KiB) Viewed 40877 times
- Fyrst hurðin var af, þá smellti ég nýjum lömum á
- 10.jpg (111.42 KiB) Viewed 40877 times
- frábært efni en mjög ógeðslegt
- 16.jpg (636.08 KiB) Viewed 40877 times
- kemur bara vel út, en leitt að þurfa að þurrka af öllu gúmmíum
- 15.jpg (536.56 KiB) Viewed 40877 times
- keypti fluid film og sprautukönnu
- 14.jpg (398.01 KiB) Viewed 40877 times
- fékk púströr frá ameríku, túbur og prófaði að stinga þeim upp á endann á pústinu, allur hávaði hvarf...!
- 13.jpg (375.54 KiB) Viewed 40877 times
- komið undir bílinn nokkuð sáttur, en nú langar mig í rörabeygjuvél!
- 21.jpg (484.44 KiB) Viewed 40877 times
- túburnar að festast saman
- 18.jpg (399.06 KiB) Viewed 40877 times
- setti rúðupissið þarna, universal kitt frá summitracing
- 17.jpg (430.26 KiB) Viewed 40877 times
- þarna á ég nýtt hlutfall fékk á 11.000 í artic tilboði
- 26.jpg (96.37 KiB) Viewed 40877 times
- drifið sjálft gott og gírarnir bara slitnir en alls ekki ónýtir, bíð með að skipta þar til ég eignast loftlás
- 25.jpg (108.78 KiB) Viewed 40877 times
- hand hand handónýt
- 24.jpg (100.75 KiB) Viewed 40877 times
- legan sem heldur lengri öxulstubbinum handónýt
- 23.jpg (80.15 KiB) Viewed 40877 times
- framdrifið úr, og sundur
- 22.jpg (97.58 KiB) Viewed 40877 times
- komin aussie locker LOKKA sé til hvernig það reynist
- 27.jpg (376.77 KiB) Viewed 40877 times
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 17.des 2018, 10:58
frá elli rmr
Dugnaður í þér
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 22.maí 2019, 21:52
frá sonur
Ég er búinn með tvær rútur og það tók mig tvær helgar að lesa allt í þaula, klikkaður dugnaður, ég ætti að taka þig til fyrirmyndar og halda mér bara við 1 eða 2 project frekar en 13stk og allir í einhverjum lagfæringum (grenjukallemoji)
Haltu þessu áfram!
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 11.okt 2019, 16:07
frá Magnús Þór
sonur wrote:Ég er búinn með tvær rútur og það tók mig tvær helgar að lesa allt í þaula, klikkaður dugnaður, ég ætti að taka þig til fyrirmyndar og halda mér bara við 1 eða 2 project frekar en 13stk og allir í einhverjum lagfæringum (grenjukallemoji)
Haltu þessu áfram!
Svo er líka hægt að nýta 2 helgar vel í skúrnum í staðin fyrir að hanga í tölvunni :Þ
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 11.okt 2019, 23:31
frá íbbi
hvaða djö.. ég var einmitt svo sáttur að rúlla inní helgi nr2 af engum skúr.
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 13.okt 2019, 11:41
frá Sævar Örn
Ég er nú svo mikil hæna að ég er löngu hættur að geta lesið eftir tvær heilar rútur...
Hvað um það, ég viðurkenni að hafa ekki uppfært þennan þráð í nokkurn tíma. Bíllinn er enn í fullu fjöri, ég hef sl. ár verið mjög upptekinn við uppgerð á gömlum Chevrolet bíl og hef því ekki sinnt Toyotunni jafn mikið, nú á haustdögum hóf ég nám í Háskólanum meðfram fullri vinnu og öðrum skyldum og því hefur frítími tekið miklum skakkaföllum. Ég hef þó gert eitt og annað og mun von bráðar greina frá því á texta og með myndum.
Fyrir veturinn þarf eitt og annað að brasa ef vel á að vera, og vonast ég til að geta komist í það strax eftir lokapróf í des. og þá að bíllinn sé nothæfur um og eftir áramót til vetrarferðalaga.
