Síða 1 af 1
Myndir af 46 tommu Grandinum mínum nýsprautuðum
Posted: 20.des 2015, 22:04
frá dragonking
https://www.facebook.com/media/set/?set=a.1702558126630097.1073741876.100006277780054&type=1&l=e9ef22269dÞarna er Grandinn að koma út eftir heilsprautun, Liturinn á honum er Range Rover Orange Metallic "Vesuvius" (sennilega tengt eldfjalli). Jeppinn var sprautaður hjá Bifreiðar & Tæki og er þetta mjög vel gert hjá þeim.
Smá um bílinn: Grand Cherokee 1998 5.9L ZJ sjálfskiptur, leður innrétting. Breyttur frá grunni á 46 tommu með dana 60 framan og aftan, Loftpúðar, Stillanlegir Fox demparar, Fox gas bumpstop, loftlásum framan og aftan, 35 rillu öxlar úti hjól, brettakanntar, 140 lítra ál bensíntankur, 70 lítrar sílsa tankar, bead lock, tvær reimdrifnar loftdælur, Vhf, Gps, 100w Xenon dreifikastarar, Led vinnukastarar, Led í aðalljósum, Led í öllum inni ljósum, uppfærð fram og afturljós og fl.fl.
Re: Myndir af 46 tommu Grandinum mínum nýsprautuðum
Posted: 20.des 2015, 22:21
frá ellisnorra
Þetta er nú alveg verulega duglega myndarlegt ökutæki. Til hamingju með verklegan bíl!
Re: Myndir af 46 tommu Grandinum mínum nýsprautuðum
Posted: 20.des 2015, 22:42
frá sukkaturbo
þessi er glæsilegur og á eftir að virka rosalega hvað er hann þungur svona tilbúinn á fjöll
Re: Myndir af 46 tommu Grandinum mínum nýsprautuðum
Posted: 20.des 2015, 22:59
frá Járni
Töff og kúl, engin spurning.
Re: Myndir af 46 tommu Grandinum mínum nýsprautuðum
Posted: 21.des 2015, 04:26
frá olei
Stjórglæsilegur, virkilega fallegur litur.
Re: Myndir af 46 tommu Grandinum mínum nýsprautuðum
Posted: 21.des 2015, 07:19
frá dragonking
sukkaturbo wrote:þessi er glæsilegur og á eftir að virka rosalega hvað er hann þungur svona tilbúinn á fjöll
Hann er 2,8 tonn tilbúinn á fjöll
Re: Myndir af 46 tommu Grandinum mínum nýsprautuðum
Posted: 21.des 2015, 14:44
frá Hjörturinn
þetta er bara alltof töff :)
Áttu einhversstaðar myndir af breytingaferlinu?
Re: Myndir af 46 tommu Grandinum mínum nýsprautuðum
Posted: 21.des 2015, 23:43
frá dragonking
Hjörturinn wrote:þetta er bara alltof töff :)
Áttu einhversstaðar myndir af breytingaferlinu?
já, á myndir af öllu,,, þarf bara nenna að setja allt saman í þráð,,,
Re: Myndir af 46 tommu Grandinum mínum nýsprautuðum
Posted: 22.des 2015, 01:41
frá scweppes
Þetta er ekki að hjálpa mikið til við mína jeppaveiki og Grandinn minn er abbó.
Klikkaður bíll og greinilega allt úthugsað.
Re: Myndir af 46 tommu Grandinum mínum nýsprautuðum
Posted: 22.des 2015, 10:40
frá Einar Hlöðver
Stórglæsilegur er hann. Já væri gaman að sjá breytingaferlið í máli og myndum ;)