Síða 5 af 8

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 05.júl 2015, 19:23
frá svarti sambo
Jæja, Þá er búið að síkka niður númeraplötuna og svona lýtur heildarmyndin út.

DSC04854.JPG
DSC04854.JPG (104.85 KiB) Viewed 16936 times


Þarf að mála þetta svart.

DSC04855.JPG
DSC04855.JPG (84.65 KiB) Viewed 16936 times


Og svona er þetta heildar look í dag.

DSC04856.JPG
DSC04856.JPG (86.12 KiB) Viewed 16936 times


Og þá er hægt að fara að snúa sér að því, að eyða endurskoðuninni. Eða öllu heldur, að svera upp stýrisendann, sem var sett út á í skoðun.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 05.júl 2015, 22:28
frá ellisnorra
Eru allir þessir fordar alltaf með endurskoðun? :)
Segi ég, á patrol með endurskoðun :)

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 05.júl 2015, 23:07
frá svarti sambo
Þó að það sé ljótt og leiðinlegt að segja það, að þá finnst mér þessar bifreiðaskoðanir oft vera bara einhver geðþóttar ákvörðun hverju sinni. Og skiftir þá ekki máli hver bíltegundin er. Fór t.d. með einn bíl í skoðun um daginn, og það var sett m.a. út á stöðuljós sem voru í lagi og óbrotin eða sprungin, ekki einu sinni raki í þeim, þannig að ég veit ekki hvernig ég á að laga eitthvað sem er ekki bilað. Varðandi athugasemdina á Fordinum, var stýrisendinn sem kemur í pittman arminn og ég var alveg sáttur við það, þó svo að það væri ekkert að honum, nema gat á gúmmí. Ég er þá löglega afsakaður fyrir uppfærslunni á honum, gagnvart frúnni. :-)

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 08.júl 2015, 22:40
frá svarti sambo
Jæja.
Þá er stýrisenda uppfærslan byrjuð. Tók pittman arminn úr varahlutabílnum og prófaði að ríma hann út fyrir nýja endann. Þetta Kínarím, svínvirkaði. Hafði svo sem ekki mikla trú á þessum rímara, en hann er búinn að borga sig á fyrsta gati. Og kónninn er réttur.

DSC04857.JPG
DSC04857.JPG (108.88 KiB) Viewed 16824 times


Síðan þurfti ég að smíða nýja stillihulsu á milli enda og togstöng. Tók öxulstál og renndi í mál og gegnumboraði, ásamt því að pressa saman endana, sem snittið kemur í. Annar endinn er með 24x1,5mm RH og hinn er 1" x 16 LH. Síðan er hólkurinn klofinn og klemma sett yfir snitthlutana, eins og orginal útfærslan er.

DSC04858.JPG
DSC04858.JPG (56.18 KiB) Viewed 16824 times

DSC04859.JPG
DSC04859.JPG (54.9 KiB) Viewed 16824 times

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 15.júl 2015, 00:03
frá svarti sambo
Jæja,
Þetta fór nú ekki alveg saman, eins og lagt var af stað með. Það var svo mikill munur á leggnum á milli stýrisenda, að þetta gekk ekki alveg upp, þar sem að ég hafði gleymt að spá í lengdarmismuninum á milli enda. En því var reddað, með því að saga liðinn af orginal stýrisendanum og leggurinn settur í bekkinn. Þannig að gamli endinn, var notaður sem framlenging á nýja endann.

DSC04861.JPG
DSC04861.JPG (841.14 KiB) Viewed 16743 times


Þannig að þá er bara að fara með gripinn í skoðun og reyna að fá fulla skoðun.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 05.aug 2015, 11:40
frá svarti sambo
Bíllinn fékk fulla skoðun.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 05.aug 2015, 11:45
frá svarti sambo
Jæja,
Þá eru loftpúðarnir komnir í hús og eitthvað hægt að fara að skoða þá hluti, sem tilheyra þeim gjörningi.

