Síða 10 af 10

Re: Gamall Ram, nýjar myndir, 23.4

Posted: 03.maí 2020, 00:33
frá íbbi
nokkuð góður dagur að baki í dag.

það er allur stýrisbúnaður eins og hann leggur sig kominn úr. og það fer ekki einn einasti hlutur af honum aftur í

hásing farin undan og fjöðrun auðvitað í leiðini

allt farið framan af mótor.

byrjaður að skafa helvítis tektildrulluna af. sem fer sérlega vel í nýmálaða gólfið hjá mér

það er skemmd í honum grindin á stað sem er alþekkt að þeir fari. það sást ekki utan frá en hún hefur tærst svo innanfrá að efnisþykktin er orðin sáralítil. grindin í þessum bílum er lokuð ca frá aftari enda hússins og frammúr. sker þetta úr og bæti
akkurat á þessum sama stað er þekkt að þeir eiga til að flexa grindarbitunum þegar mikið gengur á. þannig að það þarf hvort sem er að endurhugsa þetta svæði eitthvað.

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 02.okt 2020, 23:36
frá íbbi
það vantar tilfinnanlega "eyða" takka á þetta spjall :)

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 02.okt 2020, 23:41
frá íbbi
smá mistök.

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 03.okt 2020, 18:54
frá Járni
Breytir bara og setur nýjustu fréttir að vestan :-)

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 03.okt 2020, 19:11
frá petrolhead
Hvað í veröldinni varstu að gera núna Ívar :-D

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 03.okt 2020, 20:42
frá íbbi
Haha

Ég setti inn update, en var eitthvað að ströggla með símann, og ákvað að henda því bara aftur út, enda afskaplega ómerkilegt :)

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 04.okt 2020, 07:39
frá petrolhead
Já ég skil, tæknilegir örðugleikar :-)

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 05.okt 2020, 00:17
frá íbbi
já miðöldrunin nálgast víst óðfluga

en það sem ég vildi sagt hafa var nú svosum ekki merkilegt.

en mér til nokkurar undrunar, en ánægju líka þá eru ansi margir farnir að spurja mig hvað sé nú eiginlega að frétta. af hverju það komi engin update?
það eru greinilega ennþá ansi margir sem lesa þetta spjall, og ég tók eftir því þegar ég fór hringinn í sumar að það voru ansi margir að fylgjast með. því menn þekktu fjölskyldubílin úr ferðaleiknum og voru að heilsa mér og spurja út í verkefnið á förnum vegi hingað og þangað um landið. sem var auðvitað gaman af

þeim og auðvitað sjálfum mér... og kannski ekki síst konuni (djók) til mikilla vonbrigða, þá er nú ekki mikið að frétta. þetta sumarið hefur eins og flest sumur síðan ég ég flutti vestur og greip bílinn með mér á leiðini, farið í áframhaldandi viðgerðir og bætingar á heimilinu.
og kannski aðeins meira inn á okkar línu (bílakalla) þá hef ég haldið áfram að reyna græja mér almennilega vinnuaðstöðu í þessum skúr mínum. og er búinn að bæta hinum ýmsu tækjum og tólum við. AC/DC tig suðu. járnkúttara. stærðarinnar beygjuvél sem er einnig klippur og vals og flr

þannig að nú get ég orðið soðið allt nema kannski kartöflur og hrísgrjón í skúrnum, ásamt því að beygja og valsa blikk og flr

svo var kominn tími á að fara snýta hinum pallbílnum á heimilinu, en hann var orðinn frekar illa haldinn af krabba. hornin á húsinu alveg farin og gólfið í pallinum sömuleiðis. þannig að það var fengið annan pall á hann, hornstykin á húsið, fékk í hann skiptingu sem skemmdist svo á leiðini til mín ásamt allskonar slithlutum. þannig að éǵ neyðist til að sinna honum aðeins áður en ég kemst aftur í raminn.

við bílinn hef ég nú lítið gert nema að máta frambrettin á hann. en mig er fyrir löngu farið að klæja í puttana að halda áfram með hann. það gerist vonandi með kólnandi veðri.

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 07.okt 2020, 11:11
frá Óskar - Einfari
íbbi wrote:já miðöldrunin nálgast víst óðfluga

Þetta er orðið ansi laglegt verkstæði þarna hjá þér... engin spurning að þarna eiga spennandi hlutir eftir að gerast!

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 07.okt 2020, 22:13
frá íbbi
það er a.m.k nokkuð gaman að sjá hvernig þetta hefur breyst síðan ég byrjaði að vinna í bílnum. en skúrinn og bíllinn hafa þróast í sameiningu í gegn um þetta

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 10.okt 2020, 17:18
frá birgthor
SKemmtilegur þráður

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 25.okt 2020, 00:00
frá íbbi
takk fyrir það.

það verður því miður smá töf á þessu öllu, ég seldi húsið og keypti annað og lendi því í þeirri skemmtun að flytja allt draslið í bútum. sjáum til hversu mikið af honum finnst aftur að því loknu :)

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 25.okt 2020, 13:06
frá Axel Jóhann
Er stærri skúr með nýja húsinu? :)

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 25.okt 2020, 14:35
frá íbbi
Nei, hann. Er töluvert minni,. Þetta mun reyna á Tetris hæfileikana

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 25.okt 2020, 16:16
frá Axel Jóhann
Nú helvítis, svo þú þarft strax að fara í framkvæmdir að byggja við. Til lukku annars :)

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 26.okt 2020, 01:52
frá íbbi
takk fyrir það.
já það verður fundið eitthvað út úr þessu, ég ætla breyta forstofu sem liggur meðfram skúrnum í verkfæra/smíðaaðstöðu, þá verður heildarfermetra talan svipuð, en öllu óhentugra samt sem slíkt, þessi skúr var algjör snilld hvað vinnuaðstöðuna varðaði, auk þess sem hann stendur langt inn á lóðini og því gat maður brasað langt fra eftir kvöldi án þess að ónáða neinn, nýji skúrinn er hinsvegar innbygður og er beint undir herbergi dótturinnar.

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 26.okt 2020, 10:02
frá Axel Jóhann
Það er öllu verra, þarftu ekki bara að ráðast í smíði á 2x 15fm garðskúrum til að laga það vandamál

Re: Gamall Ram, fulla ferð!

Posted: 16.feb 2021, 00:26
frá íbbi
jæja..

eftir að hafa verið hunsaður mánuðum saman þá var þessum komið í hjólin og hann fluttur.

það hefur ekkert gerst í honum því miður, en í þetta skiptið var ég í húsabrasi fram á vetur. m.a að setja upp varmadælu auk þess að leggja vatn og hitalagnir inn í skúr. þetta kláraðist auðvitað 5 dögum fyrir efhendingu

en sá gamli var fluttur yfir í dag. þetta var nokkuð spennandi þar sem lofthæðin hjá mér núna er ansi lág.. og lægri en toppurinn á bílnum. en inn fór hann á felgunum