- Horft til norðvesturs á miðnætursól sem sest og roðar skýin rétt yfir Baldurslaug/Hitulaug skammt frá upptökum Skjálfandafljóts sem þar nefnist Rjúpnabrekkukvísl.
- Bhk9tk3X_o[1].jpg (118.98 KiB) Viewed 38293 times
- 1987 árg. af Chevrolet Monte Carlo sem ég hef endurbyggt undanfarið rúmt ár.
- chevy.jpg (274.06 KiB) Viewed 38293 times
- Hann er ekki fullklár, en nothæfur orðinn.
- chevy2.jpg (217.48 KiB) Viewed 38293 times
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 10.nóv 2019, 16:20
frá Sævar Örn
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 10.nóv 2019, 16:40
frá Sævar Örn
Það er sem aldrei fyrr, níunda ferðin "Lókur í laug!"
Nú var árferði á þá leið að nokkuð hafði snjóað í des en svo gerði asahláku og allt fylltist af krapa og vatnselg. Var því annað enn í boði en að fylgja vegi allar leiðir.
Gott og vel.. Með okkur voru tveir breskir félagar mínir, báðir Chris að nafni, annar þeirra hafði komið til mín í júní 2018 og við fórum í þórsmörk ofl.
En vindum okkur að myndasýningunni
- Eitthvað hef ég verið bendlaður við Sovíétska trú, neita því ekki
- 3.jpg (56.07 KiB) Viewed 37670 times
- Leiðin inn í Laugar var greið, vegi fylgt nær alla leið vegna snjóleysis, bara klaki og krapi
- 1.jpg (35.36 KiB) Viewed 37670 times
- Gamli vildi endilega fylgja jörðu, þarna höfðu þyngri bílar ekið yfir, veit ekki hvað olli, sennilega of mikið loft :)
- 5.jpg (64.29 KiB) Viewed 37670 times
- Íslenski lopinn sé oss þó næstur
- 4.jpg (43.85 KiB) Viewed 37670 times
- Veður stillt og gott, allir sáttir
- 6.jpg (132.19 KiB) Viewed 37670 times
- snjólaus morgunn í Landmannalaugum, í janúar athugið það
- 9.jpg (49.94 KiB) Viewed 37670 times
- Bretunum aftur í stóð ekki á sama enda heyrðust hin ýmsu loftbóluhljóð undir gólfi bílsins en ég varð þó ekki var við að nokkuð hefði lekið inn :P
- 8.jpg (19.66 KiB) Viewed 37670 times
- Litlar sprænur breytast í stórfljót, þarna hefði mátt vera snorkell
- 7.jpg (28.86 KiB) Viewed 37670 times
- Við klöngruðumst áfram gegnum þvílík stöðuvötn á leið okkar að Hekluafleggjara, þar sem við ætluðum að mæta hinum ferðahópnum, sem svo aldrei birtist vegna ófærðar.
- 11.jpg (45.03 KiB) Viewed 37670 times
- Bretarnir segjast aldrei hafa séð neitt þessu líkt
- 10.jpg (59.72 KiB) Viewed 37670 times
- Aftur komin inn í Laugar, bretarnir slefa yfir lambakjétinu!
- 13.jpg (60.11 KiB) Viewed 37670 times
- föstudagshópurinn við Landmannahelli. Þar hittum við félaga sem hafa hérumbil vetursetu í skálum á svæðinu. Þegar heim var komið biðu okkar skeyti frá þessum mönnum ásamt ásökunum um utanvegaakstur á leiðinni. Það tók mig tári að heyra slíka umfjöllun enda gættum við okkar sérstaklega sökum tíðarfars. Viðkomandi útvarpaði þessari fullyrðingu á alnetinu og svaraði ekki skilaboðum né síma þegar átti að fara að forvitnast um hvar þetta hefði getað verið og með hvaða hætti. Í raun þykir ásökunin heldur léttvæg því við fylgdum förum eftir viðkomandi frá Landmannahelli niður að Hekluafleggjara, hvar við snerum loks við og héldum til baka í Laugar.