DSC04867.JPG
DSC04867.JPG (795.98 KiB) Viewed 16583 times

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 08.aug 2015, 08:07
frá Sæfinnur
svarti sambo wrote:Jæja,
Þá eru loftpúðarnir komnir í hús og eitthvað hægt að fara að skoða þá hluti, sem tilheyra þeim gjörningi.

DSC04867.JPG

Sæll vertu. Þar sem ég er að fara að viða að mér efni í loftpúða fjöðrun að aftan í minn Dodge Ram, þætti mér fengur í að vita hvernig loftpúða þú ert með, og af hverju þeir urðu fyrir valinu.
Bestu þakkir fyrir frábæran þráð

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 08.aug 2015, 14:58
frá svarti sambo
Það er ekkert mál Stefán.
Þetta eru 1520kg púðar, held ég, frá Firestone. Og þeir heita w01-358-5712. Þeir hafa gott vinnusvið, og eru með 1/4" loftinntaki. Og þeir, ættu að vera nægilega burðarmiklir.

Læt hér fylgja með data sheet: http://datasheet.octopart.com/W01-358-5 ... 283902.pdf

Og ég keypti þá hér: http://www.sdtrucksprings.com/index.php ... ts_id=8216

Vona að þetta sé nægilega gagnlegt.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 08.aug 2015, 15:07
frá ivar
ég er með svona púða líka í bílnum hjá mér nema með stærra intaki og er nokkuð ánægður með þá. Eru í 60-80psi þrýsting eftir því hvað bíllinn er mikið lestaður.
Hef hinsvegar verið að lenda í því að þeir leki sem ég hef leyst með dekkjakvoðu en fékk þá ábendingu að ég væri kannski að láta bílinn fjaðra of mikið í sundur. Myndi amk hafa það í huga þegar þú setur þetta upp hjá þér.

Hvað enduðu þeir á að kosta þig?
Ég væri alveg til í að kaupa 1-2 stk með eh öðrum og spara sendingu

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 08.aug 2015, 15:25
frá svarti sambo
ivar wrote:ég er með svona púða líka í bílnum hjá mér nema með stærra intaki og er nokkuð ánægður með þá. Eru í 60-80psi þrýsting eftir því hvað bíllinn er mikið lestaður.
Hef hinsvegar verið að lenda í því að þeir leki sem ég hef leyst með dekkjakvoðu en fékk þá ábendingu að ég væri kannski að láta bílinn fjaðra of mikið í sundur. Myndi amk hafa það í huga þegar þú setur þetta upp hjá þér.

Hvað enduðu þeir á að kosta þig?
Ég væri alveg til í að kaupa 1-2 stk með eh öðrum og spara sendingu


Það er gott að vita það, og ég mun reyna að passa sundursláttinn.
Þeir kostuðu báðir 40.000kr, eða bara sama og úti, þar sem að ég fékk einn félagann minn, til að kippa þessu með sér.
Ég veit um einn annan, sem vill ná sér í svona varapúða. Þannig að það er spurning, hvort að við gætum ekki sameinast, og deilt flutningskostnaðinum.

Ein spurning: Hver er lengdin á þeim hjá þér í kyrrstöðu ?

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 29.aug 2015, 11:11
frá svarti sambo
Jæja.
Þetta smá mjakast. Komnir hæðarlokar, fyrir loftpúða.

DSC04872.JPG
DSC04872.JPG (254.45 KiB) Viewed 16322 times


Voru verslaðir af Ljónunum.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 31.aug 2015, 17:57
frá svarti sambo
Jæja,
Verið að undirbúa færslu og loftpúðafjöðrun að aftan.
Búið að skera út efni í stillingarvasa. Ætla að láta hásinguna sitja í þessum vösum, til að geta hert hana fasta á meðan suðuvinnan fer fram. Svo að hún hafi ekki tilhneigingu til að breyta sér, á meðan maður er að föndra allt þetta dót í kringum þetta.

