Síða 2 af 6
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 24.des 2017, 14:58
frá Sævar Örn
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 28.des 2017, 15:24
frá Sævar Örn
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 09.jan 2018, 19:00
frá Sævar Örn
Að vana, fórum við félagar sem upprunalega vorum í Súkka.is félagshópnum, og jafnvel í seinni tíð G7 Offroad Team hópnum, ásamt fjölda félaga okkar í jeppaferð í Landmannalaugar..............
- 10.jpg (541.47 KiB) Viewed 42764 times
Ég skrifaði ítarlegri pistil á einkasíðu mína, þar sem ég hafði hugsað þennan spjallþráð frekar fyrir breytingar og endursmíð, frekar en ferðasögur.
sjá hér :
http://sabi.is/2018/01/09/lokur-i-laug-2018/
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 09.jan 2018, 20:14
frá Doror
Frábær þráður og flottur bíll hjá þér. Sérstkalega með engu húsi.
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 11.jan 2018, 17:36
frá Hávar Helgi
Gaman að fá að fylgjast með! Takk
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 11.jan 2018, 17:59
frá Sævar Örn
Fyrir ferðina baukaði ég eitt og annað, smíðaði loft kerfi í bílinn, setti vörubílakútinn undir pallinn nokkurnveginn slétt við aftari brún á afturdekkjum þannig hann á ekki að rekast niður þó ekið sé fram af háum bökkum oþh. (það reyndi aðeins á það í seinustu ferð og gafst vel).
Tengdi svo loks afturdriflásinn og brúkaði hann töluvert í ferðinni, alltaf ef bíllinn varð stopp á maganum náði hann að mjaka sér aðeins framar og aftur og að lokum að troða undir sig snjónum þannig ég gat losað hann. Annar bíll, algerlega sambærilegur og svipað vanur jeppamaður var nokkuð að festa sig, láslaus.
https://www.youtube.com/watch?v=QJqa3UTQ1tU loftkerfi
https://www.youtube.com/watch?v=oGZQQXMevns driflás
https://www.youtube.com/watch?v=SZ-tSTTE6lw draga fastan jimny á 31"
https://www.youtube.com/watch?v=iHwcOuLGMqY draga fastan barbícrúser með ómögulegum spotta sem hann átti
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 11.jan 2018, 18:15
frá Robert
Dugnaður í þér alltaf.
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 12.jan 2018, 19:05
frá ÓskarÓlafs
Helvíti er hann orðinn vígalegur hjá þér Sævar, virkilega gaman að fylgjast með !
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 13.jan 2018, 01:26
frá Sævar Örn
Robert wrote:Dugnaður í þér alltaf.
ÓskarÓlafs wrote:Helvíti er hann orðinn vígalegur hjá þér Sævar, virkilega gaman að fylgjast með !
Hávar Helgi wrote:Gaman að fá að fylgjast með! Takk
Þakka ykkur fyrir viðlitið, ég nýt þess í botn að skoða sambærilega myndaþræði eftir aðra, og hvet alla eindregið til þess !
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 13.jan 2018, 01:27
frá Sævar Örn
Doror wrote:Frábær þráður og flottur bíll hjá þér. Sérstkalega með engu húsi.
Já ég er sammála, ég vil hafa hilux án pallhúss, amk. í vetrarferðum. Þó verð ég að segja að ég myndi vilja hafa dúk yfir pallinn svo hann yrði allavega ekki fullur af snjó, en ég finn engan slíkan dúk með góðu móti nema á pall með hönkum
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 13.jan 2018, 08:06
frá sukkaturbo
JAmm ég keypti minn á sínum tíma í eglagerðinni Ægir að vísu fyrir disel pallinn.Þeir saumuðu þetta og ættu að eiga sniðið.Varla mikið mál að breita því fyrir bensín pallinn
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 13.jan 2018, 10:11
frá Sævar Örn
sukkaturbo wrote:JAmm ég keypti minn á sínum tíma í eglagerðinni Ægir að vísu fyrir disel pallinn.Þeir saumuðu þetta og ættu að eiga sniðið.Varla mikið mál að breita því fyrir bensín pallinn
það þyrft þá helst að vera bæði franskur rennilás og stálhneppur, ég ræði þetta við þá með vorinu!
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 13.jan 2018, 19:55
frá Sævar Örn
Ég var svolítið að lenda í því í seinustu ferð að fá snjó undir reimarnar og var það töluvert þreytandi til lengdar, ákvað því að fyrsta verk yrði að smíða plötu undir framendann, en þar var engin hlífðarplata. Fékk þessa fínu plötu hjá málmtækni og beygði hana í horfið með skrúfstykkinu.
