Síða 1 af 1
					
				Lc 80 1996 bensín
				Posted: 26.des 2015, 23:12
				frá Svekktur
				Bíllinn er af gerðinni Toyota Land cruiser 80 framleiddur 1995 en nýskráður 1996. Mótorinn er 4,5lítra bensín hákur sem skilar honum vel áfram.
Ég er búin að vera dunda við að breyta honum undanfarna mánuði og er hann orðin klár að mestu leiti fyrir utan gangbretti og loftdælu.Myndirnar tala sýnu máli að mestu leiti.
Vigtaði bílinn um daginn og vigtaðist hann þannig. Framan 1260kg aftur 1100kg eiginþingd 2360kg á 38tommu.
			 
			
					
				Re: Lc 80 1996 bensín
				Posted: 27.des 2015, 09:16
				frá sukkaturbo
				Sæll og til hamingju með bílinn mér lýst vel á að taka bensínbílinn og breita honum endilega settu inn fleiri myndir og upplýsingar svo sem um þyngd hlutföll og eyðslu. Ég prufaði einn 80 Cruser diesel var með hann einn vetur og á 35 og 38 dekkum og þegar mesta álagið var á honum þá held ég að hann hafi eitt eins og bensín bíllinn á þær tölu allar til en vil ekki skemma þráðinn með einhverju eyðslu kjatæði. En spennandi að fylgjast með þessu hjá þér.
			 
			
					
				Re: Lc 80 1996 bensín
				Posted: 28.des 2015, 20:25
				frá Svekktur
				Mældi eyðsluna í sumar með fellihýsið í eftirdragi keyrt frekar létt en hann var með 17 á hundraði en þá var hann óbreyttur.
			 
			
					
				Re: Lc 80 1996 bensín
				Posted: 29.des 2015, 00:27
				frá sukkaturbo
				það er flott ég var með minn á 35 disel og var með um 14 til 16 litra
			 
			
					
				Re: Lc 80 1996 bensín
				Posted: 29.des 2015, 23:10
				frá Dúddi
				Langar þig ekki i aukatank úr áli aftanvið hásingu, á þannig í bíl án hasingarfærslu. Getur hringt i 8640201 ef þu hefur ahuga
			 
			
					
				Re: Lc 80 1996 bensín
				Posted: 08.jan 2016, 21:52
				frá Svekktur
				Virðist ekki geta snúið myndinni.  Þannig að þið sem eruð að skoða í tölvu verið að snúa skjánum:-)
			 
			
					
				Re: Lc 80 1996 bensín
				Posted: 18.feb 2016, 14:55
				frá Ásgrímur
				Sæll Gaman að sjá það eru fleiri í svipuðum verkefnum. Færðir þú ekki aftur hásinguna ?
			 
			
					
				Re: Lc 80 1996 bensín
				Posted: 18.feb 2016, 20:13
				frá Svekktur
				Sæll heyrðu ég færði ekki hásinguna en það er í skoðun hjá mér að gera eitthverjar breytingar, ég síkkaði ekki stífurnar að aftan en er jafnvel að spá í að síkka þær og þarmeð færist hásingin aftur um 2-3 cm.
			 
			
					
				Re: Lc 80 1996 bensín
				Posted: 18.feb 2016, 23:40
				frá Svekktur
				Verður ekki að fylgja ein mynd af klaufa festu en þær voru nokkrar þennann dag.