DSC04874.JPG
DSC04874.JPG (299.11 KiB) Viewed 16237 times


Kem svo til með að sjóða vinkla á þessa vasa, sem punktast svo í grindina. Þegar réttri staðsetningu á hásingunni, hefur verið náð. Til að stilla pinnion hallann, og þá verður hægt að herða hana fasta með fjaðraklemmunum.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 31.aug 2015, 19:55
frá ellisnorra
Er þetta ekki Cummins logo? Er ekki nær að króma þetta, líma aftaná hann og setja mótor í stíl í húddið? :)

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 31.aug 2015, 20:34
frá svarti sambo
Á ég þá ekki frekar að leyfa þér að mála þetta blátt fyrst og setja bæði að framan og aftan á húsbílinn þinn. :-)
Þegar að ég er búinn að nota þetta. Verður sjálfsagt orðið freknótt og bólugrafið, eftir mig-vélina. Og vel lúsugt.

p.s. Eða er kannski betra að setja þetta á Patrol og skifta svo um vél í leiðinni. Eins og margir hafa verið að gera. :-)

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 06.sep 2015, 19:04
frá svarti sambo
Ákvað að gerast Skúli rafvirki um helgina.
Setti nokkra rofa í mælaborðið og gekk frá tenginum fyrir þá. Veit ekki hversu góðar þessar myndir eru, en svona lýtur þetta út í dag.

Slökkt á öllu:

DSC04876.JPG
DSC04876.JPG (434.29 KiB) Viewed 16072 times


Kveikt á ljósum í mælaborði:

DSC04878.JPG
DSC04878.JPG (430.49 KiB) Viewed 16072 times


Og notendur settir inn:

DSC04879.JPG
DSC04879.JPG (473.87 KiB) Viewed 16072 times


12V Power rofinn, er höfuðrofi fyrir aukarafkerfið ( er með rauða lýsingu ), og svo eru hinir fyrir kastara ( með græna lýsingu ).
Það kveiknar á heiti rofanna, þegar að kveikt er á mælaborðslýsingunni og svo kveiknar á táknmyndinni, þegar notandinn er gerður virkur.
Set inn betri mynd síðar, þegar að ég er búinn að klára að grúska þarna í rafmagninu. Á eftir að finna út úr stefnuljósablikkaranum, fyrir nýju speglana, ásamt einhverju fleiru.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 06.sep 2015, 21:58
frá ellisnorra
Fancy takkar, enda ef ég man rétt, rándýrir.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 06.sep 2015, 22:50
frá svarti sambo
Jaaa, læt það nú vera. Hversu dýrir þeir voru. Mig minnir að ég hafi borgað 10.000kr fyrir þessa 6 rofa og sökkla, fyrir utan flutning og fl. Þar sem að ég fékk flutninginn og það, frítt.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 16.sep 2015, 18:35
frá svarti sambo
Jæja, eitthvað smá að gerast.
Þá er búið að skera niður megnið af efni í stífuvasa og stóla á afturhásinguna, ásamt efri loftpúðafestingum og festingu fyrir þverstífu.

DSC04881.JPG
DSC04881.JPG (843.65 KiB) Viewed 15881 time


Þannig að þá er hægt að fara að forvinna þetta eitthvað. Setti aukagöt í stóla og þverstífufestingu, til að geta svissað á milli 46 og 49" uppsetningar. Án þess að þurfa að skera allt í drasl og sjóða aftur.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 17.sep 2015, 22:02
frá svarti sambo
Búið að grilla saman í þverstífufestingu.

DSC04882.JPG
DSC04882.JPG (439.79 KiB) Viewed 15776 times

DSC04884.JPG
DSC04884.JPG (451.88 KiB) Viewed 15776 times

DSC04885.JPG
DSC04885.JPG (470.81 KiB) Viewed 15776 times


Reyndi mikið að snúa síðustu myndinni, en mér tókst ekki að hafa hana rétta.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 18.sep 2015, 23:51
frá svarti sambo
Jæja, allt að gerast.
Komið 4mm Domex efni í felgubreikkanir. Ætla að búa mér til tvo 16" ganga.

