Síða 3 af 8

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 07.des 2014, 15:15
frá ellisnorra
Tókstu saman hvað þú varst ca lengi í klukkutímum að smíða fjöðrunina undir? Með öllu, gamla draslið undan allt til málningar.

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 07.des 2014, 16:27
frá Sævar Örn
HEF verið flest kvöld sl. 5 vikur, þar af 8 dagar í veikindum sem ekkert gerðist, þannig það kæmi mér ekkert á óvart að ef með eru taldar 10 klst helgar séu mannstundirnar uþb. 150, ég hef ekki verið einn að þessu öllu, kærastan á t.d. heiður af mestri málningarvinnu og ýmsu smálegu sem ég er ekkert að telja upp hérna en t.d. ganga frá handbremsubörkum og smíða ný bremsurör, laga brettakant, þrífa og smyrja raftengi, nánast öll innréttingarvinna ofl

Þannig af þessum c.a. 150 klst á ég sjálfur örugglega ekki nema 100

Þetta tekur allt tíma en ég var búinn að hugsa þetta svolítið fram í tímann og útvega nær alla þá hluti sem í verkið þurfti og hafði nokkuð góða lausafjársstöðu þegar verk hafðist, þá er hægt að gera þetta með áhlaupi! ;)

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 07.des 2014, 16:32
frá Sævar Örn
Svo er vinnuaðstaðan fyrsta flokks þó ég segi sjálfur frá, það eru hæg heimatökin með góðum græjum ;)

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 07.des 2014, 17:27
frá andrib85
jongud wrote:Þú ert töluvert sneggri að þessu en flestir aðrir. Margir hafa verið allavega fjóra mánuði að smíða 5-link undir...

mér finnst 4 mánuðir heldur langur tími. en þetta fer allt eftir aðstöðu og hversu mörgum tímum maður getur varið í verkið á viku

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 07.des 2014, 18:24
frá ellisnorra
Já ég hef verið í kringum 50 tíma í svona aðgerð með öllu fyrir utan efnisútvegun.

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 07.des 2014, 21:59
frá Sævar Örn
Ég giska á 150 tíma, það er ótrúlega fljótt að taka saman allt þetta smádrasl og ekki búið enn, þó bíllinn sé kominn í gang og farinn að keyra þarf að setja á hann aukaljós, VHF stöð og GPS, hugsanlega tölvu er eiginlega hættur við það búinn að fá leið á því

Ég hefði eflaust getað verið enn betur undirbúinn og þá hefði þetta ekki tekið svona mikinn tíma, eins er ég að gera þetta í fyrsta skipti og efast ekki um að ég gangi öruggari í verkið næst

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 08.des 2014, 22:38
frá Lindemann
Þetta er vel gert og ekki langur tími finnst mér sem er búinn að fara í þetta. Þú hefur greinilega haldið þér vel að verki! :)

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 08.des 2014, 22:57
frá Sævar Örn
ja kærar þakkir þetta tekur svolítið á að vinna með fullri dagvinnu en kvöldin eru drjúg þegar saman koma og fátt annað truflar, meira að segja kærastan hjálpar mikið til!

En mesta törnin var nú sl. laugardag þegar boddíið var sett aftur á, þá var ég mættur fyrir kl 9 um morgun og fór ekki út nema í 30 mín í hádeginu og var svo fram til kl 03.00 aðfaranótt sunnudags, algjör klikkun en ekki nóg til að ég fengi ógeð :)

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 08.des 2014, 23:16
frá Lindemann
Það verður að nýta tímann þegar maður dettur í stuð! :)

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 08.des 2014, 23:22
frá Sævar Örn
Hreyfingarnar voru orðnar ansi hægar og tilgangslausar eftir kl 01.00 ha ha ha en hann hafðist í gang samt!