- 12.jpg (98.19 KiB) Viewed 37670 times
- Þröngt mega sáttir sitja, fáir brosa jafn mikið í aftursæti í Hilux.
- 15.jpg (34.21 KiB) Viewed 37670 times
- Aftur komin í Hrauneyjar.
- 14.jpg (83.42 KiB) Viewed 37670 times
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 10.nóv 2019, 16:46
frá Sævar Örn
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 10.nóv 2019, 16:58
frá Sævar Örn
Aprílskreppur í Dalakofann
- 2 flottir við Rauðavatn
- 1.jpg (252.88 KiB) Viewed 37667 times
- Við afleggjara Heklu
- 2.jpg (146.57 KiB) Viewed 37667 times
- Mikill nýr snjór, gott veður
- 4.jpg (127.91 KiB) Viewed 37667 times
- Æðislegt veður
- 3.jpg (112.21 KiB) Viewed 37667 times
- Tekur sig ágætlega út greyið litla
- 5.jpg (111.97 KiB) Viewed 37667 times
- 9.jpg (87.19 KiB) Viewed 37667 times
- Stefán Dal á fullu stými á nýjum bíl
- 8.jpg (45.92 KiB) Viewed 37667 times
- 7.jpg (40.21 KiB) Viewed 37667 times
- Færðin þyngdist aðeins, þá hafði Súkkan á 37" yfirburði
- 11.jpg (66.17 KiB) Viewed 37667 times
- Frábært útsýni, stafalogn og sólbráð
- 10.jpg (144.58 KiB) Viewed 37667 times
- og steikin komin á grillið
- 13.jpg (99.51 KiB) Viewed 37667 times
- Allir komust þó í kofa fyrir myrkur, bara skemmtileg áraun
- 12.jpg (84.65 KiB) Viewed 37667 times
- og mjöðurinn í manninn
- 14.jpg (203.38 KiB) Viewed 37667 times
- Um nóttina gerði óveður, uþb. 30cm nýfallinn snjór yfir allt og mikið skaf. Heimferðin átti eftir að verða tímafrek, skyggni ekki neitt og enginn sjónmunur á snjó eða himni
- 16.jpg (75.18 KiB) Viewed 37667 times
- þónokkur mjöður
- 15.jpg (257.02 KiB) Viewed 37667 times
- Hér voru allir í sama brasinu, skipti litlu þó patról á 44" væri með, mjög þungt í nýföllnum snjó. Á tímabili var til umræðu að snúa við og gista aðra nótt, en fór ekki svo.. kannski því miður.
- 18.jpg (68.26 KiB) Viewed 37667 times
- Súkkan hafði þó alltaf yfirburði, virtist geta ekið líkt og vélsleði og skyldi engann undra, 37" dekk
- 17.jpg (73.59 KiB) Viewed 37667 times
- Þessvegna dreif svona lítið, aftur orðinn 3x4! :( Þetta er nú eitthvað skrítið
- 20.jpg (83.12 KiB) Viewed 37667 times
- Verið að lofta, n óg af því hjá Þingeyingnum..
- 19.jpg (63.88 KiB) Viewed 37667 times
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 10.nóv 2019, 17:03
frá Sævar Örn
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 10.nóv 2019, 17:08
frá Sævar Örn
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 10.nóv 2019, 17:10
frá Sævar Örn
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 10.nóv 2019, 17:11
frá Sævar Örn
- 5.png (1.64 MiB) Viewed 37666 times
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 10.nóv 2019, 17:12
frá Sævar Örn
nóg í bili, kem með restina af sumrinu við næsta tækifæri :)
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 07.des 2019, 21:19
frá Sævar Örn
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 07.des 2019, 21:32
frá Sævar Örn
Svo skruppum við helgina eftir smá hring við Heklurætur og enduðum inn í Landmannalaugum, og fórum svo til baka með viðkomu í Landmannahelli, og litum eftir skemmdum eftir okkur frá því í janúar sbr. ásakanir í okkar garð frá staðarhaldara í Landmannahelli. Þar var ekkert að sjá annað en eftir vörubíl eða rútu sem hafði greinilega nýlega farið örlítið útfyrir slóð og sokkið og voru landverðir að störfum að lagfæra skemmdir eftir hann.