DSC04887.JPG
DSC04887.JPG (384.45 KiB) Viewed 15683 times


Mér er óhætt að fara að bretta upp ermarnar og smíða úr öllu þessu efni. :-)

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 19.sep 2015, 10:40
frá Sæfinnur
svarti sambo wrote:Jæja, eitthvað smá að gerast.
Þá er búið að skera niður megnið af efni í stífuvasa og stóla á afturhásinguna, ásamt efri loftpúðafestingum og festingu fyrir þverstífu.

DSC04881.JPG


Þannig að þá er hægt að fara að forvinna þetta eitthvað. Setti aukagöt í stóla og þverstífufestingu, til að geta svissað á milli 46 og 49" uppsetningar. Án þess að þurfa að skera allt í drasl og sjóða aftur.

Þetta er jafn fjandi magnað og allt hitt sem þú ert búinn að gera, Hvernig vannstu þetta? Keyptir þú þetta niður skorið í einhverju kitti frá einhverjum'?eða teiknaðir þú þetta upp sjálfur og lést skera þetta fyrir þig?
Einn forvitinn í sömu pælingum.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 19.sep 2015, 14:39
frá jongud
svarti sambo wrote:Jæja, allt að gerast.
Komið 4mm Domex efni í felgubreikkanir. Ætla að búa mér til tvo 16" ganga.



4mm!!!
Er það ekki aðeins of mikið í lagt?

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 19.sep 2015, 15:34
frá svarti sambo
Sæfinnur wrote:
svarti sambo wrote:Jæja, eitthvað smá að gerast.
Þá er búið að skera niður megnið af efni í stífuvasa og stóla á afturhásinguna, ásamt efri loftpúðafestingum og festingu fyrir þverstífu.

DSC04881.JPG


Þannig að þá er hægt að fara að forvinna þetta eitthvað. Setti aukagöt í stóla og þverstífufestingu, til að geta svissað á milli 46 og 49" uppsetningar. Án þess að þurfa að skera allt í drasl og sjóða aftur.

Þetta er jafn fjandi magnað og allt hitt sem þú ert búinn að gera, Hvernig vannstu þetta? Keyptir þú þetta niður skorið í einhverju kitti frá einhverjum'?eða teiknaðir þú þetta upp sjálfur og lést skera þetta fyrir þig?
Einn forvitinn í sömu pælingum.


Sæll vinur, og takk fyrir það.
Já, ég ætlaði að fara einföldu leiðina, og hringdi í Aron í breytir. En hann var ekki tilbúinn, að selja mér bara efnið, niðurskorið i þessa breytingu mína. Ég skil svo sem hans sjónarmið. Gat fengið einhverja 46" útfærslu, hjá Héðni, en ég skoðaði það ekkert frekar. Þannig að. Ég lagðist í svolitla rannsóknarvinnu, og gerðist svampur á upplýsingum. Skreið undir fullt af bílum og hringdi nokkur símtöl, til að vera með sem flestar hugmyndir. Raðaði þessum atriðum saman á rissblöð og settist fyrir framan tölvuna. Kveikti á inventor teikniforritinu og byrjaði að teikna. Sendi svo lokateikningarnar í Héðinn, og fékk þá til að skera þetta út fyrir mig, þar sem að þessi tölvutæki, nota sama formattið og er í inventorinum. Svo er bara að sjá, hvernig þetta kemur út. Allavega var þetta hannað, útfrá minni bestu sannfæringu, eins og ég myndi vilja hafa hann.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 19.sep 2015, 15:55
frá svarti sambo
jongud wrote:
svarti sambo wrote:Jæja, allt að gerast.
Komið 4mm Domex efni í felgubreikkanir. Ætla að búa mér til tvo 16" ganga.



4mm!!!
Er það ekki aðeins of mikið í lagt?