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 20.des 2014, 19:08
frá Sævar Örn
jæja kominn með stífari og lengri afturgorma og nú er hægt að keyra með 46"

Mætti hinsvegar vera örlítið reistari að aftan og þarfnast betri úrskurðar í afturbrettum ef hægt á að vera að nýta allt það fjöðrunarsvið sem nýja fjöðrunin býður upp á

Næst þarf að smíða króka til að halda gormunum örugglega á sínum stað

Koma VHF stöð fyrir og loftneti og tengja

Klára að ganga frá loftkerfi þ.e. kút og lögnum og tengja segulkúplingu á dælu við pressustilli

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 20.des 2014, 19:10
frá Sævar Örn
https://www.facebook.com/video.php?v=10204427443879351

dreif ekkert á 20 pundunum, fór frekar létt upp á labbinu á 2 pundum síðar, þarna prófa ég læsingarnar og þessi brothljóð og smellir eru vonandi bara úr þeim þegar þær fara á, allavega ætla ég að halda það þar til annað kemur í ljós

Svo þarf greinilega að tjöruþvo þessi túristadekk :)

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 27.des 2014, 17:26
frá Sævar Örn
Skrapp aðeins í dag að prófa fjöðrun og kraft, var vægast sagt mjög ánægður með útkomuna

Image

Image

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 27.des 2014, 18:11
frá Sævar Örn
http://www.youtube.com/embed/YguoygU00hw

smá háadrifsfræs í púðrinu

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 27.des 2014, 19:45
frá hobo
Til hamingju, verklegur jeppi þetta.

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 28.des 2014, 02:26
frá -Hjalti-
Sævar Örn wrote:Sælir, þetta er í vinnslu.

Ætla að reyna að halda upprunalegum farþegafjölda, í samvinnu við skráningadeild umferðarstofu.


Enda alveg fáránlegt að burðurinn minki við stærri dekk og stærri hásingar enda er það ófjaðrandi þyngd og kemur burðargetuni ekkert við.

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 28.des 2014, 02:53
frá -Hjalti-
En já vígalegur jeppi hjá þér og alltaf gaman að skoða þræðina þina Sævar

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 28.des 2014, 09:59
frá birgthor
Flottur trukkur hjá þér Sævar.

Öll hreyfð þyngd hvort sem er fjaðrandi eða ófjaðrandi hefur að sjálfsögðu áhrif á burðargetu bílsinsi, þar sem öll þyngdin þarf að taka þátt bæði aukinni hröðun sem og snögg minkandi hröðun.
Einnig þarf burðarvirki yfirbyggingar að þola veltu að einhverju leiti og þá skiptir þyngd ófjaðrandi hluta líka miklu máli.

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 28.des 2014, 12:12
frá Sævar Örn
Mér tókst að fá heildarþyngdina færða upp í samræmi við breytingar á bílnum, þessi grind er víst notuð í öðrum ford jeppa sem ég veit ekki hver er, hvort það er stóri bronco kannski

en allavega þá má sá bíll vera skv. gögnum samgöngustofu 2,7 tonn, flöskuhálsinn í Explorer eins og mínum var hjólabúnaðurinn og hásingar, nú eru þær komnar úr bíl sem mátti vera 4,9 tonn og flöskuhálsinn því orðin grindin, en hún hefur tæknilega heildarþyngd 2,7 tonn

Þannig nú hef ég 4 farþega og uþb. 200 kg í burðargetu umfram svo ég er bara ánægður að vera með allt löglegt í langri ferð

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 28.des 2014, 12:32
frá jeepcj7
Flott að þetta er hægt örugglega margir sem þurfa að græja svona mál hjá sér en ég held nú reyndar að 14 bolta semi hásingin sé nú ekki notuð í bíl sem má vera 5 tonn það er frekar stóra systir 14 bolta full float sem er algerlega óskyldur hlutur þínar hásingar eru úr 20-2500 bíl ekki 30-3500.
Glæsilegur jeppi og örugglega fjandi duglegur.

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 28.des 2014, 13:11
frá Sævar Örn
Afturhásingin kemur úr bílnr KD181, og ef ég man rétt þá er heildarþyngd á þeim bíl eitthvað nærri 5ton, eiginþyngdin rétt rúm 3 tonn

hvernig sem því líður þá er flöskuhálsinn núna allavega 2,7 tonn og ekki þörf á meiru í bráð, held ég fari ekkert út í einhverjar 600kg vélarpælingar í þennan :)

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 28.des 2014, 13:38
frá sonur
Flottur er hann þarna í snjónum, algjört tröll á þessum tuðrum :D

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 28.des 2014, 23:13
frá Sævar Örn
ákvað að ég þyrfti að gera ráð fyrir að þurfa að....


