Síða 1 af 1

BRUSSAN

Posted: 13.feb 2011, 16:12
frá arni hilux
Ég keypti mér 38'' hilux núna fyrir stuttu og er hann búinn að reynast mér vel:) en hann er frá árinnu 1992 og er breyttur á 38'' og hefur hann hlotið nafnið brussan

það sem ég ætla mér að gera fyrir hann

auka tankur
2 kastarar
hásingu að framan
3,0l vél eða setja turbinu í hann
hliðar ljós á toppinn
tendamömmu box ef ég set ekki 4runner boddy á hann
stigbretta ljós
vhf
loftlæsingar framan og aftan
lækkan í eðlilega hæð og skera úr fyrir 38''
gorma allan hringinn
4link

það sem er búið að setja í hann

loftdælu(ætla samt að setja stærri)
hækkun fyrir 38''
spil
167626_1694792502970_1632555786_1533343_5229361_n.jpg

01022011220.jpg

Re: BRUSSAN

Posted: 13.feb 2011, 16:20
frá -Hjalti-
snirtilegur , hvaða vél er í honum ?

Re: BRUSSAN

Posted: 13.feb 2011, 16:23
frá arni hilux
þakka þér fyrir það:) það er 2,4 bensín í honum

Re: BRUSSAN

Posted: 13.feb 2011, 21:15
frá juddi
Er 4,3 vortech ekki málið

Re: BRUSSAN

Posted: 13.feb 2011, 22:02
frá Magnús Ingi
Árni ekki láta þér detta í hug að setja 3,0 í þetta þó að ég hafi eytt minna þennan túr okkar:))) en djöfull er þetta flottur Runner sem var með þér þarna á myndini:)))))

Re: BRUSSAN

Posted: 13.feb 2011, 22:31
frá arni hilux
maggi eitthvað þarf ég til að snúa dekkjunum;) já hann er nú vígalegur annað en eigandinn haha;)

Re: BRUSSAN

Posted: 13.feb 2011, 23:03
frá -Hjalti-
Magnús Ingi wrote:Árni ekki láta þér detta í hug að setja 3,0 í þetta þó að ég hafi eytt minna þennan túr okkar:))) en djöfull er þetta flottur Runner sem var með þér þarna á myndini:)))))


Þetta viðist vera regla frekar en tilviljun þegar 2.4 og 3.0 koma við sögu

Re: BRUSSAN

Posted: 14.feb 2011, 13:50
frá Magnús Ingi
Já ég get nú ekki verið sammála því ekki meðavið ferðafélaga mína. Í þessari tilteknu ferð sem við árni vorum í vorum við árni búnir með um hálfan tánk. og svo var annar Hilux með okkur líka með 2,4bensín hann var nú bara búinn með 1/4 þegar komið var heim og var honum beitt alveg jafn mikið og bílunum hjá okkur árni.

Re: BRUSSAN

Posted: 14.feb 2011, 17:26
frá arni hilux
það skal samt tekið fram maggi að við vorum búnir að riðja meira en helming leiðarinar fyrir þann hilux það ætti kanski að spila inní

Re: BRUSSAN

Posted: 15.feb 2011, 04:39
frá -Hjalti-
Magnús Ingi wrote:Já ég get nú ekki verið sammála því ekki meðavið ferðafélaga mína. Í þessari tilteknu ferð sem við árni vorum í vorum við árni búnir með um hálfan tánk. og svo var annar Hilux með okkur líka með 2,4bensín hann var nú bara búinn með 1/4 þegar komið var heim og var honum beitt alveg jafn mikið og bílunum hjá okkur árni.


arni hilux wrote:það skal samt tekið fram maggi að við vorum búnir að riðja meira en helming leiðarinar fyrir þann hilux það ætti kanski að spila inní


2.4 sem er í blasti er ekki að eyða neitt minna en 3.0 draslið í blasti ;)

Ef menn eru að hanga í hjólförum þá auðvitað eyðr draslið í samræmi við það

Re: BRUSSAN

Posted: 01.mar 2011, 22:11
frá arni hilux
jæja þá er vhf komið í hann og þá er að reyna að hafa sig í það að setja varatankin í hann

Re: BRUSSAN

Posted: 03.mar 2011, 21:11
frá arni hilux
tveir kastarar chek

Re: BRUSSAN

Posted: 10.mar 2011, 11:14
frá Valdi B
blessaður árni :)

finndu þér bara einn af þessum 10 bílum sem bílabúð benna flutti inn, þeir fluttu inn 10 stk af hiluxum sem voru með 2.4 benzín turbo, ég veit um einn bíl sem er ekki til sölu því það er verið að fara aðnota hann í rally.... en tjekkaðu á þessu

Re: BRUSSAN

Posted: 10.mar 2011, 15:42
frá arni hilux
já þakka þér fyrir þá ábendingu, maður fer að athuga þetta mál:D

Re: BRUSSAN

Posted: 10.mar 2011, 18:20
frá Magnús Ingi
Við eigum 2 svona 2,4 turbo mótor árni

Re: BRUSSAN

Posted: 10.mar 2011, 23:18
frá arni hilux
og þú ert svo eigingjarn maggi að þú vilt ekki láta mig fá einn:( ;)