Síða 1 af 1

91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 30.aug 2014, 10:00
frá kjartanbj
fékk mér leiktæki fyrir veturinn Ford Ranger 91 módel, 44" breyttur en er á 39.5 Irok

351w í húddinu, C6 skipting, NP205 millikassi

Walker Evans demparar að framan stillanlegir, Koni að aftan

loftpúðar framan og aftan

verður vonandi gaman að leika sér á þessu í vetur :)


Image

Image

Image

Image

Image

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 30.aug 2014, 10:31
frá guðlaugsson
svo ógeðslega töff bíll

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 30.aug 2014, 11:34
frá jeepson
Flottur. Svona leit hann út þegar að átti hann fyrir nokkrum árum síðan

Image

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 30.aug 2014, 16:53
frá sukkaturbo
Svo flooooottttur

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 03.sep 2014, 21:49
frá andrib85
virkilega töff jeppi. til hamingju með þennan, ég er spenntur að sjá hann virka í vetur ;)

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 07.sep 2014, 13:03
frá ToyCar
hef jeppast með þessum.... hann er alveg að virka :)

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 08.sep 2014, 01:23
frá StefánDal
Þessi er hrikalega flottur. En varstu ekki með Ram á 46"?

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 08.sep 2014, 21:56
frá kjartanbj
Ég stefndi á að breyta Ram á 46" en ákvað að fara aðrar leiðir

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 08.sep 2014, 22:31
frá Stebbi
Gott að vita að þú sást í ljósið við enda kolamökksins. :)

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 20.nóv 2014, 17:58
frá kjartanbj
Image

Image

Aðeins búinn að vinna í honum, setja úrhleypi búnað, kastara og skipta um lokur ásamt svona ýmsu öðru dundi

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 20.nóv 2014, 18:01
frá ellisnorra
Sýndu okkur betur þessar gjarðir í felgunum, þær eru eitthvað öðruvísi :)

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 23.nóv 2014, 22:52
frá kjartanbj
Image

Image

Image

Image

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 23.nóv 2014, 23:50
frá ellisnorra
Gleymdist að panta snjó?

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 24.nóv 2014, 20:51
frá eirikuringi
Eru þetta landmannalaugar!!! jemin eini, enginn snjór kominn, ég var að vona að þótt það hafi verið hlýtt hér í bænum (reykjavík) þá hefði þetta nú verið að mjatla inn þarna "uppfrá". Snjórinn ætlar að láta bíða eftir sér.

Ofboðslega fallegur bíll by the way .

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 24.nóv 2014, 21:44
frá jeepson
eirikuringi wrote:Eru þetta landmannalaugar!!! jemin eini, enginn snjór kominn, ég var að vona að þótt það hafi verið hlýtt hér í bænum (reykjavík) þá hefði þetta nú verið að mjatla inn þarna "uppfrá". Snjórinn ætlar að láta bíða eftir sér.

Ofboðslega fallegur bíll by the way .


Held að það sé eitthvað global warming dæmi í gangi á landinu.

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 24.nóv 2014, 22:05
frá kjartanbj
var að skoða myndir frá því í fyrra og hittifyrra í nóvember og þá var maður í hörku vetrarferðum bara í þungum snjó og gaman bara.. núna er nánast ekki neitt af snjó, einn og einn gamall skafl , fáranlegt, vonandi er þetta bara lognið á undan storminum eins og þeir segja, og það komi bara hörku vetur eftir áramót

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 24.nóv 2014, 22:55
frá eirikuringi
Já vona það sömuleiðis, má allt fara í bál og brand sem fyrst mín vegna.

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 06.des 2014, 15:07
frá kjartanbj
var að prufa smá Teygjur

Image

Image

Image

Image

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 06.des 2014, 16:47
frá andrib85
Helvíti góð fjöðrun. Það verður gaman hjá okkur í vetur

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 13.des 2014, 12:25
frá kjartanbj
við eigum eftir að skemmta okkur vel, mig vantar bara aðra sjálfskiptingu

Re: 91 Ford Ranger leiktæki

Posted: 01.feb 2015, 10:19
frá kjartanbj
Nýupptekin skipting á leið í bílinn

Image

Image

Image