súkka fyrir byrjendur og hætt komna!


Höfundur þráðar
Gunnzi
Innlegg: 4
Skráður: 19.des 2016, 15:51
Fullt nafn: Arnar Snær Gunnarsson
Bíltegund: Suzuki sidekick 1995

súkka fyrir byrjendur og hætt komna!

Postfrá Gunnzi » 21.des 2016, 01:30

Komið þið sælir kæru spjallverjar!

Ég er búinn að vera að fylgjast með þessu frábæra spjalli í sennilega tvö ár á bakvið tjöldin en ætla loksins að henda inn smá súkkusögu.

Ég er semsagt spánýr í þessu sporti og nýkominn með rauða vélvirkja húfu og núna síðasta vetur ákvað ég ásamt tveimur góðum vinum mínum að fjárfesta í súkku en fyrir valinu varð sjúskað eintak af Suzuki sidekick 1995 "breytt" fyrir 33" dekk. Ég skal hér með viðurkenna að ég flýtti mér heldur við það að velja hvað skyldi kaupa enda kom ýmislegt í ljós þegar við fengum greyjið í hendurnar. En hvað um það, þýðir ekki að gráta það endalaust.

Það fyrsta sem ég sá var að hitamælirinn virkaði ekki neitt. Því var fljótreddað með því að setja nýtt tengi á nemann, Okkur var sagt að það hafi verið nýbúið að skipta um hedd og heddpakkningu en það var annaðhvort illa gert eða logið þar sem ég komst að því eftir ca 400km akstur að pakkningin var farin. Svo var tengi á alternator ónýtt en því var fljótreddað.

Þegar ég komst að því að pakkningin var farin kyrrsetti ég bílinn og hóf leit að vél, það gekk upp að ofan þangað til hann Hólmar hérna á spjallinu benti mér á bíl sem hægt væri að kaupa á djúpavogi. Ég stökk á það núna í nóvember og sótti kvikindið. Það gekk heldur betur skrautlega að koma honum á reyðarfjörð þar sem ég bý. Þegar ég kom á staðinn kom í ljós að bíllinn stóð á felgunni allann hringinn. Ekkert stórmál enda var mér svosem nokk sama um dekkin. En þegar við ætluðum að draga greyjið af stað (varahlutabíllinn mun hér eftir heita Rauðka) kom í ljós að hann var fastur í bremsu að framan. Óþolinmæðin tók völdin eftir svolitlar tilraunir til að losa um þær og með ofbeldi tókst okkur að draga hann af stað á næstu bensínsstöð til að pumpa í dekkin. Við þær æfingar eyðilögðust framdekkin og bara eitt varadekk var á bílnum og þá voru góð ráð dýr. Fyrir einhverja hundaheppni fann ég heilt dekk á felgu sem hélt lofti og passaði undir Rauðku. Við ákváðum að ganni að prófa að starta Rauðkunni og viti menn hún hrundi í gang og mér tókst að keyra hana alla leið á fáskrúðsfjörð í grenjandi rigningu en þar kom sprunga á vatnskassann og var vélin því stöðvuð snarlega og Rauðka greyjið dregið á Reyðarfjörð.

Hvað um það, það sem búið er að gera:
Setja kanta
Rífa Vél, gírkassa og millikassa og drifsköft úr Rauðku

Það sem er eftir:
Skipta um vél og helstu pakkningar á henni
Loka rifum í aftari hjólbogum eftir heimskulegann úrskurð fyrri eigenda
Hækka um 1-2"
Loka gati í gólfi eftir að pústinu varð kalt og langaði inn í bíl
Ryðbæta
Laga bodyfestingar
Græja loftdælu
Mála skrímslið
færa þakboga á milli
breyta pústi í sílsapúst
færa hurðaspjöld á milli
færa mælaborð á milli
skipta um plastrúðu fyrir venjulega eftir fyrri eiganda
færa eða bæta við kösturum
færa beisli á milli.