.
- Á leið upp með heklu urðu víða á vegi okkar þessir sandskaflar þar sem foksandur og vikur hefur einangrað skaflana.
- 1.jpg (185.13 KiB) Viewed 37217 times
.
- Uppi á svokölluðu Mjóaskarði við Vatnafjöll, Háahraun(Hekluhraun) sést til vesturs og Trippafjöll
- 3.jpg (130.65 KiB) Viewed 37217 times
.
- Hundinum leiddist ekki að moka í þessu!
- 2.jpg (321.61 KiB) Viewed 37217 times
.
- Nokkrir skaflar á leiðinni við Hekluhraun, engir alvarlegir farartálmar þó.
- 4.jpg (184.38 KiB) Viewed 37217 times
.
- Við Dalakofann, þar hittum við vaska menn sem voru að byggja forstofu á kofann.
- 6.jpg (167.5 KiB) Viewed 37217 times
.
- Mundafellshraun austur undir Heklu, mosavaxið, fjær sést Háahraun svart og groddalegt, hér er ekið yfir Mundafellsháls sem er brattur og grófur og varla fær óbreyttum jeppum í því ástandi sem hann er eftir þennan vetur.
- 5.jpg (174.16 KiB) Viewed 37217 times
.
- Á landmannaleið, allt gert fólksbílafært
- 7.jpg (127.73 KiB) Viewed 37217 times
.
- Við 'lónið' sem lá yfir veg F208 við Hnausapoll, jörðin tekur vel við en þarna var stórt og bíldjúpt lón frá því um áramót, og því ófært, þó lentu menn í hremmingum þarna í vetur og misstu bíla niður í gegn, og þykir mildi að þeir hefðu það af í kafaldsbyl og blautir og kaldir
- 9.jpg (126.32 KiB) Viewed 37217 times
.
- Dómadalsháls
- 8.jpg (185.7 KiB) Viewed 37217 times
.
- Það þarf ekkert að fara 'offroad' til að komast í torfærur, kannski hafa menn verið að forðast torfærur með því að aka til hliðar við slóðann, slíkt er forkastanlegt og gott að sjá að merkingar og kaðlar loka slíkum slóðum, merkt bæði á íslensku og útlensku.
- 11.jpg (166.4 KiB) Viewed 37217 times
.
- Hér er mynd af nákvæmlega sama stað skv. GPS frá því í janúar sl.
- 10.jpg (61.77 KiB) Viewed 37217 times
.
- Duster í sandbleytu við Helliskvísl, rétt við Landmannahelli
- 13.jpg (122.13 KiB) Viewed 37217 times
.
- Eitthvað þarf að endurhugsa þetta, ekki nema von að vasarnir gefi sig... #ATdesign
- 12.jpg (93.5 KiB) Viewed 37217 times
.
- Við afleggjara Dómadals og Landmannaleiðar, pumpað í dekk og hundur spretti úr spori
- 14.jpg (202.93 KiB) Viewed 37217 times
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 07.des 2019, 21:39
frá Sævar Örn
Ég tel fullreynt að nota jeppaspjalls myndakerfið, myndaröðin fer alltaf í eitthvað rugl.
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 07.des 2019, 22:08
frá Sævar Örn
Stóra sumarfríið, 2 vikur, stefnan sett á austfirði, yfir hálendið.
Byrjum bara..
Það var svolítið blautt þegar við ókum upp fyrir Hrauneyjar og að Þórisvatni, ferðinnni var heitið norður sprengisand og í skála sem Bárðdælskir smalar eiga.
Skoti þarf að æfa sig fyrir módelstörfin, hér er hann að vera skrítinn fyrir framan Fagrafoss.
Hér sést glöggt hvernig vatnið ber nauðsynjar í svörðinn.
Linað í dekkjum við Kvíslaveituafleggjara, Sprengisandur var nýheflaður þarna.