Það má vel vera. En þetta er það sem Smári í skerplu, mælti með. Miðað við þetta þungan bíl og svona stór dekk. Hefði sjálfsagt verið nóg að hafa 3mm þykkt. Það er þá kannski minni hætta á að þetta aflagist í einhverjum hamagangi. Það er líka önnur ástæða fyrir þessari þykkt. Ætla að setja 17" miðjur ( botna ) í 16" felgur, þannig að það vantar brotin í felguna og þar af leiðandi, hverfur ákveðinn styrkur, við það. En á móti kemur, að botninn, verður í miðri felgu. Er í smá tilraunastarfsemi, með þetta.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 19.sep 2015, 20:35
frá ellisnorra
Æðislega gaman að fylgjast með, einn af mínum uppáhalds þráðum.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 19.sep 2015, 21:40
frá svarti sambo
Takk fyrir það, elli minn. Og vona að svo verði áfram. Láttu bara púkann í mér ekki slá þig út af laginu, ef að hann byrtist.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 19.sep 2015, 21:57
frá biturk
Hvaða forrit er inventor

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 19.sep 2015, 22:59
frá svarti sambo
Sæll.
Þetta er þrívíddar teikniforrit. Og talar sama túngumál og öll þessi nútíma tæki. Það er ekki fyrir neinn einstakling að versla þetta, nema þú eigir fullt rassgat af seðlum. Minnir að þetta kosti ca: 700þús - 1 milljón. Fer eftir útgáfum. En það er hægt að sækja um fría stúdenta útgáfu á netinu, og gildir hún í þrjú ár, minnir mig. Eða þrjár uppfærslur innifaldar í leyfinu. Man ekki hvort það er. Og þetta er svolítið stórt forrit, þannig að það er best að hlaða því niður um helgar eða á nóttinni, svo það taki ekki heila eilífð að hlaða því niður.

Þú getur fengið hana hér: http://www.autodesk.com/education/free- ... ofessional

Og svo er kennsluefni á íslensku hér: https://www.youtube.com/watch?v=5bxaQsG ... jGnD1GMkbb

Fyrir mína parta, þá finnst mér þetta algjör snilld, þetta forrit.

Endilega, skoðið þetta.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 23.sep 2015, 21:09
frá svarti sambo
Þá er búið að forvinna annan hásingarstólinn.

Byrjaði á því að finna mér rörbút í sama máli og hásingarörið er, og stillti þessu svo upp í skrúfstykkinu. Mun þægilegra að vinna þetta sem mest uppréttur og við skrúfstykkið, heldur en undir bílnum.

DSC04889.JPG
DSC04889.JPG (405.04 KiB) Viewed 15383 times


Síðan var klárað að sjóða þetta saman, eins og hægt er, við skrúfstykkið.
Og svona lýtur þetta út í dag. Einnig fasaði ég fyrir suðunni á hásinguna.

DSC04891.JPG
DSC04891.JPG (422.93 KiB) Viewed 15383 times

DSC04892.JPG
DSC04892.JPG (454.29 KiB) Viewed 15383 times

DSC04893.JPG
DSC04893.JPG (471.09 KiB) Viewed 15383 times

DSC04894.JPG
DSC04894.JPG (428.41 KiB) Viewed 15383 times


Þannig að þá er bara að hella sér í næsta stól. Hann er aðeins meiri smíði, þar sem að þverstífan festist í hann líka.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 27.sep 2015, 14:29
frá svarti sambo
Er byrjaður á hinum stólnum.

Verið að stilla upp.

DSC04895.JPG
DSC04895.JPG (475.77 KiB) Viewed 15250 times


Gerði smá breytingu á fláanum undir hásingunni, svo að þetta sé ekki einhver drullusafnarahilla. Þarf að breyta þessu á hinum stólnum.

DSC04896.JPG
DSC04896.JPG (426.53 KiB) Viewed 15250 times

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 29.sep 2015, 16:06
frá svarti sambo
Jæja, þá er hinn stóllinn klár til að fara á hásinguna.
Gerði smá breytingu á smíðinni, sem ég tók ekki eftir á teikniborðinu.

Læt myndirnar tala sínu máli.