- fjandi massíf og flott skriðplata, undirsínkaðir boltar þannig ekkert skrapast og eyðileggst, ekki það að ég telji neitt auðveldara að losa þessa bolta heldur en bolta með skemmdum haus
- 26230001_10157116259482907_565128542797152208_n[1].jpg (75.93 KiB) Viewed 42420 times
- Ég hafði aldrei sýnt mynd af loftkútnum undir pallinum, hann unir sér vel þarna, nokkurnveginn í sléttri línu við afturhjól svo hættan á að hann rekist niður er hverfandi
- 26230548_10157116259307907_473693244071436858_n[1].jpg (62.87 KiB) Viewed 42420 times
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 15.jan 2018, 18:11
frá Sævar Örn
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 16.jan 2018, 23:30
frá Sævar Örn
Það eru litlu atriðin sem gleðja!
Kúplingþrællinn grét alltaf aðeins er búinn að bæta tvisvar á forðabúrið, pedalinn mýkist með tímanum fer að slíta illa, fékk fóðrunarsett á partsouq fyrir 2000 kall, og þéttinguna utanum stýrisöxulinn, þar var stórt gat í kvalbaknum sem ég þoldi ekki. Þetta gerist líklega út af body hækkuninni.
- Sandblés og hónaði þrælinn, nýtt kostar 17000 í toyota, fékk gúmí sett í þennan á 2000 kall í Dubai
- 26731195_10157126277527907_8460968857144858897_n.jpg (125.6 KiB) Viewed 42195 times
- Nýtt lok utanum stýris öxulinn, allt annað að sitja í bílnum ekki með olíuverks glamrið inn undir mælaborðið
- 26840911_10157126277727907_8601398459562119486_o.jpg (523.7 KiB) Viewed 42195 times
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 21.jan 2018, 22:25
frá Sævar Örn
Skellti límmiðum á bílinn og skrapp með 4x4 í Setur,
Ferðaskýrsla á http://www.sabi.is
- Hilux límmiðar af AliExpress
- 26758494_10157129925442907_5714368042199896707_o.jpg (512.17 KiB) Viewed 42074 times
- Sunnudagsmorgunn við Setrið
- 10.jpg (139.96 KiB) Viewed 42074 times
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 11.feb 2018, 00:58
frá Sævar Örn
Skrapp seinustu helgi prufurúnt með Brynjari félaga mínum á Skjaldbreiður, fundum smá krapa og bara gaman, bíllinn hans kom vel út
meira á
http://www.sabi.ishttp://sabi.is/2018/02/04/dagsskreppur-a-skjaldbreidur/Svo var ég að kaupa spil á bílinn og skellti því á til prufu, vantar fjarstýringu við það, kann ekki að meta þessa þráðlausu fjarstýringu sem er með því!
Nú er ég að verða nokkuð vel græjaður, langar eiginlega engu við að bæta nema þá driflás að framan!
- spil.jpg (502.72 KiB) Viewed 41809 times
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 11.feb 2018, 10:22
frá jongud
Sævar Örn wrote:Nú er ég að verða nokkuð vel græjaður, langar eiginlega engu við að bæta nema þá driflás að framan!
Fínt að setja sverari drifköggul í leiðinni...
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 11.feb 2018, 10:33
frá Sævar Örn
Ertu viss um það? Ég hef ekki orðið vitni að því að drif séu mikið að brotna í þessum bílum.
Þarutan styrkist drifið nokkuð við að setja í það læsingarmiðju.
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 12.feb 2018, 13:21
frá jongud
Sævar Örn wrote:Ertu viss um það? Ég hef ekki orðið vitni að því að drif séu mikið að brotna í þessum bílum.
Þarutan styrkist drifið nokkuð við að setja í það læsingarmiðju.
Nokkuð til í því, þessi díselrokkur er líklega ekki með nóg afl til að brjóta neitt.
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 12.feb 2018, 18:21
frá Sævar Örn
Nákvæmlega, ég held þetta sé allt í réttum hlutföllum.
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 12.feb 2018, 23:39
frá Sævar Örn
Setti inn smá tölu um óhlýðnina í nokkrum félögum við fórum Djúpavatnið í gær, hörku jeppatúr í bakgarðinum heima!
http://sabi.is/2018/02/12/vonskuvedur-i ... -nagrenni/
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 13.feb 2018, 09:21
frá jongud
Flottur pistill, en svakalegt að íslendingum skuli hafa dottið í hug að fara Krísuvíkurleið á fólksbíl!
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 19.feb 2018, 22:03
frá Sævar Örn
Ferð hverja helgi...
Við félagar ákváðum að skreppa í Strút.. Það gekk ekki!
meira á
http://sabi.is/2018/02/19/ferd-aleidis- ... tilraun-1/
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 19.feb 2018, 22:51
frá Sævar Örn
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 20.feb 2018, 18:05
frá elli rmr
Hvað klikkaði með spilið? og hvernig fór þessi ferð með dráttarbókhaldið? :D
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 20.feb 2018, 18:16
frá Sævar Örn
Það er búið að mixa þráðlausa fjarstýringu á spilið og það er bara ekki að gera sig, ótraust samband og stundum alls ekkert samband, eins og þarna.