Við mættum þessum brjálæðingum á leiðinni, þeir kalla sig Gambler 500 og ferðast um heiminn á 500 dollar bílum held ég
Glaðasti hundur í heimi..?
Hágöngur
Kistualda, hér jörðuðum við ferðafrelsið fyrir 10 árum?? og ókum svo hinstu sinni um Vonarskarð. Þá var ég enn á vítörunni á 33" dekkjum.
Vonandi höfðu þau mjöð að hlýja sér við..
Ekið yfir Bergvatnskvísl
Dinner og losun í Laugafelli
Nú er ég að nálgast mínar heimaslóðir, hér er Galtaból.
Þarna hafði ég seinast komið 1996, og þá 5 ára gamall, þó ekki verr skrifandi en í dag. En til 5 ára aldurs var nafn mitt ritað í gestabókina þarna hvern vetur :)
Húmor í mínum mönnum :)
Hér var gott að njóta friðar og hafa ró, þögnin er ærandi á svona stöðum.
Hundasund í Skjálfandafljóti
Mjóidalur
Fasískar kveðjur við Ytri Mosa í Mjóadal.
Við Hrafnabjargafoss
Kunnugur staðháttum.
Aldeyjarfoss
Kominn heim í dalinn minn :)
Fengum frábærar móttökur á uppeldisheimili mínu, þar er nú hestarækt og gistiheimili.
Skoti var ekki lengi að átta sig á að Skjálfandafljót rennur niður Bárðardal :)
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 07.des 2019, 22:18
frá Sævar Örn
Næsta dag renndum við upp á Vallafjall sem liggur með vesturenda Bárðardals, þaðan er útsýni í allar áttir.
Húsavík, Þeistareykir, Reykjadalur, Mývatnsheiði, Hverfjall, og svo austur á hálendi bara!
Óðalið...
Eyjardalsárfoss
Mér finnst þetta alltaf fallegasta sveit landsins, en á svona dögum ER þetta fallegasta sveit landsins! :)
Við kíktum upp á Mývatnsheiði og skoðuðum rústir Hörgsdal, ætluðum í Brenniás en gáfumst upp, þangað er varla bílfært þarna megin frá.
Loks gátum við tjaldað við Mývatn!
Við Skoti að fylgjast með sólinni 'setjast'. En neðar fór hún ekki þetta kvöld, þarna er klukkan að ganga tvö um nótt.
Við Sóley við Dettifoss
Skoti við Dettifoss
Hljóðaklettar
Við prófuðum veiðikortið á Melrakkasléttu en fengum ekkert..
Skoti hleypur og geltir mjög falskt upp úr svefni
Komin á Egilsstaði, veisla!
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 07.des 2019, 22:20
frá Sævar Örn
Ef þið viljið sjá fleiri myndir af ferðalagi okkar um landið í júlí sem voru samtals 14 dagar og 3300 km þá eru albúmin okkar hér:
https://www.facebook.com/soley.jo/media ... 331&type=3https://www.facebook.com/sabilagar/medi ... 907&type=3
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 07.des 2019, 22:23
frá Sævar Örn
Ég bjó þessa mynd til fyrir vinafólk okkar í Bretlandi og deili henni hér:
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 07.des 2019, 22:27
frá Sævar Örn
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 08.des 2019, 16:17
frá Sævar Örn
Smá dund í dag, ætla að rétta pallinn örlítið af, hann hefur verið aðeins hallandi fram og svolítið nálægt boddýinu finnst mér.
Svo þarf aðeins að laga grind og stífuvasa, seinna mun ég smíða nýtt fjöðrunarkerfi og etv. setja loftpúða í leiðinni.
