Síða 1 af 1

Disel Toyota Extracab 1991 SR-5

Posted: 15.apr 2016, 13:31
frá sukkaturbo
Var að eignast Toyota Excab SR-5 disel árgerð 1991. Ekinn 318.000km. Nokkuð heill og þéttur bíll og er svo til orginal hann er á 31" og með mjög heilu plasthúsi og nýlegu pústkerfi. Byrjaði á að rífa innan úr honum innréttinguna og teppin sem ég háþrýstiþvoði. Gólfin eru eins og ný ekkert ryð sílsar heilir og grind og skúffa furðu heillegt. Gerði upp afturfjaðrir og skipti um tímareym og lagaði hurðalamir og hitt og þetta sem að var. Endaði á að setja í hann leður sæti með rafmagni úr Ford Exsplorer Limeted og kemur það fjandi vel út.Það er bedliner í skúffu sem ernokkuð heil . Fer með bílinn í skoðun á næsta þriðjudag þann 19.04.2016. Sótti um fornbílaskráningu og fékk hana.Svona leit hann út er ég fékk hann. En hann er heldur betri í dag he he búinn að þrífa lakka og gera. Vantar myndavél til að taka nýjar myndir

Re: Disel Toyota Extracab 1991 SR-5

Posted: 15.apr 2016, 23:17
frá Raggi B.
Til sölu ? 100þ. kr ? Vantar pickup druslu í sveitina :)

Re: Disel Toyota Extracab 1991 SR-5

Posted: 15.apr 2016, 23:42
frá sukkaturbo
Jamm USS vel boðið Raggi þetta er allt of hátt boð hjá þér. Væri 100 krónur ekki betra . En því miður hann er ekki til sölu strax he he er að dunda í honum.

Re: Disel Toyota Extracab 1991 SR-5

Posted: 16.apr 2016, 19:57
frá Raggi B.
Jú best að lækka sig niður í 100 kall, á einn grænan gamlan til handa þér :)

Re: Disel Toyota Extracab 1991 SR-5

Posted: 16.apr 2016, 20:50
frá Bubbi byggir
Fáum við ekki að sj´myndir eftir tiltekt og snirtingu, bíð allveg spenntur.

Re: Disel Toyota Extracab 1991 SR-5

Posted: 17.apr 2016, 15:55
frá sukkaturbo
Jæja eitthvað af myndum

Re: Disel Toyota Extracab 1991 SR-5

Posted: 19.apr 2016, 12:23
frá sukkaturbo
Kominn með 17 skoðun og fornbílaskráningu og fær skoðunn til tveggja ára næst er hann verður skoðaður. SKoðunarmaður hafði á orði að bíllinn væri lítið ryðgaður heillegur