Þetta er svona í grófum dráttum sagan á bakvið súkkuna mína.
Ég vill taka það fram að ég er nýr í þessu sporti og þygg því ábendingar með þökkum. Aulamistök verða líklega gerð en þannig lærir maður! Skítköst afþökkuð.
Hér eru svo nokkrar myndir.
Image
Image
Image
Image
Image
Image
Síðast breytt af Gunnzi þann 21.des 2016, 01:58, breytt 1 sinni samtals.


Subaru Impreza 1998 1.6 fwd
Suzuki Sidekick 1995 1.6 33"


jonogm
Innlegg: 104
Skráður: 11.jún 2010, 14:03
Fullt nafn: Jón Ögmundsson
Staðsetning: Reykjavík

Re: súkka fyrir byrjendur og hætt komna!

Postfrá jonogm » 21.des 2016, 01:51

átt einkaskilaboð


juddi
Innlegg: 1240
Skráður: 08.mar 2010, 10:45
Fullt nafn: Dagbjartur L Herbertsson

Re: súkka fyrir byrjendur og hætt komna!

Postfrá juddi » 21.des 2016, 09:13

Súkka er nú með því sniðugra sem fynst sem fyrsti jeppi svo umm að gera að halda þessu áframm
Daggi S:6632123 snurfus@snurfus.is

User avatar

Startarinn
Innlegg: 1157
Skráður: 01.aug 2010, 12:02
Fullt nafn: Ástmar Sigurjónsson
Bíltegund: Nissan Patrol '98

Re: súkka fyrir byrjendur og hætt komna!

Postfrá Startarinn » 21.des 2016, 20:22

Ég myndi ráðleggja þér að leggja pústið alla leið aftur, það er svakalegur munur á hvað hávaðinn inn í bílinn eykst ef pústið kemur út fyrir framan afturhjól.

Ég hugsaði með mér að það gæti ekki verið svo mikið, og lagði pústið einföldu leiðinu út fyrir framan afturhjól, ég er fljótur að verða þreyttur í hausnum á að keyra lengri leiðir á bílnum.
"Ég sagði ekki að það væri þér að kenna,
Ég sagðist ætla að kenna þér um það"


Höfundur þráðar
Gunnzi
Innlegg: 4
Skráður: 19.des 2016, 15:51
Fullt nafn: Arnar Snær Gunnarsson
Bíltegund: Suzuki sidekick 1995

Re: súkka fyrir byrjendur og hætt komna!

Postfrá Gunnzi » 21.des 2016, 20:37

Startarinn wrote:Ég myndi ráðleggja þér að leggja pústið alla leið aftur, það er svakalegur munur á hvað hávaðinn inn í bílinn eykst ef pústið kemur út fyrir framan afturhjól.

Ég hugsaði með mér að það gæti ekki verið svo mikið, og lagði pústið einföldu leiðinu út fyrir framan afturhjól, ég er fljótur að verða þreyttur í hausnum á að keyra lengri leiðir á bílnum.


gæti svosem vel trúað því að hávaðinn aukist mikið inn í bílinn en mig langar ekkert svaðalega að standa í því endalaust að pústið liggi á hásingunni, ef hávaðinn frá bílnum utan frá helst nokkurnveginn sá sami hvort sem pústið kemur afturúr eða fyrir framan afturdekk þá langar mig ægilega mikið að reyna sílsapústleiðina. En ef það er bilaður hávaði sem kemur þannig frá bílnum utan frá þá verður pústið að liggja afturúr einfaldlega af því að þetta á að vera veiðibíll.

Þakka góð svör - Arnar
Subaru Impreza 1998 1.6 fwd
Suzuki Sidekick 1995 1.6 33"


Til baka á “Jeppinn minn”

Tengdir notendur

Notendur á þessu spjallborði: Engir skráðir notendur og 13 gestir