Fljótlegt að kippa pallinum af, allt laust bara 2 ár síðan hann var seinast losaður, þarf líka að laga rafmagn í pallinum það fór allt í steik í sumar en ég sveitamixaði það svo við gætum haldið áfram án þess að vera ljóslaus :)
Tæring á innanverðri grind
Morknaðar slöngur
Skemmdur stífuvasi
Slæmt mál :)
Þarf eitthvað að endurhugsa þetta
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 08.des 2019, 20:51
frá íbbi
ég sé að þetta er sami vasi og ég fékk sniðmát fyrir og smíðaði útfrá í minn, ég lokaði mínum að ofan, ég held að það styrki þá töluvert
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 08.des 2019, 21:52
frá Sævar Örn
Mér er þá spurn, hvert fer vindingurinn? Auðvitað taka fóðringarnar við slatta, en slatti fer líka í að reyna að snúa hásingarrörið sundur.
Vasinn sem slíkur er ekki vandamálið í mínum huga jafn mikið og lengdarmismunur langstífanna.
Þegar annað hjólið færist niður og hitt upp þá myndast ofboðsleg þvingun sem veldur vindingi og fyrst ekki snýst upp á hásingarrörið og fóðringar eru komnar á tamp þá gefa vasarnir sig, eða þreytast og springa.
Ég er búinn að leika mér að teikna þetta system upp í tölvu og gera stress test og alls kyns kúnstir og þá sést vel hversu galið þetta er.
Snúningurinn er lítill allt þar til hásingin hallar 10° frá láréttu, þá verður ofboðslegur vindingur á hásingarrörið sjálft, sem fóðringarnar ráða ekki við.
En þetta má laga með því einfaldlega að jafna lengd langstífanna, þó það þýði þrengingu á svæðinu kringum gorminn, en þar er nóg pláss.
Þá er líka skurður snúningsvægisins gegnum hásingarrörið mitt, en ekki framan við það, þetta minnkar álag á vasana mikið og beinir því kraftinum frekar lárétt gegnum stífurnar sem geta tekið við þeim krafti margföldum á við stífuvasana.
Efri stífan er 550mm á lengd og sú neðri 900mm, þetta er allt gott og blessað svo fremi að bæði hjólin fjaðri beint upp og niður á sama tíma, við misfjöðrun byrja vandræðin.
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 08.des 2019, 22:10
frá Sævar Örn
Ég var að rifja upp hvernig þetta er uppsett hjá þér Íbbi og mér sýnist það vera mun skaplegra, ekki mikill munur á stífulengdunum, ábyggilega nóg til að halda pinjónhalla réttum en ekki svo mikið að það valdi vindingi á hásingunni.
En að önnur stífan sé nærri helming styttri en hin einsog í mínum bíl er glapræði.
Ég vona að ég sé ekki að misskilja eitthvað rosalega, en ég skil þetta ekki betur en svo. :)
Svona lítur þetta út við misfjöðrun
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 08.des 2019, 23:27
frá íbbi
ef ég man rétt er efri stífan hjá mér rúmlega 70cm og neðri um 85. ég hækkaði reyndar vasann og færði efri stífuna upp um 5cm þar sem ég hafði nóg pláss þar sem ég held að þetta hafi upprunalega verið teiknað með það í huga að vasinn væri beint undir grind. ég lokaði vasanum í raun frá gorminum og upp á topp, setti plötu á milli stífanna og svo aðra aftan við neðri stífuna.
ég hafði lúmskar áhyggjur af því að það yrði þvingun í þessu bæði vegna stífulengdar og vegna þess að ég er ekki með sama halla á þeim. eins og hjá þér þá virðist þetta vera alveg frjálst þangað til fjöðrunin er kominn alveg á damp og að öllum líkindum löngu komið á samsláttarpúðana. en ég á náttúrulega alveg eftir að prufa þetta, þannig að að uppsetningin hjá mér gæti verið algjör hörmung án þess að ég viti það
er 4mm í vösunum hjá þér?
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 09.des 2019, 00:01
frá Kiddi
Sævar Örn wrote:Skemmdur stífuvasi
Slæmt mál :)
Gatið þarna er bara á mjög slæmum stað þannig að það er of lítið efni til að taka álagið. Líka of lítið af tengingum á milli platnanna í stífuvasanum þannig að eðlilega hreyfist þetta til og þreytist og brotnar. Sjóddu bara í gatið, settu plötu á milli og út að keyra...