Síða 1 af 1

Toyota LC90 41"

Posted: 31.maí 2014, 20:45
frá MattiH
...Toyota Landcruiser 90...

Vél:
3.O Turbo, Front mount Intercooler, Tölvukubbur, 3" pústkerfi, EGR blindaður.

Dekk og Felgur:
41" Irok (míkróskorin & kantskorin), 16"háar 15"breiðar stálfelgur.

Búnaður:
Utanáliggjandi úrhleypibúnaður, LED vinnuljós, HellaRally Gulir spot kastarar, 75w LEDbar, GPS, VHF, Skúffur í skotti, Dráttarspil, 150L Loftdæla og kútur, 4:88 hlutföll, Loftlæstur framan, Rafmlæstur aftan.

Image

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 31.maí 2014, 22:49
frá GFOTH
Virkilega fallegur jeppi sem þú nældir þér í.

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 01.jún 2014, 00:50
frá siggi64
Flottur bíll hjá þér..er þetta ekki 38" breyting ? eru dekkin ekkert að narta í hjá þér,það væri gaman að fá fleiri myndir af af honum...

Mbk Siggi K

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 01.jún 2014, 17:16
frá MattiH
Það var skorið úr og hækkað fyrir þessi dekk, ekkert nart.

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 30.jún 2014, 13:50
frá MattiH
Ein frá síðustu helgi.
Þetta er á leið milli Þakgils og Víkur. Keyrt ofan í djúpu gili mestalla leið og sama áin krossuð ansi oft.
Skemmtilegur spotti!

Image

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 10.aug 2014, 02:52
frá Luxarinn
Myndarlegur hjá þér!

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 24.sep 2014, 09:15
frá Óttar
Sæll Flottur bíll! Ég er að pæla í þessari dekkjastærð, hvernig eru þau að koma út? Þetta er radial er það ekki? :)

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 24.sep 2014, 11:20
frá MattiH
Sæll Flottur bíll! Ég er að pæla í þessari dekkjastærð, hvernig eru þau að koma út? Þetta er radial er það ekki? :)


Sæll.
Jú, Þetta er Radial, Ég kann mjög vel við þau. Góð keyrsludekk og virðast fín í snjó,

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 05.nóv 2014, 23:04
frá MattiH
Þá er þessi orðin loftlæstur að framan.

Image

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 06.nóv 2014, 00:28
frá Járni
Töff, pantaðir þú læsingardótið að utan eða keyptir hér heima?

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 06.nóv 2014, 09:36
frá MattiH
Töff, pantaðir þú læsingardótið að utan eða keyptir hér heima?


Lásinn fékk ég notaðan en dæluna keypti ég nýja hjá ArcticTrucks.

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 29.des 2014, 00:23
frá MattiH
Image

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 01.jan 2015, 00:44
frá gunnarb
Glæsilegur bíll. Búinn að eiga nokkra LC90, frábærir og traustir bílar. M.v. hvað þeir eru duglegir á 38" get ég vel ímyndað mér að þetta svínvirki hjá þér :)

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 19.jan 2015, 09:18
frá MattiH
Lyngdalsheiðar skreppur laugardaginn 17.janúar.

Image

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 19.jan 2015, 21:39
frá sigurdurak
Hvar verslaðiru þennan led bar?

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 20.jan 2015, 18:59
frá MattiH
Hvar verslaðiru þennan led bar?


Ég keypti hann hjá Poulsen.

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 20.jan 2015, 19:35
frá Svenni30
Sæll flottur hjá þér. En hvernig líkar þér við þessi dekk ?

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 20.jan 2015, 23:29
frá MattiH
Sæll flottur hjá þér. En hvernig líkar þér við þessi dekk ?


Takk fyrir það.
Ég fíla þessi dekk mjög vel. þau henta mér vel þar sem þessi bíll er notaður sem daily driver á milli ferða.
Það er draumur að keyra þetta á malbiki, ekki til hopp eða rás, svo finnst mér ekki mikill hávaði í þeim.
Auðvitað væri maður stundum til í að hafa þau aðeins breiðari, sérstaklega þegar maður er í samfloti með 44" bílum í erfiðu færi, en mér finnst þetta heppilegur kostur ef þú vilt örlítið meira en 38" en samt hafa þægilegan akstursbíl.
Myndi hiklaust mæla með þeim sem "all around" dekkjum ;)

Image

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 22.jan 2015, 19:25
frá MattiH
Prufaði að henda undir hann 44". Verð að viðurkenna að maður fór aðeins að leggja höfuðið í bleyti ;)

Image

Re: Toyota LC90 41" (44" mátun)

Posted: 22.jan 2015, 20:51
frá ToyCar
Djöfull er hann flottur á 44"
DO IT !!!

Re: Toyota LC90 41" (44" mátun)

Posted: 26.jan 2015, 17:33
frá haffiamp
Ég á til mynd af mínum gamla 90 cruiser á sama stað og í nánast sömu stellingu :)

44" er flott en ég get lofað þér því að það verður ekki eins kósý að keyra á þeim
eru þessi 41" dekk ekki mjórri en 38"? 14,5" ?

Re: Toyota LC90 41" (44" mátun)

Posted: 26.jan 2015, 19:18
frá MattiH
Já, ég geri mér fulla grein fyrir því, þetta var meira til gamans gert þar sem 44" var klár á felgum niðrá verkstæði ;)

Re: Toyota LC90 41" (44" mátun)

Posted: 26.jan 2015, 20:48
frá haffiamp
en þessi cruiser er mjög vel heppnaðir hjá þér annars! þarf að skoða hann við tækifæri

Re: Toyota LC90 41" (44" mátun)

Posted: 26.jan 2015, 21:57
frá TDK
Þetta er alveg gífurlega huggulegt tæki hjá þér.

Re: Toyota LC90 41" (44" mátun)

Posted: 26.jan 2015, 23:10
frá MattiH
Þetta er alveg gífurlega huggulegt tæki hjá þér.


Takk fyrir það ;)

Re: Toyota LC90 41"

Posted: 03.maí 2015, 20:34
frá MattiH
Skjaldbreiður/Langjökull 2.maí 2015

Image
Image