Image

kippa í ferðafélagana afturá bak


... kom svona nett út, er mjög ánægður með hvað þetta passar vel

Image

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 28.des 2014, 23:14
frá ellisnorra
Færðu númerið til baka og hafðu það á lömum, ég er ekki að grínast :)

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 28.des 2014, 23:19
frá Sævar Örn
Ég skoðunarmaðurinn veit að það er ólöglegt ;0

en eflaust geri ég eitthvað þvílíkt þegar ég er kominn með skoðun á kaggann því þessi Alfa Romeo stíll er ekki að gefa gott

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 29.des 2014, 00:02
frá ellisnorra
Ef það er á krækjum að neðan þá er ekkert við því að segja, jafnvel þó lamirnar væru að neðan og krækjurnar að ofan.
Eina sem væri hægt að "bösta" þig með væri ef þú værir með eitthvað í króknum út á vegi þannig að númerið sjáist ekki með nokkrum hætti og löggan stoppar þig og sektar.
Auk þess eru fullt af bílum með númerið á svuntunni þar sem það hallar fáránlega mikið innundir bílinn og fá alltaf skoðun.
Ég færi í lamir, fulla ferð :)

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 29.des 2014, 19:05
frá Sævar Örn
já ég græja eitthvað á þetta


Fór í skoðun í dag og rann í gegn allir sáttir, fer svo aftur 2 jan og fæ 16 miða á kaggan


Þá er hann bara klár að eiginlega öllu leiti, þarf að græja festingar í skottið fyrir farangur og verkfæri, einstreymiloka við ac dæluna, kaupa prófíldráttarkróka og koma einhverjum aukaljósum fyrir á grindinni að framan


Svo bara ferð 9 jan, hrauneyjar-landmannalaugar, ætla til öryggis að hafa meðferðis 60l af eldsneyti, hef heyrt að allan desember hafi færið inneftir verið vonlaust og mjög þungt

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 04.jan 2015, 18:54
frá Sævar Örn
Skruppum nokkrir félagar á langa jökulinn í gærmorgun, skyggni var ekkert sérstakt gekk á með éljum en var samt gaman að fá að prufa bílinn í allskonar færi, almennt þokkalegu færi samt.

Það voru engar bilanir í þessari ferð sem ég gæti svosem alveg vanist, en kom samt aðeins á óvart, pústið datt í sundur en kom sér saman að sjálfu sér(Klemma sem gaf sig)

Svo hafði byrjað að losna upp á jóka á drifskaftinu að framan við millikassa á heimleiðinni, en ég fór að heyra smá hljóð á Mosfellsheiði, þó skemmdi það ekkert út frá sér.-

Hér eru nokkrar myndir'

Image


Tjöruþvottur á Kaldadal, ekki vanþörf

Image

Komin í Jaka, hittum nokkra súkkustráka fyrir tilviljun og slógum hópunum saman

Image

Image

Þokkalegasta færi upp jökulinn, eyddi miklu bensíni á leiðinni upp í leikaraskap,

Skoðuðum síðan gatið í jöklinum en tókum þar engar myndir nema í prívat safnið að ósk staðarhaldara, magnað að skoða

Image

Komin niður aftur, snöggur að pumpa í með kút og A/C

Image

Image



Fundum smá vatnsból á leiðinni til baka, grunaði ekki að finna krapa neinsstaðar vorum búin að þruma yfir margar sléttur en þarna leyndist vatn undir og við snöggstoppuðum frá c.a. 40-50 kmh í 0, þá er búið að álagsprófa stífufestingar að framan!!!