DSC04897.JPG
DSC04897.JPG (498.06 KiB) Viewed 15169 times

DSC04898.JPG
DSC04898.JPG (874.01 KiB) Viewed 15169 times

DSC04900.JPG
DSC04900.JPG (874.24 KiB) Viewed 15169 times

DSC04902.JPG
DSC04902.JPG (478.34 KiB) Viewed 15169 times

DSC04903.JPG
DSC04903.JPG (383.63 KiB) Viewed 15169 times

DSC04904.JPG
DSC04904.JPG (391.8 KiB) Viewed 15169 times

DSC04901.JPG
DSC04901.JPG (529.68 KiB) Viewed 15169 times


Þarf að breyta teikningunni, ef ég ætla að nota hana aftur.
Einhverjir eru kannski hneikslaðir á þessu pússeríi, en ég er að hugsa um eigið höfuð. Það er þægilegra að reka sig í þetta, þegar að þetta er orðið svona rúnað. :-)

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 29.sep 2015, 19:43
frá ivar
rekst púðinn ekkert í þetta fullpumpaður?
ég hef nú rekið mig á það að þeir þenjist meira út en ég vona :(

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 29.sep 2015, 20:39
frá ellisnorra
Þetta er óttalega sætt :)

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 29.sep 2015, 21:31
frá svarti sambo
ivar wrote:rekst púðinn ekkert í þetta fullpumpaður?
ég hef nú rekið mig á það að þeir þenjist meira út en ég vona :(


Ég vona ekki, en þá verð ég bara að breyta þessu. Það eru 3cm í fríbil neðst á honum ópumpuðum, og svo reiknaði ég með að hann myndi lyftast eitthvað við loftþrýstinginn og þá væri hann sennilega kominn í fláahæðina ( þar sem fláinn byrjar ). En ég sé þetta ekki nákvæmlega, fyrr en ég set þetta undir. Þú gætir kannski sagt mér þetta betur, þar sem að við erum með svipaða bíla. Heldur þú að það sé ekki nóg í fríbil. Hann hlýtur að vera sverastur í miðjunni. Annars er ég að gera þetta í fyrsta skiptið og er í smá þoku með þetta dót, en lét tilfinninguna ráða, varðandi þennsluna á púðanum.

elliofur wrote:Þetta er óttalega sætt :)


Þakka fyrir það. Ætti allavega ekki að verða alblóðugur, ef maður stangar höfuðið í þetta. :-)

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 01.okt 2015, 11:48
frá svarti sambo
Komnir nýjir demparar.

DSC04905.JPG
DSC04905.JPG (262.44 KiB) Viewed 14982 times

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 04.okt 2015, 16:16
frá olei
Þetta lítur út fyrir að verða alveg húð-vandað hjá þér Elías. Gaman að sjá það.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 04.okt 2015, 19:12
frá svarti sambo
Takk fyrir það Ólei.
Já, verður maður ekki að vinna þetta eins vel og maður getur, svo þetta verði til friðs og bara virki. :-)
Maður reynir allavega að gera þetta skammlaust og samkvæmt sinni bestu sannfæringu, um að þetta standist allar skoðanir og staðla. Það er bara verst, hvað maður hefur lítinn tíma í þetta. En ég geri þetta frekar hægar, en að flýta mér við þetta og kasta til þess höndunum. :-)

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 08.okt 2015, 19:47
frá svarti sambo
Jæja, þá er búið að renna fóðringarendana, fyrir stífurnar að aftan.

DSC04907.JPG
DSC04907.JPG (248.48 KiB) Viewed 14751 time


Og svo er bara að bora röralengjuna á réttum stað, með dósabor, og þá fer það í réttar lengdir í leiðinni, og suðuboginn kemur líka.

Re: 2003 Ford F350 Yfir á ?

Posted: 08.okt 2015, 21:31
frá Krilid
Sæll Elías. Þú verður aðeins að útskýra þetta betur með dósaborinn. Ætlar þú ða skera rörið í stífuna með að nota dósabor. Fá rétt snið svoleiðis. Er þetta rétt skilið.