Ég vil hafa snúrutengingu í spilið!
Dráttarhlutfallið er nú 22/20 þ.e. hef tvisvar oftar þegið hjálp en gefið en í þessari ferð voru flest allir á nefinu öðru hverju :)
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 21.feb 2018, 09:51
frá Hjörturinn
Alger snilld að vera með sliskjur í svona krapaferðum, kemur bílnum miklu frekar upp á snjóinn í staðinn fyrir að plægja bara í gegn, eiginlega merkilegt hvað fáir eru með þannig með sér í ferðum, en þetta leit út fyrir að hafa verið hið mesta fjör :)
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 21.feb 2018, 10:00
frá Sævar Örn
margar sliskjur i ferðinni nokkrar finnast með vorinu viða var engin jörð undir bara stöðuvötn
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 21.feb 2018, 16:48
frá helgierl
Nú spyr ég eins og byrjandi.....hvernig sliskjur ræðið þið um? Væri gaman að sjá mynd af svoleiðis....
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 21.feb 2018, 18:54
frá Sævar Örn
helgierl wrote:Nú spyr ég eins og byrjandi.....hvernig sliskjur ræðið þið um? Væri gaman að sjá mynd af svoleiðis....
ég fékk mínar sliskjur hjá Víkurvögnum fyrir áraröðum, kostuðu talsvert, hafði þær ekki með í þessari ferð og er eiginlega feginn, þær virtust allar týnast, ætla að setja spotta í mínar sliskjur svo þær hverfi ekki alveg ef þær fara undir í krapa!
- sliskjur.jpg (3.82 MiB) Viewed 41142 times
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 23.feb 2018, 09:29
frá Hjörturinn
Líka hægt að nota 21mm krossvið eða álíka, þá grætur maður ekki jafn mikið ef þetta týnist, en ekki jafn gott stöff auðvitað :)
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 23.feb 2018, 23:28
frá helgierl
Já, já. Þetta er eins og gömlu flugvallarjárnin......
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 23.feb 2018, 23:30
frá Sævar Örn
jamm bara margfalt léttari og fyrirferðarminni
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 07.mar 2018, 21:53
frá Sævar Örn
Við skruppum í góða færinu sl. helgi á Langjökul, snerum við á hábungu vegna slæms skyggnis og vinds fórum niður aftur og keyrðum frekar hratt yfir og vorum snöggir upp og yfir skjaldbreiður og heim, skemmtilegur dagur reyndi mikið á fjöðrunarbúnað bílanna bara skemmtilegt. Meira um þetta á
http://sabi.is/2018/03/05/sma-skreppur-i-bakgardinum/sá í þetta skipti hitamæli bílsins rísa í annað skipti, á sama stað og seinast, að puðast upp skjaldbreiður á háum snúning og mikilli ferð, undir fullu álagi. Kannski er óhjákvæmilegt að hann hitni, kæliviftan syngur vel þannig hún hlýtur að vera að gera eitthvað, en ég er ekki viss um að hún nái að draga mikið loft gegnum þennan ógeðslega vatnskassa sjá mynd
- 18 ára gamall og nýr vatnskassi, kostaði 18.000 kr heimkominn frá Munich
- djfalkjad.jpg (586.12 KiB) Viewed 40755 times
- Þetta er vonandi seinasti olíulekinn á þessum bíl, affall af olíu á vacúmdælu
- kagjdf.jpg (64.3 KiB) Viewed 40755 times
- Framstæðan af, þarf að laga götin sem hafa verið gerð fyrir intercooler lagnir
- ksdjfhds.jpg (102.61 KiB) Viewed 40755 times
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 10.mar 2018, 19:57
frá Sævar Örn
Skrapp á Eyjafjallajökul í dag
- Frábært skyggni
- 16.jpg (2.41 MiB) Viewed 40585 times
http://sabi.is/2018/03/10/eyjafjallajokulsskeppur/
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 02.apr 2018, 14:04
frá Sævar Örn
Skruppum á fjöll um páska
ALDREI FÓR ÉG VESTUR
- Við Blautukvíslargljúfur
- 13.jpg (821.63 KiB) Viewed 40191 time
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 02.apr 2018, 14:44
frá Járni
Flott ferð!
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 02.apr 2018, 14:46
frá Sævar Örn
Já ég segi fyrir mig, maður hefur svo oft komið í Setur og eða keyrt þarna í gegn en aldrei tekið tíma í að skoða sig almennilega um þarna er margt að sjá og hef ég ákveðið að fara þarna um á góðviðrisdegi í sumar og skoða betur!
Re: HI-Lux ferðabifreið
Posted: 13.maí 2018, 15:17
frá Sævar Örn