Image

Er mjög ánægður með lýsinguna að framan, keypti í E.T. HID flóðkastara xenon, ótrúleg birta af þeim notaði þá mikið þegar skyggni var lélegt þó bjart væri úti bara til að sjá för í snjónum og svínvirkaði, setti síðan Hella Rallye 3000 H7 flóðljós sem vísa fram og til hliðanna, mjög skemmtileg birta af þeim og þá er framskyggni orðið mjög gott í dimmu


Semsagt niðurstaðan er bara mjög ánægður með virknina, góður kraftur, góð drifgeta og góð fjöðrun, allt sem ég þarf, klár í helgarferð næstu helgi

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 04.jan 2015, 19:05
frá Sævar Örn
og já, eyðslan var ekki ófyrirgefanleg, semsagt heill tankur fyrir heilan dag, brottför kl 9.00 og komum heim um kl 19, c.a. 60 lítrar, hilux dísel sem var með í ferð var líklega með ca. 45-50 lítra

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 04.jan 2015, 20:27
frá atli885
Sævar Örn wrote:og já, eyðslan var ekki ófyrirgefanleg, semsagt heill tankur fyrir heilan dag, brottför kl 9.00 og komum heim um kl 19, c.a. 60 lítrar, hilux dísel sem var með í ferð var líklega með ca. 45-50 lítra

6lítrar á klukkustund þykir nu ekki mikið

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 04.jan 2015, 22:18
frá Sævar Örn
nei ég hafði svosem ekki samanburð annan en við Hilux jeppann og þeir eru nú engir eyðsluhákar, við vorum ekkert í neinu slæmu færi en á móti kom að þetta ágæta færi bauð upp á svolítinn ferðahraða og brekkuspól þannig þetta var alls ekki neinn sparakstur, sérstaklega ekki upp og niður jökulinn

Ég er allavega ekkert ósáttur við eyðsluna en ég hafði haft svolitlar áhyggjur af því að hann þyrfti mikið aukabensín í ferðum

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 04.jan 2015, 23:05
frá juddi
Þetta er bara allt að koma svo er bara að missa sig með dekkjahnífin

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 04.jan 2015, 23:14
frá Sævar Örn
Já bæði það og þyrfti að útveega eitt dekk í viðbót og henda einu það er greinilega eitthvað skemmt því það hoppar óeðlilega mikið þegar ekið er milli 20-50, ekkert óþægilegt en samt nóg til að vera þreytandi


Annars var grip ekkert issue í þessari ferð amk. en vissulega mega dekkin grípa betur og taka betur við úrhleypingu

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 05.jan 2015, 11:12
frá Hjörturinn
Flottur hjá þér, soldill stærðarmunur á bílunum í þessari ferð :P

Hvernig er að fara frá súkku yfir á svona tröll?

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 05.jan 2015, 15:49
frá Sævar Örn
Ég get ekki sagt að ég sakni þess að vera með suð í eyrum og eymsli í baki eftir dagsferð á súkkunni miðað við þennan, allt annað þægindalevel, en súkkan var samt góð til að æfa sig á :)

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 07.jan 2015, 01:26
frá MixMaster2000
Sævar Örn wrote:Ég skoðunarmaðurinn veit að það er ólöglegt ;0


Er ólöglegt að vera með númeraplötuna á löm??? Svona er þetta orginal á Bronco ;)

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 07.jan 2015, 08:27
frá jongud
Margir Chevrolet fólksbílar árgerð '70-80 voru með aftara númerið á löm og bensínáfyllinguna á bakvið.

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 07.jan 2015, 15:41
frá Sævar Örn
Það má útfæra það á lamir ef tryggt er að það hreyfist ekki á ferð, td með gormspennu, hinsvegar er ég að venjast þessari staðsetningu númersins og er ekki viss um að ég breyti þessu

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 08.jan 2015, 08:44
frá gislisveri
Setur bara númeraplötuna á prófíl og hendir því svo í skottið þegar þú ert kominn á fjöll.

Re: '91 Ford Explorer @46"

Posted: 08.jan 2015, 23:06
frá Lindemann
Ég held að númeraplata á löm sem leggst yfir prófíltengið verði alltaf fyrir hnjaski þegar verið er að brasa við prófíltengið svo hún verður fljótt beygluð og ljót, þá finnst mér skárra að hafa plötuna á þessum stað.